Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 144
1951
— 142 —
Ura geðveika:
Rvík. Á árinu voru 55 Reykvíkingar
lagðir inn á Kleppsspítala. Dvalar-
heimili bæjarins að Elliðavatni og
Arnarholti voru jafnan fullskipuð, og
dvöldust þar að staðaldri rúmlega 40
geðveikir menn.
Ólafsvikur. 2 eru sjúkdóms síns
vegna fastir á skýrslunni; auk þess 3
tilfelli léttari og stundarfyrirbæri.
Þurfti þó eitt spitalavist.
Búðardals. 2 sjúklingar með de-
pressio mentis. Gerði annar þeirra
tilraun til að fyrirfara sér, skar á
hálsinn, en tókst ekki.
Þingeyrar. Morbus mentalis 6 til-
felli. Depressio mentis 4 tilfelli; þar
af fengu 3 raflost með allgóðum ár-
angri. Kona með confusio mentis send
á sjúkrahús í Reykjavik. Gamall geð-
veikissjúklingur, sem gengið hafði
laus í mörg ár og framið ýmiss konar
spellvirki, sendur á Kleppshælið.
Flateyrar. Schizophrenia: 1 tilfelli,
sjúltlingurinn sendur á Kleppsspítala.
Bolungarvík. Roskin kona hér gerð-
ist þunglynd, fór einförum og hafði
tilhneigingu til sjálfsmorðs, en var
annars róleg. Hefur hún alla tíð verið
viðkvæm úr hófi fram og psykiskt
labíl. Átti að höggva dóttur hennar,
sem var sjúklingur á Vífilsstöðum, og
mun það hafa raskað henni svona.
Fór hún af frjálsum vilja á Víðihlið-
ardeildina á Kleppsspítala.
ísafj. 2 sjúklingar með psychosis
maniodepressiva og 1 með depressio
mentis. 2 geðveikissjúklingar dvöldust
á geðveikradeild elliheimilisins, við
sömu kjör og áður, og 2 á sjúkrahús-
inu, öllum þar til ama.
Ögur. 37 ára ókvæntur vinnumaður
i sveit fékk depressio mentis. Var
sendur til Reykjavíkur og fékk þar
shockmeðferð. Kom heldur skárri til
baka. 16 ára stúlka fékk manio-
depressiv köst. Var send til Reykja-
víkur og lögð inn á Klepp. Iíona, 41
árs, félck depressio mentis og lá á
ísafirði um tíma.
Hólmavíkur. Fertug kona, sem um
getur í síðustu skýrslu, fékk depressio
mentis á sama tima árs og árið áður,
en jafnaði sig furðuvel á um 2 mán-
aða tima.
Hvammstanga. 2 manneskjur héðan
fengu vist á Kleppi um skeið, vegna
skyndilegra brjálsemisóra.
Blönduós. Geðveik varð að nýju
kona ein, sem send var til útlanda til
lækninga, en á annarri var gerð lobo-
tomia í Reykjavík, og fékk hún bata.
Aðeins 1 þeirra geðveiku sjúklinga,
sem kunnir eru í héraði, þarf sérstaka
gæzlu, og hefur fengizt loforð fyrir
húsrými handa honum á Kleppi.
Sauðárkróks. 48 ára gamall bóndi
tók að fá ýmsar hugmyndir, sumar
alleinkennilegar, gerðist tortrygginn
gagnvart öðrum og taldi sig vera með
krabbamein. Hann fór til Reykjavíkur
til rannsóknar. Þar fleygði hann sér
út um glugga á 3. hæð og lézt af af-
leiðingum þess nokkru siðar. 18 ára
bóndasonur var kominn til náms á
Hólaslcóla; truflaðist hann þar, og
varð að koma honum á Klepp. Svo
er 48 ára kona úr Hofsóshéraði, sem
er á sjúkrahúsi Sauðárkróks; hefur
hún psychosis og þjáist af asthma.
Ólafsfj. Konan, sem um getur i síð-
ustu ársskýrslu og mest vandræðin
hefur verið með, hefur verið algerlega
sinnulaus allt árið. Þurft hefur að
mata hana og klæða, og lendir það
oftast á 7 ára gamalli dóttur hennar,
þegar bóndinn er öðru að sinna. Það
vofir yfir, að bóndinn gefist upp á
búskapnum, þar sem enginn fæst á
heimilið, meðan konan er heima.
Heimilisfólk er, auk bóndans og kon-
unnar, 4 ung börn (2 annars staðar),
móðir bónda, gamalær, systir bónda,
heilsuveil. Ástandið þvi hörmulegt.
Vopnafj. Psychosis manio-depres-
siva 1.
Hafnar. Psychosis manio-depressiva
2 sjúklingar.
Laugarás. Maður varð skyndilega
óður. Gekk hann um sveitina með
hamar á lofti og gerði sig liklegan til
alls. Simaði ég þegar á Klepp og bað
um pláss. Fannst mér yfirlæknirinn í
fyrstu ekki taka því fjarri, þar til ég
lét þess getið af hendingu, að hann
hefði tvisvar fengið raflostmeðferð í
fyrri köstum, sem ekki voru eins
svæsin, með allgóðum árangri (heil-
brigður ca. ár hvort sinn eftir lost).
Eftir það taldi hann öll tormerki á