Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 84
1951
82 —
hér óslitiö í 3 mánuði, langflest til-
felli í júlí. Lögðust allþungt á suma.
Nokkuð bar á fylgikvillum. 2 sjúk-
lingar fengu otitis, og kveflungnabólgu
fengu 4. Allmargir, eða milli 30—40
manns, létu sprauta sig með rekon-
valescentserum, ýmist til að sleppa
við veikina, eða draga úr henni.
Reykhóla. Voru mest áberandi far-
sótt i héraðinu á árinu. Bárust hing-
að í maímánuði frá Reykjavik og voru
hér viðloðandi í 4 mánuði. Veikin
nokkuð þung, sérstaklega í fullorðnu
fólki. Fj'lgikvilla varð vart, og má þar
nefna pneumonia catarrhalis, 4 tilfelli,
pneumonia crouposa, 1 tilfelli, gastro-
enteritis, 2 tilfelli, og otitis media, 2
tilfelli. Af antibiotica dugði áberandi
bezt aureomycín. Mislingaserum var
fengið frá Reykjavik, og sprautuð voru
yngstu börn, vanfærar konur og veikl-
uð gamalmenni. Tókst með þvi að
forða hlutaðeigendum frá veikinni.
Flateyrar. Breiddust hægt út, senni-
lega vegna þess, að prodromalstigið
var þungt, og sjúklingarnir voru þá
venjulega við rúmið fram að exan-
themsstiginu. Virðist leggjast þyngst á
þá, sem nýlega höfðu fengið kikhósta,
og höfðu þeir lengi á eftir harðan
hósta.
Bolangarvíkur. Mislingar berast
hingað seint í júlí með konu, sem
kemur hingað i heimsókn að sunnan
með son sinn ungan. Hafði hún dval-
izt um hríð í Bjarkarlundi, og á leið-
inni jmðan og hingað veiktist barnið,
en mislingar gengu þá um þær slóðir.
Fullyrti hún, að barnið væri búið að
fá mislinga, og þar sem það hafði
einnig angina samfara útbrotunum,
var ég fyrst í vafa, en það kom þó
ótvírætt á daginn, að um mislinga var
að ræða. Breiddust þeir síðan út um
allt þorpið, náðu hámarki um miðjan
ágúst og í september, dvinuðu svo og
dóu út i nóvember. Voru sum börn
mjög veik, en alvarlegir fylgikvillar
komu þó vart fyrir og engin dauðsföll.
ísaf]. Gengu um héraðið i maí—
ágúst. Voru yfirleitt vægir hér í hér-
aði, en lögðust þungt á fullorðið fólk
i sveitum. Serum var gefið veikluðu
fullorðnu fólki, svo og nokkrum bænd-
um, sem vildu komast hjá að verða
óvinnufærir um sláttinn. Varð árang-
ur ágætur og tilgangi náð i öllum til-
fellum.
Blönduós. Gengu nokkuð um upp-
sveitir héraðsins í janúar, og voru það
eftirhreytur frá árinu á undan. Þeirra
varð einnig vart hér á Blönduósi um
miðsumarið.
Sauðárkróks. í árslok 1950 höfðu
mislingar borizt á einn bæ og í janúar-
mánuði er þar skráð 1 tilfelli til við-
hótar. Verður þeirra svo ekki vart
aftur fyrr en í júlí, að faraldur kem-
ur upp. Eru þeir svo viðloða næstu
2 mánuði, en deyja þá út. Lögðust
allþungt á, og barn á 2. ári fékk
lungnabólgu og dó. Hafði áður þjáðst
af asthma og bronchitis.
Hofsós. Faraldur sá, sem gekk hér
i árslok 1950, dó út i janúar 1951.
Mislingar bárust síðar tvívegis inn í
héraðið á árinu, i marz og desember.
í bæði skiptin veiktust fáir, og hjöðn-
uðu mislingarnir fljótt niður. Yfirleitt
lögðust mislingarnir þungt á börn og
fullorðna. Barn, rúmlega ársgamalt,
lézt af völdum mislinga.
Akureyrar. Gerðu vart við sig flesta
mánuði ársins, en útbreiddust aldrei
neitt. Flest tilfelli bundin við Mennta-
skólann. í flestum tilfellum var veikin
tiltölulega þung, en þó litið af fylgi-
kvillum og engin dauðsföll af þeirra
völdum.
Breiðumýrar. 5 staðgöngumenn
gegndu héraðinu í 9 mánuði, og það,
sem þeir skildu eftir skrifað um störf
sín, er að litlu gagni. Hefði þó verið
mikil ástæða til að geyma glögga frá-
sögn af mislingafaraldri, er gekk hér
í ársbyrjun 1951 með áberandi mikl-
um fylgikvillum, lungnabólgusjúkling-
um i tugatali. En upplýsingar þær,
sem fyrir liggja, eru svo gloppóttar,
að þær koma ekki að haldi.
Kópaskers. ÖIl mislingatilfellin á
sama heimili.
Vopnafj. Bárust inn i héraðið í des-
ember 1950 með konu, sem kom frá
Reykjavík. í janúar 1951 veiktist svo
maður hennar og 2 börn þeirra hjóna.
Ekki bárust mislingarnir út af heim-
ilinu. í júní bárust mislingar aftur
hingað með skólapilti frá Hvanneyri.
Enginn annar fékk þá veikina.