Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 118
1951
116
þess kvikasilfurssmyrsl í kringum
cndagatið. Þetta reynist oftast nægi-
iegt.
Sauðárkróks. Kemur ósjaldan fyrir
og gengur oft erfiðlega að lækna að
fullu.
Hofsós. Nokkur tilfelli.
Ólafsfj. Árlega þó nokkur tilfelli.
Oft erfitt að útrýma úr fjölskyldum.
Kópaskers. Gerir öðru hverju vart
við sig, og býst ég við, að kvillinn sé
nokkuð algengur, þó að ekki taki
nema sumir rögg á sig til að leita
lækningar við honum.
Bakkagerðis. Algengur kvilli hér.
Nes. Tíður kvilli í smábörnum og
stundum i heilum fjölskyldum. Nokk-
uð hefur borið á smitun með tyggi-
gúmi, sem börn lána hvert öðru. Kom
upp faraldur af þessum ófögnuði i
nokkrum húsum í haust, og var þá
heimilisfólki á vikomandi stöðum lát-
in í té viðeigandi meðferð með full-
um árangri. Hef eingöngu notað
pilulae gentianae violaceae og grá
smyrsli.
Búða. Varð litið vart á árinu.
Hafnar. 20 tilfelli.
Kirkjubæjar. Algengur kvilli.
Eyrarbakka. Nokkur tilfelli árlega,
börn.
Laugarás. Ekki óalgengur og tekst
misjafnlega að útrýma.
56. Paralysis agitans.
Flateyrar. Ágerist i aldraðri konu.
Ögur. 1 tilfelli, gömul kona, 64 ára.
Hefur legið á sjúkrahúsi ísafjarðar í
nokkur ár.
Sauðárkróks. Kona, sem þjáðst
hafði af þessari veiki í mörg ár, dó
á árinu. 19 ára piltur veiktist af sama
sjúkdómi og má nú heita farlama.
Þórshafnar. 1 aldraður sjúklingur,
rúmliggjandi.
Vopnafj. 1 tilfelli.
Nes. 3 gömul tilfelli. Þar af dó 32
ára karlmaður, sem jafnframt var með
ca. oris. Fékk ákafa blæðingu, sem
dró hann til dauða.
Búða. Sami sjúklingur og áður, mið-
aldra kona.
Eyrarbakka. Aldraður karlmaður.
Ástand mikið til óbreytt mína tíð hér.
Laugarás. 2 gamlar konur.
57. Peritendinitis crepitans.
ísafj. Verður talsvert vart á sjó-
mönnum.
58. Pes planus.
Þingeyrar. 2 tilfelli.
Flateyrar. 3 tilfelli.
59. Phimosis.
Flateyrar. 5 tilfelli, 4 ungbörn og 1
roskinn maður.
60. Phthirius pubis.
Þingeyrar. 11 tilfelli.
61. Prolapsus uteri.
Flateyrar. 1 tilfelli.
62. Psoriasis.
Stykkishólms. í ýmsum myndum
algengur og þrálátur kvilli.
Þingeyrar. 1 tilfelli.
Hólmavíkur. Með algengustu kvill-
um sem áður.
Hvammstanga. 10 ára telpa i Bæjar-
hreppi og kona um tvitugt í Torfu-
staðahreppi fengu báðar bráð pso-
riasis-útbrot. Einkum varð konan mjög
útsteypt, bæði í andliti og um allan
líkamann. Sjúkdómurinn hefur komið
fyrir i ættum beggja. Auk þeirra eru
2 aðrir menn, feðgar, haldnir þessum
kvilla.
Þórshafnar. 1 tilfelli.
Laugarás. Mjög slæmt tilfelli. Þurfti
langa sjúkrahúsvist.
63. Pyelitis & pyelonephritis.
Þingeyrar. 4 tilfelli.
Vopnafj. 2 tilfelli.
64. Rheumatismus.
Þingeyrar. Rheumatismus: a) arti-
culorum 7, b) nervorum 4, c) muscu-
lorum 7.
Flateyrar. Ischias: 2 tilfelli. Sæmi-
legur bati með medicinskri meðferð.
Rheumatoid sjúkdómar eru algengir
kvillar í ýmsum myndum. Arthritis
ossificans vertebrarum 1, periarthritis
humeroscapularis 2, lumbago 5, osteo-
chondritis juvenilis columnae 1, mal-
um coxae 3.
ísafj. Ýmiss konar gigtarsjúkdómar
algengir.