Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 104
1951
— 102
Ögur. Grunur um magakrabba í
gömlum manni í Nauteyrarhreppi.
Engar nákvæmar rannsóknir var þó
hægt að gera á manninuin, þar eð
liann neitaði með öllu að leggjast á
sjúkrahús.
Hólmavíkur. 3 krabbameinssjúk-
lingar létust á árinu heima i héraði.
64 ára maður, sem gerð var á ampu-
tatio recti og colostomia i ársbyrjun
1947, kom heim í ársbyrjun af Lands-
spítalanum eftir geislameðferð á meta-
stasis i mjaðmarbeinum. 75 ára fyrr-
verandi bóndi sendur til Reykjavíkur
vegna gruns um ca. ventriculi. Kom
lieim aftur með diagnosis: Ca. ino-
perabilis (hepatis?), metastasis pul-
monum. Varð brátt gulur eftir heim-
komuna og lézt i sjúkrahúsinu eftir
um mánaðarlegu. 44 ára bóndi, sem
hafði kennt óþæginda í maga um fjög-
urra mánaða skeið, leitaði þá fyrst
læknis. Við skoðun fannst tumorberði
ofan til i abdomen. Við röntgenrann-
sókn á Landsspítalanum sýndi sig, að
um ca. ventriculi inoperabilis var að
ræða. Hrakaði mjög eftir heimkom-
una. Var nýkominn í sjúkrahúsið hér,
er hann lézt skyndilega af hjartadauða.
4. krabbameinssjúklingurinn, sem
skráður er, virðist albata eftir geisla-
meðferð (síðast 1947) á ca. glandulae
thyreoideae.
Hvammstanga. 1 sjúklingur, 57 ára
bóndi i Bæjarlireppi. Hafði um 2 ára
skeið þjáðst af magakvilla og' átt bágt
með að kingja. Rannsakaður i Reykja-
vík 1950, án þess að skýring fengist
á þessu, að því er ég bezt veit. Við
endurtekna athugun fannst nú orsökin
loksins: cancer inoperabilis cardiae
et ventriculi. (Einnig leitaði til mín
sjúklingur frá Sauðárkróki, 60 ára
karlmaður, vegna meltingartruflana;
reyndist hann hafa ca. ventriculi og
var skorinn upp á Landakotsspitala.
Blönduós. 3 skráðir í ársbyrjun. 1)
Aðflutt kona, sem hafði fengið geisla-
lækningu við krabbameini í efra kjálka
i Reykjavik og hefur verið háð eftir-
liti síðan, en er stöðugt einkennalaus.
2) Kona um áttrætt. Fékk geislameð-
ferð vegna krabbameins í brjósti; flutt-
ist alfarin til sonar síns í Reykjavík
og var orðin banvæn í árslok. 3) Kona,
sem hafði verið skorin upp við krabba-
meini í maga fyrir nokkrum árum, en
meinið tekið sig upp, svo að hún dó
á árinu. A árinu fundust 5 nýir sjúk-
lingar: 1) 57 ára bóndakona, send til
Reykjavikur vegna gruns um krabba-
mein í maga og skorin þar með ár-
angri, að því er virðist; 2) 81 árs
bóndi uppi i Svartárdal, einnig með
mein í maga og banvænn við skoðun,
enda dáinn á árinu; 3) ógift kona, 60
ára, með stórt eggjastokksæxli, sem
reyndist við uppskurð illkynjað og
ekki skurðtækt, enda dó konan litlu
síðar; 4) 84 ára kona með útbreitt
mein í brjósti (Paget’s krabbamein)
við fyrstu skoðun, enda dó hún einnig
á árinu; 5) ógift kona, 73 ára, með
krabbamein í leghálsi, vaxið út i ná-
grennið, og liggur hún hér á sjúkra-
húsinu, banvæn i árslok. Er þá þess-
ari upptalningu lokið, svo fögur sem
hún er, og er það athugandi, að að-
eins 1 af þessum 5 nýju sjúklingum
kom það snemma, að von væri um
lækningu, en 2 hinna að visu komnir
yfir áttrætt og þvi ekki sigurstrang-
legt að taka þá undir hníf, þótt komið
hefðu fyrr.
Hofsós. 4 sjúklingar skráðir, á aldr-
inum 61—75 ára. 2 af þeim dóu á ár-
inu; annar hafði ca. recti, en hinn ca.
ventriculi. 3. sjúklingurinn, moribun-
dus í árslok, er með ca. nasopharyngis.
Hinn 4. hafði ca. ventriculi og var
skorinn á Siglufirði í apríl; var við
góða heilsu í árslok.
Akureyrar. Alls voru skráðir með
krabbamein á árinu 52. Þar af 43 inn-
anhéraðs og 9 utanhéraðs. Af þessum
sjúklingum dóu: Af utanhéraðssjúk-
lingum 2 karlmenn og 1 kona, en af
innanhéraðssjúklingum 3 karlmenn og
7 konur. Samtals dóu af krabbameins-
sjúklingum 13, en þó ekki nema 12
úr krabbameini.
Grenivíkur. 1 sjúklingur með ca.
ventriculi. Lézt á árinu.
Kópaskers. 2 sjúklingar. 77 ára mað-
ur dó úr ca. glandulae thyreoideae og
53 ára kona úr ca. ventriculi. Hafði
hún verið skorin upp i Reykjavik án
árangurs.
Vopnafj. Varð ekki vart á árinu.
Nes. 2 á árinu, sem vitað er um. 33