Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Blaðsíða 105
103
Framkvæmdir 1956.
Gengið var nú frá 8 lia lands í Haganum, það fullunnið og sáð í gras-
fræi. Var það allt unnið með David Brown draganum og jarðtætara, og
fékkst landið þannig ágætlega mildið og vel slétt. Þá var og um haustið
tætt allmikið af smáþýfðu landi á nesinu meðfram bökkunum, sem látið
verður gróa upp. Keypt var mikið af girðingarefni og staurar settir um-
hverfis ræktunina í Tanga og Haganum og víðar, en eftir er að girða á
þá. Girðingarefni var og flutt á Jökuldal, til að korna upp girðingarhólfi
allstóru til að geyma í fé við rúning í Rana.
Þá var grafið eftir vatni í brekkunni ofan við bæinn hjá núverandi
vatnsbóli, til að reyna að bæta úr vatnsskorti þeim, sem ávallt er í þurrka-
tíð síðari hluta sumars.
Settar voru 2 vandaðar timburbrýr á skurði á nesinu. Önnur á aðal-
skurðinn í Melakróknum og hin á áveituskurðinn yzt, þar sem hann er
stíflaður, þegar uppistaða er sett á nesið. Þessar brýr stytta rnjög leið við
heyflutning á vagni og dráttarvél af nesinu til fjárhúsanna og eru einnig
nauðsynlegar fyrir sauðféð. Þær eru 13 fet á breidd, en ekki nægilega
traustar fyrir vörubíl.
Til þessara framkvæmda allra var varið um 30 þúsund krónum. Fjár-
liúss- og hlöðuþak var nú málað og hlaðan lituð með Snowcemi. Gengið
var frá umhverfi hlöðu með því að steypa dálítinn veggarm frá súgþurrk-
unarklefa og hlaða úr snyddu mikla kanta út frá hlöðu við báða stafna.
Ytri hurðir voru settar á fjárhúsin til að byrirbyggja innfenni, og fleiri
endurbætur og aðgerðir framkvæmdar. Til þessa alls var varið 15 þús-
und krónum.
Búið.
Það stækkaði nokkuð á árinu. Búféð var í árslok: 5 kýr, 2 geldneyti,
1 kálfur, 4 hestar, 489 ær, 142 gemlingar, 12 hrútar og 2 sauðir, eða
sauðfé samtals 645. Keypt voru á árinu 48 lömb til tilrauna samkvæmt
samningi við Búnaðarsamband Austurlands, sem síðar verður greint frá
nánar.
Heyfengur var litlu meiri en sumarið áður, og varð ekki meiri að
rúmmáli, er sigið var í heygeymslum, en nokkru meira var sett í vothey
nú, eða ca. 200 hestar, vetrarvegnir, miðað við þurrhey. Heyfeng má
áætla 1100—1200 hesta úr vetrargeymslu. Fyrningar um vorið voru 240—
250 hestar. Slægjur voru leigðar með meira móti og gáfu slægjutakar upp
að hafa heyjað rúmlega 220 hesta. Kartöfluuppskera nam ca. 45 tunnum,
auk úrgangs, og var uppskera sæmileg í eldri görðunum. Káluppskera