Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1931, Qupperneq 46
44
einhverjum ákveðnum stöðum, pleura, mediastinum, pertitoneum,
pulmon. ossa eða cutis auk adenitis colli, sem líklega er algengasti
staðurinn, en ekki alltaf í upphafi auðvelt að greina frá adenit. ex car.
dent. eða angina.
20. Gulusótt (icterus epidemicus).
Töflur II, III og IV, 20.
Sjúklingafföldi 1922—1931:
1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931
Sjúkl. 106 104 37 30 11 33 9 240 478 89
Umferðagula er enn viðloðandi allvíða í héruðum, aðallega á Suð-
urlandi og Austurlandi.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarff. Fáein létt tilfelli.
Svarfdæla. Enginn þungt haldinn.
Öxarff. Varð vart á Austur-Sléttu fyrri hluta ársins.
Reyðarff. 5 tilfelli. Virtist mér í engu tilfellinu, að verkur væri locali-
seraður við gallblöðru, heldur undir hægri síðu. Öll tilfellin létt.
Fáskrúðsff. Gulusótt hefir verið óvenju tíð. Mun hafa stungið sér
niður allt árið. Margir allþungt haldnir og voru lengi, vikur og jafnvel
mánuði, að jafna sig á eftir. Aðrir sluppu aftur mjög vel, þurftu
aldrei að fara i rúmið, en gengu til vinnu sinnar með veikina. Á
nokkrum heimilum tók hún 2—4, á mörgum aftur aðeins einn.
Mýrdals. Gula hefir verið hér viðloðandi síðan hún barst hingað frá
Vestmannaeyjum 1930. A einu heimili var hún að smátína upp heim-
ilisfólkið í fulla 5 mánuði, og var sumt af því fremur þungt haldið.
Rangár. Sá 2 sjúklinga. Uppruni óviss. Væg í báðum tilfellum.
Keflavíkur. Stakk sér niður hér og hvar í marz og apríl.
21. Kossageit (impetigo contagiosa).
Töflur II, III og IV, 21.
Sjúklingafföldi 1922—1931:
1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931
Sjúkl. 58 39 63 77 159 98 137 93 69 61
Læknar láta þessa getið:
Iiafnarff. Kossageit hér ávalt nokkur.
Iiofsós. Þessi leiði kvilli stingur sér niður hér alltaf við og við.
Húsavíkur. Vel get ég skilið, að sjúkdómur þessi sé tíðari í Öxar-
fjarðarhéraði en annarsstaðar, því að þar hefi ég séð menn kyssast
mér til mestrar hrellingar. Mikið af því, sem talið er impetigo, er
lupus á vægu stigi. Ég játa, að það er nokkuð djarft af mér
að koma með þessa tilgátu, en þó geri ég það. Að ætíð sé óþrifnaði
um að kenna, ef fleiður koma í nös, því neita ég. Ég hefi mörg tilfelli
af svo þrifnu fólki og heimilum, að með ágætum er, en hafa marga
sjúklinga með þessi recidiverandi nefsár, en það fólk er undantekn-