Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Blaðsíða 103
101
Búið.
Það stækkaði nokkuð á árinu. Nautgripir eru að vísu fáir, og aðeins
til að fullnægja mjólkurþörf á heimilinu. Sauðfé í árslok var: Ær 456,
lömb 124, hrútar og sauðir 13. Keyptur var á árinu dráttarhestur.
Uppskera og afurðir.
Slægjur voru leigðar og heyjað þannig um 150 h. Heyfengur var svip-
aður að magni og undanfarið, eða um 1000 teningsmetrar, er sigið var í
heygeymslum. Fyrningar um vorið voru áætlaðar um 280 hestar. Upp-
skera garðávaxta var fremur lítil. Kartöflur spruttu í meðallagi, en sett
var niður með minnsta móti. Uppskera nam rúmlega 30 tunnum. Kál-
maðkur eyðilagði að mestu káluppskeru, og rófur voru aðeins í tilraun-
um og nokkuð skemmdar af maðki. Mjólk framleidd á árinu var 10 þús.
kg. Slátrað var um haustið 420 dilkum með 14.44 kg meðalþunga, 13
kindum veturg'mlum og 36 fullorðnum. Seldir voru til lífs 18 lambhrút-
ar og 4 hrútar veturgamlir. Vanhöld á sauðfé voru nokkur. 4 ær fórust úr
garnaveiki, 2 fórust af Hvanneyrarv., 3 ær og 5 geml. um veturinn af
óþekktum orsökum og 4 l‘mb um haustið. Þá fórst og í ársbyrjun hrútur
sá, er keyptur var frá Holti í Þistilfirði haustið áður, úr Hvanneyrarveiki.
Vanheimtar um haustið 3 ær. Þess má geta, að 7. marz fannst veturgömul
ær, eign búsins, inn undir Vatnajökli, sem talin var vanheimt haustið
áður. Ull var alls 1147 kg. Meðalþungi lífgimbra um haustið tæp 40 kg.
Slátrað var um veturinn 1 nauti, rúmlega 2 ára, kjöt 220 kg, 1 kýr fórst
úr krampadoða (steinefnaskorti) í ársbyrjun, og var þá fengin að láni
kýr um 4ra mánaða skeið. 4 ungkálfar voru felldir og 1 alinn. Um haustið
var slátrað fullorðinni hryssu, er keypt var fyrir nokkrum árum til að
eiga folöld, en það tókst ekki. Kjöt af henni vóg 283 kg og mör 53 kg.
Mun það vera óvenjulegur vænleiki. Þá má geta þess að eins og árið áð-
ur voru leyfi veitt fyrir hreindýraveiðum. Fékk búið 3 dýr. Voru 2 þeirra
felld í september, en 1 í árslok. Kjötið af þeim vóg samtals 130 kg. Þetta
voru ung dýr og kjötið ágætlega gott, og mun betra en árið áður. Dýrin
voru felld af skyttum í Fljótsdal, er fóru til veiðanna, er þeirra var von
sem skemmst frá á heiðinni (í austlægri átt) og var því lítil fyrirhöfn nú
að ná þessum afurðum.
Fólkshald.
Það er nú svipað árlega. í heimili er 12—15 manns að sumri, en 7 að
vetri. Kona mín var ráðskona allt árið og ein stúlka auk hennar um vet-
urinn, en 4 um sumarið. 3 karlmenn voru auk mín um veturinn, en 4—5