Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 166
1951
— 164 —
um og lokið smíði 4 húsa með 4 í-
búðum og þau tekin í notkun. Húsa-
kynni eru nú yfirleitt góð, en þó
eru nokkur hús orðin léleg til íbúðar
vegna kulda og raka. Hefur farið fram
athugun á þeim, þegar þetta er ritað,
og verður getið í skýrslu næsta árs.
Ólafsvikur. Telja má, að húsakynni
séu orðin hin beztu. Aðeins 3 „greni“
nú byggð á Sandi, en 1 hér i pláss-
inu. Annars allt ný hús eða nýbyggð;
sannarlegt Grettistak til aukinnar
menningar.
Búðardals. Húsakynni fara batnandi
með ári hverju, enda rís nú hvert hús-
ið af öðru af grunni, og er gott til
að vita.
Reykhóla. 2 íbúðarhús i smíðum á
Reykhólum. Auk þess 2 íbúðarhús á
bændabýlum endurbætt mjög og kom-
ið í nýtízku horf. Þrifnaður fer batn-
andi, salerni koma í öll nýju húsin,
ásamt handlaugum og öðrum nauðsyn-
legum snyrtitækjum. En ekki getur á-
standið talizt gott í þessum efnum,
fyrr en lúsin er útdauð.
Þingeyrar. Húsakynni litið breytt.
Aðeins ein viðbygging gerð á árinu
(ibúð). íbúðarpláss víðast þröngt á
Þingeyri og erfitt orðið fyrir nýgift
fólk að stofna heimili vegna húsnæð-
isskorts. Þrifnaður i meðallagi og ætti
að geta batnað, þar sem er að ráðast
bót á vatnsskortinum með nýju vatns-
veitunni. Baðklefum þyrfti að fjölga,
sérstaklega í sveitinni, ef hægt ætti að
vera að telja fólkið þrifið. Hreinsun
á lóðum árlega, þó aðeins eftir áskor-
un heilbrigðisnefndar.
Flateyrar. Húsakynni góð, svo og
fatnaður og þrifnaður.
Bohingarvíkur. Byggingarfram-
kvæmdir smáar. Verkamannabústaðir
gerðir fokheldir.
ísafj. Húsakynni víðast sæmileg. Þó
enn þá til íbúðir, sem geta ekki tal-
izt mannabústaðir. 1 nýtt hús byggt á
árinu og áfram haldið með byggingu
18 íbúða húss, samkvæmt lögum um
verkamannabústaði. Standa vonir til,
að því verki verði lokið á þessu ári,
og mun þá ekki verða skortur hús-
næðis hér. Bærinn á 12 íbúða hús við
Fjarðarstræti, og í þvi eru glæsilegustu
íbúðir, sem hér gerast. Losni þarna
ibúð, mæla lög svo fyrir, að þangað
skuli flytja sá, sem vesælastur er,
enda safnast þangað þurfalingar. Trú-
að gæti ég, að þessu fólki þætti tóm-
legt allsleysið i þessum konunglegu
húsakynnum, en útsvarsgreiðendum
þungur bagginn. Þrifnaður má teljast
í sæmilegu lagi viðast hvar, en um-
gengni fiskvinnslustöðva er oft léleg.
Ögur. Mismunandi í hinum ýmsu
hreppum héraðsins. í Súðavik og
Súðavikurhreppi eru flest hús gömul
og léleg og íbúðir litlar og þröngar.
Miðað við nútíma kröfur, mundu flest-
ar íbúðir í þorpinu, að undanteknum
2—3, vera taldar heilsuspillandi og
ekki mönnum sæmandi. Algengt er, að
íbúðin sé 1 herbergi og eldhús, og
hrúgast heimilisfólkið þar allt saman
í einni kássu. í einni slíkri kytru býr
t. d. 8 barna fjölskylda, og fæðist þar
barn á hverju ári. Vatnsleiðsla er eng-
in sameiginleg fyrir allt þorpið, en
flest hús hafa eigin vatnsleiðslu og
skolpræsi. Sums staðar er þó hvor-
ugt. Upphitun er víðast hvar mjög
léleg; er eldavélin sums staðar eina
upphitunartækið i húsinu og eldhúsið
því eina afdrepið gagnvart kuldanum.
Sama máli gegnir um bæina í hreppn-
um. í Ögurhreppi eru húsakynni víð-
ast hvar léleg. Húsin léleg timburhús
og illa við haldið. Upphitun víðast
engin nema i eldhúsi. Þrifnaði virð-
ist einnig fremur ábótavant. I öllum
Ögurhreppi fyrirfinnst ekki eitt ein-
asta vatnssalerni, og kamrar eru að-
eins á betri bæjum. í Reykjarfjarðar-,
Nauteyrar- og Snæfjallahreppum eru
húsakynni víðast hvar góð, einkanlega
í Nauteyrarhreppi, og þrifnaður ágæt-
ur. Virðist Nauteyrarhreppur bera af
öðrum hreppum við Djúpið, hvað
snertir hibýlamenningu, og eru þar
víða ibúðarhús með flestum nýtizku-
þægindum og þrifnaður og umgengni
með ágætum.
Hólmavíkur. 3 ný íbúðarhús í sveit
reist á árinu, en byggingarfram-
kvæmdir engar i þorpunum, nema
nokkrar breytingar eldri húsa.
Hvammstanga. Enn var mikið um
byggingarframkvæmdir, og fara nú
húsakynni ört batnandi, bæði fyrir
fólk og fénað. Hafin bygging á 6 nýj-