Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 117
— 115 —
1951
Víkur. Maður á bezta aldri og
heilsugóður áður veiktist skyndilega
um nótt hér í Vik, og var ég sóttur
til hans. Þá var hann alveg friðlaus
af kvölum á gallblöðrustað og eymsl-
um. Ég gaf honum þegar petliidín-
sprautu og aðra skömmu síðar, en
líðan skánaði ekki, og svo settist mað-
urinn upp og dó fyrir nefinu á mér.
48. Mus articuli.
Flateyrar. 1 tilfelli.
49. Myxoedema.
Flateijrar. 1 kona. Haldið við með
thyreoideagjöfum.
ísafj. Hyperthyreoidismus congenitus
(cretinismus): Á mínum vegum er 1
barn með þenna sjúkdóm, og virðist
það ætla að ná eðlilegum þroska með
vaxandi slcömmtum af thyreoidea.
Nes. 2 tilfelli, gömul. Annað sent á
Landsspítalann vegna versnandi á-
stands.
50. Nephrolithiasis.
lsafj. 3 tilfelli, og voru 2 sjúklingar
skornir í Reykjavík.
51. Neurasthenia.
Stykkishólms. Er ekki óalgeng, en
yfirleitt ekki alvarleg.
Þingeyrar. Neurasthenia: a) almenn
neurasthenisk einkenni 2, b) ráðandi
svefnleysi 1, c) neurosis cordis 3.
ísafj. Er algeng og ólundarlegt við-
fangsefni.
Ögnr. Taugaveiklun virðist mjög al-
geng meðal kvenfólks. Lýsir hún sér
i þrevtu, sleni, „pirringi“ hingað og
þangað um skrokkinn og alls konar
verkjum. Neurasthenia: 2 tilfelli skráð.
Vopnafj. Neurasthenia 5, neurosis
cordis, tachycardia 4.
Nes. Talsvert áberandi og leiður
kvilli. Liggur fólk þetta mikið á lækni
með beiðni um alls konar meðalasull,
sem öðrum hafi „orðið svo gott af“.
Nokkuð bar á cancerophobia.
Hafnar. 12 tilfelli.
52. Obstipatio habitualis.
Þingeyrar. 4 tilfelli.
Ögur. Hægðatregða algengur kvilli í
konum og körlum og virðist valda
mönnum miklum áhyggjum.
Vopnafj. 5 tilfelli.
53. Osteochondritis coxae juvenilis.
Sauðárkróks. 3 ára drengur gengur
í umbúðum.
54. Otitis media.
Þingeyrar. Otitis media acuta 12.
Flateyrar. 3 tilfelli. Pensilin lækn-
aði.
ísafj. Ekki óalgeng i börnuin.
Sauðárkróks. Kom alloft fyrir í ung-
börnum, einkum i sambandi við kvef.
Hofsós. Ekki óalgengur fylgikvilli
með mislingum.
Vopnafj. Otitis media acuta catar-
rhalis & suppurativa 15.
Nes. Mikið um bráð tilfelli upp úr
farsóttum, og verða mörg þeirra þrá-
lát vegna þess, að læknis er ógjarna
vitjað vegna „einfalds hlustarverks“.
Súlfa-„resistent“ tilfelli algeng, og er
því pensilín nú eingöngu notað og
aureomycín við fjarlægari tilfelli.
Djúpavogs. 1 slæmt tilfelli með
paresis á n. facialis og eymslum á
processus mastoideus. Batnaði samt af
procain-pensilíni, án þess að til sup-
purationar kæmi.
55. Oxyuriasis.
Reykhóla. Alltaf viðloðandi kvilli,
einnig i fullorðnum.
Flateyrar. Virðist vera nær ógern-
ingur að eyða þessum kvilla, því að
hann kemur jafnharðan á heimilin
aftur. Þarf að hefja hér herferð gegn
honum eins og gegn lúsinni. Er al-
gengur hér og sérstaklega hvimleiður
í stúlkubörnum.
ísafj. Ailtíður kvilli, en lækningin
gengur oft illa, þrátt fyrir sæmileg
lyf, einkum vegna hirðuleysis.
Ögur. Algengur kvilli i börnum.
Hvammstanga. Nokkur tilfelli i börn-
um, 1 fullorðin kona.
niöndnós. Ekki mjög algengur kvilli,
en kemur þó fyrir öðru hvcrju. Ég
nota gentianatöflur, læt krakkana sofa
i buxum og þvo sér á undan mat,
skipta rúmfötum og iverufötum eftir
nokkra daga og taka töflurnar á ný,
næst þegar þau hafa fataskipti. Auk