Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 223
— 221 —
1931
leiðingum, að hann féll til jarðar og slasaðist. Kveðst hann hafa komið
niður á bakið. Læknir var þegar sóttur á slysstaðinn og slasaði fluttur
í sjúkrahús Siglufjarðar, þar sem ..., starfandi læknir á Siglufirði,
skoðaði hann. I læknisvottorði síðast nefnds læknis, dags. 23. júní
1946, er slasaði sagður hafa verið talsvert „shoekeraður" eftir slysið
og mjög aumur neðan til í baki. Áverkinn er nefndur fractura pro-
cessuum transversorum vertebrarum columnae lumbalis sinistrorum
I—III.
í apríl 1947 leitaði slasaði til dr. med. Snorra Hallgrímssonar, nú pró-
fessors, og segir svo í læknisvottorði hans, dags. 18. ágúst 1948:
„H. var til athugunar hjá undirrituðum 10.—11. apríl 1947. Hann
kvartaði þá yfir verk og stirðleika í bakinu. Við skoðun kom í Ijós,
að hreyfingar í mjóbaki voru mjög takmarkaðar, og H. kvartaði yfir
sársauka við tilraunir til hreyfinga.
Búinn var þá til handa H. bolur, bakinu til styrktar.
1. maí 1947 gat H. byrjað að vinna léttari vinnu, en varð þó aldrei
að fullu óþægindalaus.
S. 1. sumar var hann þó að mestu óþægindalaus, ef hann reyndi
ekkert á sig. S. 1. vetur versnaði hann frekar aftur og hefur síðan
átt erfitt með alla vinnu, sem útheimtir áreynslu. H. kvartar nú
aðallega yfir þreytuverk neðan til í brjóstbaki h. megin. Verkur
þessi kemur við áreynslu og við langvarandi setur og stöður. Hann
starfar nii að léttari trésmíðum og telur sig ófæran til allrar erfiðari
vinnu. H. hefur s. 1. vetur og vor leitað til undirritaðs vegna bak-
verkjarins, en lækningatilraunir mínar virðast ekki hafa borið neinn
árangur.
Við skoðun í dag kemur eftirfarandi í Ijós: Mjög áberandi kyphosis
fyrirfinnst í efri hluta columnae thoracalis, en engin scoliosis, og
að öðru leyti er ekki að sjá missmíði á bakinu. Hliðarhreyfingar
í mjóbaki eru nokkru minni en eðlilegt er, sérstaklega sveigja til h.
Hreyfing fram og aftur virðist eðlileg. Vöðvar virðast eðlilegir, nema
hvað H. kvartar yfir eymslum, þegar þrýst er á erector trunci h.
megin, neðan til við angulus scapulae.“
í læknisvottorði ..., sérfræðings í bæklunarsjúkdómum, dags. 7.
október 1948, segir svo:
„Sjúklingurinn telur sig hafa haft „veikt bak“, áður en hann
slasaðist, en kenndi þó aldrei neinna verulegra óþæginda vegna þess.
Síðan hann slasaðist, hefur hann aldrei á heilum sér tekið vegna
óþæginda í baki, sérstaklega við vinnu, þreytist fljótt og fær þá verk
neðan til við h. herðablað. Allar lækningatilraunir hafa að mestu
reynzt árangurslausar.
Skoðun sýnir áberandi kyphosis í col. thoracalis og compensa-
toriska lordosis í col. lumbalis. Mikill spasmus er í bakvöðvum, og
eru allar bakhreyfingar mjög takmarkaðar. Vafalaust stafar það að
nokkru leyti af structurbreytingum í sjálfri columna.
Röntgenmyndir af baki, teknar á Siglufirði 22. júní 1946 og 12.
júlí 1946, sýna fract. proc. transv. sin. 1—4 með lítilli dislocatio.
Profilmyndin af col. thorac. sýnir aukna kyphosis með áberandi
osteoarthrotiskum breytingum.