Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 105
103 —
1951
ára karlmaður með ca. oris dó á ár-
inu. Hinn, 42 ára karlmaður með ca.
ventriculi, var skorinn upp á Landa-
koti i júni. Heilsaðist vel, en grunur
um áframhald um áramót. Fer suður
á ný til athugunar.
Kirkjubæjar. Nýtt tilfelli, kona með
ca. uteri. Gerð laparotomia explora-
tiva á Landsspítalanum. Var með car-
cinosis peritonei.
Vestmannaeyja. 7 skráðir i fyrsta
sinn, og dóu 2 þeirra á árinu. Kona
á lífi eftir operatio vegna ca. uteri
fyrir 10 árum.
Eyrarbakka. 63 ára kona á skrá í
ársbyrjun með metastasis eftir brjóst-
krabba (brjóst aftekið) lézt snemma
á árinu. 80 ára kona, er mein hafði
verið skorið lir brjósti hennar fyrir
nær 3 árum, lifir enn við góða heilsu.
80 ára kona með ca. ventriculi lézt
eftir stutta legu. 75 ára karlmaður með
sarcoma femoris dextri dó á árinu.
Laugarás. 4 eru taldir dánir á árinu,
en aðeins 1 er á mánaðarskrá. Hyper-
nephroma liafði mér láðst að skrásetja,
enda diagnosis ekki óyggjandi, síðast
þegar ég vissi. Um hina vissi ég ekki,
fyrr en ég átti að semja dánarvottorð
þeirra og leitaði upplýsinga hjá lækn-
um þeirra í Reykjavík. Er það oft
svo um cancersjúklinga, sem leita til
Reykjavíkur til rannsóknar, að maður
fréttir ekkert af þeim eða þeirra dia-
gnosis, fyrr en þeir deyja.
Keflavíkur. Illlcynjuð æxli, ásamt
eitla- og blóðkrabba, eru algengustu
dánarorsakirnar í héraðinu, samkvæmt
dánarvottorðum, og er það næsta at-
hyglisvert. Þó hygg ég, að það sé frek-
ar vegna nákvæmari sjúkdómsgrein-
ingar en hins, að veikin sé beint í
vexti, eins og reyndar oft er talað um
í ræðu og riti.
9. Drykkjuæði (delirium tremens).
Töflur V—VI.
1947 1948 1949 1950 1951
Sjúkl. 1 „ „ 1 5
Dánir „ „ „ „ „
Skráð tilfelli hafa lengi ekki verið
fleiri, og mun engan undra. Kemur þó
fráleitt allt þess háttar til skila.
Rvík. Maður með delirium tremens
framdi sjálfsmorð.
fílönduós. Hef aldrei séð það hér,
og eru þó i héraðinu 3—4 menn, sem
teljast mega ofdrylckjumenn. Antabus
hef ég ekki notað á þessu ári, en
nokkuð næsta eða næstu ár á undan,
án þess að hafa sjúklingana undir
hendi að staðaldri. Árangur hefur ekki
farið að vonum, þvi að einlægan vilja
vantaði þá, sem það fengu, að einum
undanteknum, en með honum hef ég
ekki getað fylgzt, þvi að hann mun
vera burtfluttur.
C. Ýmsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar.
Hafnarfj. Eins og að undanförnu
virðast mér farsóttirnar vera tíðastir
sjúkdóma hér; kennir þó hér að sjáif-
sögðu margra grasa.
Stykkishólms. Auk farsótta sömu
kvillar og áður.
Búðardals. Farsóttir algengastar, þá
tannáta (58 sjúklingar, 207 tenndur
dregnar).
Reykhóla. Auk farsótta tannskemmd-
ir og meltingartruflanir.
Þingeyrar. Tannskemmdir, farsótt-
ir, igerðir, gigtarsjúkdómar og smá-
slys.
ísafj. Auk farsóttanna ýmiss konar
vaneldissjúkdómar, svo sem tann-
skemmdir, blóðleysi, meltingarkvillar,
taugaveiklun og gigt af ýmsu tagi.
Ögur. Taugaveiklun alls lconar, gigt-
arveiki, tannskemmdir og meltingar-
kvillar. Húðsjúkdómar einnig mjög
algengir.
Hólmavíkur. Farsóttasjúklingar lang-
samlega flestir, þá koma, eins og
endranær, tannskemmdir, gigt, melt-
ingarkvillar og taugaveiklun ýmiss
konar.
Hvammstanga. Auk umferðarkvilla
og tannskemmda (97 sjúklingar, 188
tennur dregnar), einkum ýmiss konar
ellilasleiki, því að margt er af rosknu
fólki og gömlu í héraðinu, sem þjáist
af margvíslegum fylgifiskum elli og
slits, svo sem gigt, hjartabilun, æða-
kölkun, hækkuðum blóðþrýstingi o. s.
frv. Þá maga- og meltingarkvillar,