Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 171
— 169 —
1951
hafa ýmsir bæjarbúar kýr sjálfir, og
geta seit eitthvað af mjólk.
Ólafsfí. Seld var mjólk frá samsölu
bænda. Auk þess hafa 2 menn i kaup-
staðnum lagt mjólk í samsöluna. Eftir-
litsmaSurinn kom hér og átti viStal
við mig, er hann hafði athugað mjólk-
ursöluna. Hann taldi fráleitt að blanda
mjólkinni saman frá fleiri heimilum
og kvaðst hafa stungið upp á því fyrir-
komulagi við söluna, að sama fóllc
fengi ætíð sömu mjólk frá sömu heim-
ilum. Þessu hefur samsalan ekki sinnt,
enda skal játað, að erfitt er að fram-
kvæma það, einkum að vetrarlagi,
þegar ófærð er, og mjólk frá sumum
bæjum kemur ekki fyrr en ef til vill
síðara hluta dags. Það er vitað, að
mjólk er hellt saman, t. d. frá tvibýli,
og er það ekki svo mjög athugavert,
þegar k--''r eru í sama fjósi og mjalta-
fólk er hið sama. En henni er lika
hellt saman frá tvibýli, þar sem fjósin
eru tvö og þar af leiðandi ekki sama
mjaltafólk. Einnig mun vera hellt sam-
an mjólk frá heimilum, sem hafa litla
mjólk, og mjólkin kæld í 40—50 litra
brúsum. Samsalan hefur þvi fyrirmæli
mjólkureftirlitsmanns að engu. Það er
líka staðreynd, að mjólkin er stund-
um seld sólarhring eftir að hún kem-
ur í samsöluna; mjólk frá tveim mál-
um er flutt i samsöluna, svo að sumt
af mjólkinni er selt yfir 30 tíma gam-
alt, og er þar með þverbrotið það á-
kvæði mjólkurreglugerðar, að mjólkin
megi ekki vera nema 18 stunda gömul,
þegar hún er látin af hendi til neyt-
enda. 4 önnuðust afgreiðsluna á ár-
inu, kjötbúðarstjórinn sjálfur, ásamt
stúlku, og hraðfrystilnissstjórinn og
verkamaður hjá kaupfélaginu. Það
vill brenna við, að afgreiðslufólkið
hregður fingrum ofan í mjólkurílátin,
þegar það tekur við þeim. Brúsarnir
með mjólkina, sem selja á, standa á
gólfinu, og verður því afgreiðslufólkið
eð bogra yfir brúsana, þegar það eys
mjólkinni upp. Mjólkinni er ausið upp
með mælum, sem þó eru með skafti,
svo að hengja má þá á barm brús-
anna. Fólkið er í sömu hlifðarfötuin
yið afgreiðslu mjólkur og afgreiðslu
n nýju kjöti, saltkjöti, saltfiski, há-
karli og öllum öðrum vörum, sem
seldar eru í kjötbúð, og kjöt er jafn-
vel saltað í sömu fötum. Mjólkina og
vörur þessar afgreiðir fólkið á víxl.
Gera verður ráð fyrir, að fólkið þvoi
sér oftast nær um hendur, áður en
það afgreiðir mjólkina, en ekki er
l>ví að treysta. Eftir skýrslu dýra-
læknis má segja, að ástand gripanna
og fjósa sé i mjög sæmilegu lagi. Er
svo að skilja, að bændur áliti, að þar
með sé allt í himnalagi, þvi að svo
furðulega hafa þeir brugðizt við, þeg-
ar heilbrigðisnefnd hefur gefið bend-
ingar um hreinlegri afgreiðslu mjólk-
urinnar, eða gert kröfur þar að lút-
andi, sem enn þá geta ekki talizt
annað en lágmarkskröfur. Auk þess
halda þeir því fram, að mjólkin sé
afgreidd samkvæmt fyrirmælum
mjólkureftirlitsmanns. Það er stað-
reynd, að eftir að samsalan byrjaði,
hefur orðið mikil afturför, frá heil-
brigðissjónarmiði, á afgreiðslu mjólk-
ur. KEA var búið að koma upp mjólk-
urgeymi með sjálfvirkum mæli og
seldi gerilsneydda mjólk. Geymirinn
var úr ryðfríu stáli. Nú er búið að
taka áhaldið niður, og er það á hvolfi
i bakherbergi kjötbúðarinnar. Þar á
ofan bætist svo það, að nú er hætt
að flytja gerilsneydda mjólk frá Ak-
ureyri, og allir þar með neyddir til
að kaupa ógerilsneydda mjólk frá
samsölunni, ef þeir á annað borð ætla
sér að nota þá vöru. Er það vita-
skuld gert vegna þess, að bændur
framleiða nú meira en nóga mjólk
sjálfir. Slíkum þrælatökum beitir
Kaupfélag Ólafsfjarðar viðskiptamenn
sína. Úr afgangsmjólk er baslað við
að gera smjör, og er það oft léleg
vara, því að mjólkin er oft geymd úr
liófi fram, í þeirri von að hún seljist.
Grenivíkur. Mjólkin seld til Akur-
eyrar, alltaf þegar þangað er fært bíl-
um.
Þórshafnar. Mjólkurskortur algeng-
ur á haustin í þorpunum. Flestir hafa
eigin kýr, þvi að kúabú eru engin.
Bakkagerðis. Flest heimili eiga 1—2
kýr. Sama og engin mjólkursala.
Segðisfj. Of litið er framleitt af
mjólk. Mjólkursala í bænum frá
Dvergasteinsbúi, sem hefur um 18
kýr. Oft erfitt að vetrinum að koma
22