Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1951, Blaðsíða 87
85 —
1951
Með langmesta móti sltráð af lungna-
bólgu, einkum kveflungnabólgu, og
stendur eflaust í sambandi við það, að
inflúenza, mislingar og kikhósti gengu
samtímis á árinu. Eins og við er að
búast, hefur lika lungnabólgudauði
orðið með meira móti, þó ekki i hlut-
falli við skráð tilfelli, eða 4,3% (1950:
5,7%).
1. Um kveflungnabólgu:
Hafnarfí. Að sjálfsögðu voru nokkur
tilfelli af hvoru tveggja lungnabólg-
unni, en þó færri en við mátti búast,
er bæði kikhósti og mislingar voru á
ferð. Má vafalaust þakka það súlfa- og
pensilinlyfjum og nú síðast aureomy-
cíni, sem einkum hefur reynzt vel
við viruspneumonia, eða þeim tilfell-
um, sem pensilin verkar ekki á.
Akranes. Gerði vart við sig með
meira móti i febrúar og fram í júli.
Er það ekki að undra, þar sem kvef-
sótt, inflúenza og mislingar gengu
þessa mánuði.
Ólafsvíkur. Nokkuð stinga lungna-
bólgutilfelli í inflúenzufaröldrum i
stúf hver við önnur.
Stykkishólms. Sjaldgæf á árinu,
þrátt fyrir inflúenzu- og kveffaraldur.
Enginn dó.
Búðardals. Flest tilfellin upp úr
mislingum. Aldraður maður dó úr
veikinni, þrátt fyrir nýjustu kemo-
therapeutica.
Reykhóla. í sambaudi við mislinga-
faraldur. Batnaði yfirleitt fljótt við
antibiotica, aðallega pensilín og
aureomycín.
Þinyeyrar. Gamall maður lézt úr
kveflungnabólgu, enda með bron-
chiectasiae pulmonum og þráláta
bronchitis.
Flateyrar. Sjúklingarnir náðu sér
fljótt og vel við pensilinmeðferð.
ísafí. Aldraður maður fékk upp úr
kveflungnabólgu brjósthimnubólgu og
var lengi veikur, en batnaði.
Hólmavíkur. Talin banamein gam-
allar konu, sem lengi hafði þjáðzt af
hefst, áður en þau eru fjögurra vikna), skráð
sérstaklega (763); lungnabólga i eldra fólki er
skráð í fjórum flokkum eftir tegundum veik-
innar (490—493). Af 75 dauðum úr lungna-
bólgu, var um ungbörn að ræða i 4 tilfellum.
bronchitis asthmatica. Nokkur tilfelli
i viðbót, flest upp úr kvefpestum.
Batnaði öllum vel við pensilingjöf,
nema einni gamalli lconu, sem lá há-
febríl i hátt á aðra viku. Fékk loks
aureomycín og fór þá smábatnandi.
Hvammstanga. Væg.
Blönduós. Lungnabólga aðallega i
sambandi við kvefpestina framan af
sumri og' skiptist nokkurn veginn jafnt
milli catarrhalis og crouposa.
Sauðárkróks. 6 taldir dánir úr kvef-
lungnabólgu, og má því segja, að hún
hafi verið skæð. Þeir, sem dóu, voru
að vísu veiklaðir fyrir. Voru það 2
áttræð gamalmenni, sem fengu lungna-
bólgu upp úr kvefi, 56 ára maður, er
lengi hafði þjáðzt af brjóstveiki og
asthma og komst ekkert fyrir mæði, 48
ára gömul kona, aðframkomin af par-
kinsonismus, 18 daga gamall drengur,
sem veiktist upp úr kvefi, og loks
astlimaveikur drengur með mislinga,
eins og áður er getið.
Hofsós. Örfá tilfelli á árinu. 1 dauðs-
fall, 90 ára kona.
Akureyrar. Með minnsta móti á
þessu ári. Hefur gengið yfirleitt vel
að lækna hana með pensilíngjöf eða
aureomycíni, er pensilín dugði ekki.
Vopnafí. Væg.
Bakkagerðis. 10 daga gamalt barn
(tvíburi) hafði fæðzt ófullburða (ca.
4 vikum fyrir tímann). Dó það úr
veikinni. Óðrum batnaði af pensilíni.
Seyðisfí. Öllum batnaði fljótt af
antibiotica.
Nes. Flest upp úr inflúenzufaraldr-
inum og eftir mislinga. Næstum ein-
göngu notað pensilín, nema við fjar-
lægari sjúklinga, sem fengu súlfalyf
(mest súlfacombín og -diazin).
Búða. Flest tilfellin i sambandi við
inflúenzufaraldur og kvefsóttir.
Vestmannaeyja. Með mesta móti,
aðallega i sambandi við inflúenzuna.
Eyrarbakka. Nokkur tilfelli, en
sennilega fleiri en vitað var um, þvi
að ekki er fátítt að nota súlfalyf gegn
þungu kvefi og það án ráðlegginga
læknis.
Laugarás. Var nokkur í kjölfar far-
sóttanna, og koma þar víst ekki öll
kurl til grafar. 2 gamlar konur eru
taldar dánar, önnur úr inflúenzu, hin