Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Blaðsíða 8
6
suma daga. Engin frost komu þó í mánuðinum. Síðast í mánuðinum gekk
vindur til suðausturs og suðurs og hlýnaði heldur. Grasvöxtur á túnum
var orðinn töluverður um miðjan mánuðinn, og hófst sláttur hér hinn
18. júní.
Júlí. Tíð var mjög hagstæð allan mánuðinn, átt suðlæg, mjög lítil úr-
koma og mikil hlýindi. Meðalhiti sólarhringsins var fimmtán dægur 13°
C og meira. Hámarki náði hitinn þann 24., en þá var meðalhiti sólar-
hringsins 23.4°, og mun það vera algjört einsdæmi. Úrkoma var sáralítil
og heyskapartíð því einmunagóð, og var fyrri slætti lokið hér þann 23.
Er á leið mánuðinn, tók jörð mjög að þorna og gerði þá vatnsskortur vart
við sig. Garðar þornuðu mjög, og stóð þurrkurinn bæði garðavexti og
endurvexti á túnum mjög fyrir þrifum, enda var jafnan sunnan- og suð-
vestan strekkingur nótt sem dag. Meðalhiti mánaðarins var 13.3°, en úr-
koman um 21 mm.
Ágúst. Sunnan- og suðvestan-átt hélzt allan mánuðinn, lítil úrkoma,
stundum allhvasst, og mátti heita að þurrkur stæði nú öllum gróðri fyrir
þrifum, einkanlega í görðum, og há spratt mjög lítið á túnum, nema þar
sem mjög snemma var slegið og borið á. Matjurtir uxu hér mjög vel, enda
var aðstaða til að vökva þær. í byrjun mánaðarins var byrjað að selja bæði
blómkál og hvítkál og má telja, að það hafi verið 2—3 vikum fyrr heldur
en venjulegt er.
September. Sunnan- og norðvestanátt hélzt fram til 10. sept., og var
hlýtt í veðri og gerði nokkra úrkomu af og til. Þann 11. gekk vindur til
norðurs og kólnaði heldur í veðri, en veðrátta var þó yfirleitt hlý allan
mánuðinn, og lágmarksmælir sýndi aldrei frost. í lok mánaðarins gekk
vindur aftur til suðurs og suðvesturs. Síðari hluta mánaðarins gerði tals-
verða úrkomu af og til. T. d. rigndi 9.2 mm þann 21. Tóku tún töluvert
að vaxa í mánuðinum, og var góð beit þar sem borið var á á milli slátta.
Kartöfluuppskera var víða léleg vegna þurrka í júlí og ágúst.
Október—desember. Suðlæg átt hélzt að kalla allan október og fremur
milt veður, en frost var þó annað slagið, einkum síðari luta mánaðarins.
Snjó festi ekki teljandi og hægt var að vinna að jarðvinnslu fram undir
þann 25. Úrkoma var fremur lítil.
Fyrrihluta nóvember var átt vestlæg og norðlæg og hríðarhraglandi
suma daga eða slydda. Flesta daga var þó frostlaust, og tók snjó jafnóðum
og hann kom. Var jörð snjólaus og þíð flesta daga fram að 26. nóv., en þá
gerði frost og dálítið föl. Þann 29. komst frostið niður í 13°.
í desember var norðan- og norðvestanátt og allmikil frost allan mán-
uðinn. Ennfremur snjóaði mikið eftir þann 20., og var kominn allmikill
snjór á láglendi og nokkrar samgöngu-truflanir. Fjallvegir urðu allir ó-
færir, er kom fram í mánuðinn.