Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 164
1951
— 162 —
eiturbók, þar sem skráð eru útlát eit-
urefna til annarra afnota en lækninga;
6) eyðslubók, þar sem allrar notkunar
lyfjabúðar á ómenguðum vínanda sé
getið i réttri tímaröð.
Fer hér á eftir yfirlit um það, á
hvern hátt lyfjabúðarbækur þessar
voru færðar á árinu.
1) Vörukaupabækur og vörukaupa-
spjaldskrár. Þetta er í fyrsta skipti,
sem lyfjabúðum er gert að halda slík-
ar skrár. í mörgum lyfjabúðum höfðu
þó vörukaupabækur verið haldnar i
mörg ár, enda næsta erfitt að fylgjast
með vörukaupum og skrá nákvæmlega
verðmæti einstakra vörutegunda við
árlega birgðatalningu án slíkrar bók-
ar. Yið skoðun voru vörukaupabækur
lialdnar í 10 lyfjabúðum.
2) Vinnustofudagbók eða vinnu-
stofuspjaldskrá. Hér er einnig um
bækur að ræða, sem lyfjabúðum er
nú í fyrsta skipti gert að skyldu að
færa. Skrá þessi var samvizkusamlega
haldin í 3 iyfjabúðum og hvers konar
framleiðslu lyfjabúðarinnar þar getið,
en auk þess var í 2 lyfjabúðum haldin
skrá yfir nokkurn hluta framleiðslu.
í 14 lyfjabúðum voru skrár þessar alls
ekki haldnar.
Rétt er að geta þess, að víða voru
„vinnudagbækur“ haldnar, sbr. yfir-
lit um lyfjabúðareftirlit á íslandi 1948
—1950, en með nokkuð öðrum hætti
en mælt er fyrir um í áðurnefndri
auglýsingu um búnað og rekstur lyfja-
búða. í bókum þessum er þó yfirleitt
ekki getið annarrar framleiðslu en
þeirrar, er á sér stað í galenskri
vinnustofu.
3) Símalyfseðlabók var haldin i
samræmi við gildandi fyrirmæli í 4
lyfjabúðum. 1 7 lyfjabúðum var fund-
ið að færslu þessarar bókar, og í 2
var engin slík bók til, en lyfjum þó
Verk- og vindeyðandi dropar
30 ml — án umbúða .... kr. 5,85
með umbúðum . — 6,60
Handáburður
50 ml — með umbúðum . — 10,75
Blývatn með arníku
125 ml — án umbúða ... — 3,00
með umbúðum — 3,50
ávisað um síma endrum og eins á
báðum þessum stöðum. Símalyfseðlar
voru óþekktir i 6 lyfjabúðum, að sögn
hlutaðeigandi lyfsala.
4) Eftirritunarbók var haldin í öll-
um lyfjabúðum landsins. í 6 lyfjabúð-
um reyndist bók þessi þó ekki eins
nákvæmlega færð og skyldi.
5) Eiturbók reyndist reglulega færð
í 16 lyfjabúðum, en enga eiturbók var
að finna i 3. Eiturbeiðnum virtist þó
yfirleitt haldið til haga. Eftir þvi sem
næst var komizt, mun hafa verið látið
eitur gegn 662 eiturbeiðnum á árinu.
6) Eyðslubók, þar sem með sundur-
liðuðu yfirliti er gerð grein fyrir
hvers konar notkun, er á sér stað á
ómenguðum vínanda, var aðeins hald-
in í 2 lyfjabúðum. Gætti nokkurrar
ónákvæmni í færslum í annarri lyfja-
búðinni. Má af þessu ráða, að mikið
skortir á, að gögn um það, á hvern
hátt ómenguðum vinanda hefur verið
varið i lyfjabúðunum, einkum í búri,
séu tæmandi fyrir árið 1951.
Magn það af eftirtöldum áfengis-
tegundum, sem lyfjabúðirnar öfluðu
sér á árinu frá Áfengisverzlun ríkis-
ins, var sem hér segir:
Alcohol absolutus ....... 4 kg.
Spiritus alcoholisatus ... 2563 —
-—• bergamiae ............ 267,5 —
— chloroformii . .^ ... . 99 —
— denaturatus .......... 7148,7 —
Verð lausasölulyfja. Nokkuð hefur
borið á því, að verð á lausasölulyfj-
um, þ. e. a. s. lyfjum, sem heimilt er
að láta úti án lyfseðils, hafi þótt vera
breytilegt eftir lyfjabúðum. Var i til-
efni af þessu athugað um verð á
nokkrum lausasölulyfjum í 11 lyfja-
búðum. Eftirfarandi tölur gefa nokkra
hugmynd um, hversu ástatt er í þess-
um efnum:
2 Lyfjabúðir 3 4 5 6 7
6,10 5,50 ii 5,70 5,65 6,00
6,60 6,00 6,90 6,60 6,60 6,60
5,00 4,00 5,50 ii ii ii
H ii ii » ii ii
5,00 3,65 a ii ii ii