Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 98
1951
— 96 —
huga hana alla þar; reyndist uppltom-
inn bróðir hennar sjúkur og fór á Víf-
ilsstaði (er nú útskrifaður þaðan). 7
ára teipa reyndist Moro+ við skóla-
skoðun og hafði smávægilegar hilus-
breytingar, en smitunarleið hennar
hef ég ekki enn getað rakið með neinni
vissu.
ísafj. 4 með smitandi berklaveiki.
Fóru 2 þeirra á Kristneshæli. Annar
var nemandi úr gagnfræðaskólanum,
en hinn fór hér um, með viðkomu á
sjúkrahúsinu, á leið norður. Hinir 2
eru hér heimilisfastir og með undan-
þágu til að ganga lausir meðal fólks.
Annar þeirra hefur aldrei mætt á
berklavarnastöðinni, af ógreindum á-
stæðum, en er skráður vegna tilkynn-
ingar frá Líkn um, að hann væri
bacillær, en lítið, og mætti því vera
heima. Loftbrjóstsjúklingar eru 3, og
virðist þeim öllum farnast vel. Auk
þeirra, sem skráðir eru hér, kemur
slæðingur af fólki yfir sumarmánuð-
ina, sem fær loftbrjóstaðgerð. Eru
þetta gestir i sumarleyfum af hælun-
um og því ekki skráðir. Undanfarin
ár hefur verið gerð myndarleg tilraun
til að hefta útbreiðslu berklaveikinnar
i landinu með áberandi árangri. Nú,
þegar þeim fer stöðugt fjölgandi, sem
lcomast á fullorðinsár ósmitaðir, verð-
ur þörfin æ ríkari fyrir örugga gæzlu
berklaveikra, ef ekki eiga að hljótast
vandræði af. Það gegnir þvi nokkurri
furðu, að smitandi berklasjúklingar
skuli fá sumarleyfi og dvalarleyfi inn-
an um heilbrigt fólk með samþykki
ábyrgra aðila. Það færist í vöxt, að
fólk láti berklabólusetja sig og börn
sin, og er það nú talin réttmæt ónæm-
isaðgerð. Ekki mun þetta þó vera á-
hættulaust enn þá. Karlmaður, sem lét
berklabólusetja sig i október í haust,
gekk með suppurerandi sár á öxlinni
í 4 mánuði, fékk siðan útsæði í kirtil
í holhendinni, og er nú með ystandi
drep i kirtlinum og útferð, sem enn
á langt í land. Einum nemanda var
vikið úr skóla vegna berklaveiki. Fór
sá á Kristneshæli með smitandi
berklaveiki í lungum. Mun hann senni-
lega hafa verið orðinn smitandi, áður
en hann fór úr skólanum, og smitað
þar frá sér.
Ögur. 1 berklaveik stúlka í Súðavík
var blásin á ísafirði.
Hólmavíkur. Skráðir berklasjúkling-
ar með langflesta móti. 2 berklasjúk-
lingar komu heim eftir dvöl á Vífils-
stöðum. Annar, 29 ára kennaranemi
frá gömlu berklaheimili í Kirkjubóls-
hreppi, sem fannst við skoðun i Kenn-
araskólanum, dvaldist aðeins heima
stuttan tima. Hinn, kona sjúklings frá
Drangsnesi, sem sendur var sumarið
áður á Vifilsstaði og fylgdi manni sín-
um eftir suður með dóttur kornunga.
Veiktust báðar mæðgurnar um haust-
ið, og dvaldist konan um tíma á Víf-
ilsstöðum, en kom nú heim með manni
sínum. Kona á fimmtugsaldri úr
Kirkjubólshreppi hafði verið kvefuð
og lasin eftir inflúenzu um % mánað-
artíma. Við skyggningu fannst íferð í
lunga og smit við hrákarannsókn. Var
hún send samstundis á Vífilsstaði. Allt
lieimilisfólkið var berklaprófað og
gegnlýst, án þess að fleira fyndist at-
hugavert. 19 ára piltur frá Drangs-
nesi, sem vitað var, að hafði verið
Pirquet+ á skólaaldri, fékk adenitis
colli. Var um tíma í Reykjavík í ljós-
böðum og kom heim albata. 23 ára
bústýra í Kirkjubólshreppi, systir
kennaranemnans, sem áður getur,
veiktist í árslokin af pleuritis exsuda-
tiva. Fór skömmu eftir áramótin á
Vífilsstaði, þar sem við skyggningu
sást íferð í lunga. Tveggja ára sonur
liennar hafði fyrr um haustið orðið
Moro+ og var veikur um þriggja
vikna skeið með hilusþrota. En amma
hans, húsfre_yjan á heimilinu, sem var
gamall berklasjúklingur, hafði þá
nokkru áður verið send á Vifilsstaði
á ný, en reyndist smitandi um sum-
arið eftir slæmt kvef. Voru þannig 3
hinna nýskráðu og 1 endurskráður
frá sama heimili i Kirkjubólshreppi.
Hitt heimilisfólkið var að sjálfsögðu
rannsakað, án þess að fleira kæmi á
daginn. Auk áður talinna tveggja Vif-
ilsstaðasjúklinga komu 4 sjúklingar
heim frá Vifilsstöðum og fá loftbrjóst
heima. 56 ára fyrrverandi bóndi, sem
oft hafði áður verið á Vífilsstöðum,
veiktist aftur með smit við ræktun. Fór
á hælið og lézt þar 3 mánuðum siðar.
5 ára drengur, eitt barnanna, sem
J