Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 167
— 165 —
1951
um íbúðarhúsum og auk þess haldið
áfram byggingu 13 ibúðarhúsa, sem
byrjað var á árið áður, 7 íbúðarhús
eldri lagfærð og endurbætt, samtals
26 ibúðarhús. Hin nýju hús yfirleitt
hagkvæm og vönduð. Salerni i þeim
öllum, vatnssalerni víðast, og í mörg-
um bað. Þrifnaður í greinilegri fram-
för, víða mjög sæmilegur, þó að á
stöku stað kunni enn að finnast mis-
smíði á. Lokið var byggingu nýja sim-
stöðvarhússins við Hrútafjarðará og
það tekið í notkun. Aðrar byggingar,
sem ýmist voru fullgerðar, haldið á-
fram með eða byrjað á: Fjós 18, hey-
hlöður 8, votheyshlöður 23, fjárhús
9, safnþrær 4, mjólkurhús og geymsl-
ur 4. Kaupfélag Hrútfirðinga á Borð-
eyri byggði vörugeymsluhús.
Blönduós. Húsakynni fara enn batn-
andi og húsin hér sem annars staðar
höfð eftir því stærri sem dýrara verð-
ur að bygg'ja. Þrifnaður er einnig vax-
andi og lúsin að hverfa. Erfiðust er
hún viðfangs í kauptúnunum.
Sauðárkróks. Húsakynni fara enn
batnandi. Á Sauðárkróki var lokið
við byggingu 5 íbúðarhúsa, hvers með
1 íbúð. Eru nú ekki lengur nein hús-
næðisvandræði i bænum, enda flyzt
nú þangað ekki mikið af fólki. f sveit-
inni var einnig byggt talsvert, bæði
af ibúðarhúsum og peningshúsum.
Ólafsfí. Verkamannabústaðir, 4 í-
búðir, komust undir þak og haldið
áfram innivinnu. 1 steinhús fullgert,
og sín íbúðin í 2 öðrum, en eigendur
hafa eklti fé til að ljúka við hinar
íbúðirnar. Utanhússþrifnaður ekki
g'óður.
Grenivíkur. Húsakynni víðast orðin
sæmilega góð. Engar nýjar ibúðar-
hyggingar á árinu, en gamlar ibúðir
eitthvað lagfærðar. Þrifnaður yfirleitt
góður. Vatnssalerni nú komin á flest
heimili.
Þórshafnar. Byrjað á byggingu
nokkurra íveruhúsa úr steinsteypu.
Húsakostur viða mjög slæmur. Þrifn-
aði víða ábótavant sem fyrr.
Vopnafí. 1 kauptúninu mun hafa
verið unnið að smiði 5 íbúðarhúsa að
einhverju leyti — 3 nýjum og 2 frá
fyrra ári — en ekkert þeirra fullgert.
I sveitinni munu 3 ibúðarhús hafa
verið i smiðum, en ekkert þeirra full-
gert.
Bakkagerðis. Húsakynni yfirleitt
þröng og léleg. Þó eru hér nokkur
nýleg hús allgóð, og byrjað var á 2
nýjum íbúðarhúsum á árinu. Þrifn-
aður sums staðar góður, en víða á-
bótavant.
Seijðisfí. Lítið um nýbyggingar, en
nokkur hús í smiðum, aðallega ein-
býlishús. Þrátt fyrir kyrrstöðu á íbúa-
tölu er erfitt fyrir fólk að fá leigu-
íbúðir. Þrifnaður yfirleitt góður.
Nes. Mikið byggt af góðu húsnæði
undanfarin ár og nokkru ólokið, sem
byrjað hefur verið á. Má telja ástand
mjög sæmilegt i héraðinu, hvað hús-
næði og þrifnað snertir, þótt undan-
tekningar séu frá þvi sem annars
staðar. Erfiðasta viðfangsefnið er að
fá gert að skolpræsum í kaupstaðn-
um, en þau eru ýmist opin ræsi í
gegnum hann eða ekki fyrir hendi.
Hefur læknir og heilbrigðisnefnd
kvartað oft yfir þessu undanfarin ár,
en engin viðunandi lausn fengizt á
málinu.
Djúpavogs. Þrifnaður upp og niður,
betri í sveitunum víðast hvar en í
þorpunum. Húsakynni hafa stórbatn-
að hér siðustu ár. Sérstaklega er farið
að hita húsin betur upp en áður var.
Gert hefur verið við eldri hús og tals-
vert byggt af nýjum. Víða komið
vatnssalerni á árinu, þar sem ekkert
var áður, en salerni vantar þó of víða
enn þá.
Hafnar. Hvort tveggja viðast sæmi-
legt. Lúsalaust má heita i héraðinu,
en salerni vantar víða. 7 hús voru
byggð i sveit á árinu, þar af 4 nýbýli.
3^ hús byggð á Höfn.
Kirkjubæjar. Húsakynni og þrifn-
aður eru í bærilegu lagi, og fer hvort
tveggja batnandi með ári hverju.
Vestmannaeyja. Tekin í notkun 15
íbúðarliús, þar af 5 tvíbýlishús, og
verða því í húsum þessum alls 20
íbúðir. Stærðin er 2—5 stofur og eld-
hús í hverri íbúð. Samtals var stærð
þessara húsa 7298 rúmmetrar. Fjögur
eldri ibúðarhús hafa verið stækkuð,
og nemur sú stækkun 850 rúmmetr-
um. í smiðum eru auk þess 45 íbúðar-
hús, sem eru lengra og skemmra á