Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 216
1951
214 —
„Hann lá í djúpu meðvitundarleysi, og reyndist ókleift að vekja hann.
Af ytri áverkum hafði hann fleiður efst á enni, vinstra megin, á stærð
við tveggja krónu pening.
Hann var einnig bólginn á báðum kinnum, undir kinnbeinum og
neðan til á þeim, og á hægri kinn sáust 2 litlir, blóðhlaupnir blettir.
Fannst mér allt útlit áverkanna á kinnum benda til þess, að hann
hefði fengið hnefahögg í andlitið. Enn fremur var hann skrámaður
og bólginn á v. handarbaki.“
í vætti sama læknis fyrir sakadómi Reykjavíkur 26. júní 1952
segir svo:
„Staðfestir mættur vottorð sitt á dskj. nr. 6 og ítrekar aðspurður
þáð álit sitt, að útilokað sé, að hann hafi fengið áverka þessa við það
eitt að detta, enda hafi hann ekki verið neitt meiddur á nefi, og telur
mættur áverka Á. hafa verið slíka, að mjög líklegt sé, að þeir stafi
af því, að hann hafi fengið hnefahögg. Mættur athugaði ekki, hvort
Á. hafði áverka á fótum.“
Síðdegis 14. júní var slasaði fluttur á Landspítalann.
í læknisvottorði ..., aðstoðarlæknis á handlæknisdeild Land-
spítalans, dags. 23. júní 1952, segir svo:
„Við komuna á spítalann virðist sjúklingurinn vita af sér að ein-
hverju leyti, opnar augun og lítur í kring um sig, en er þó greinilega
sljór og getur ekkert sagt. Á enni vinstra megin er fleiður á stærð
við tveggja krónu pening, en engir aðrir áverkar eru sjáanlegir á höfði.
Á báðum kálfum og hnjám innan fótar eru marblettir, en ekki nein
sár eða merki um aðra áverka. Slasaði getur hvorki hreyft hægri hönd
né fót og virðist alveg lamaður þeim megin.
Ástand slasaða hefur farið smábatnandi, síðan hann kom, og virðist
lömunin að mestu horfin, en málið hefur hann ekki fengið enn. Þó
virðist sem hann hafi síðustu dagana gert tilraunir til að segja eitt
og eitt orð. Líðan virðist aldrei hafa verið slæm að ráði, hitahækkun
var nokkur um skeið, en er nú minnkandi.
Yfirleitt má telja líklegt, að slasaði nái sér að talsverðu leyti, en
að hve miklu leyti er á þessu stigi málsins ómögulegt að spá um.“
Hinn 11. júlí 1952 var slasaði fluttur á taugasjúkdómadeild Ríkis-
spitalans í Kaupmannahöfn, og segir svo í endurriti úr dagbók þeirrar
stofnunar:
Rigshospitalets neurokirurgiske afdeling
Tagensvej 18, Kbhvn. N.
Efternavn: B.-son
Fornavne: Á.
Stilling: g. ...
Bopæl: ... , Reykjavík
F. den 23/12 — 05
Indl. 11/7 — 52. Udskr. 2/8 — 52
Afdelingens
diagnose:
Bilaterale subdurale
hæmatomer.