Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Qupperneq 11
9
ágætistíð að kalla allan mánuðinn, og var meðalhiti í september 8.1°, eða
0.1° meiri en í ágúst. Sunnan- og suðvestanþíðviðri voru óslitið fram að
þeim 20. Gekk þá í óþurrkakafla og stóð svo til mánaðamóta, en veður var
fremur hlýtt, nema síðustu þrjá dagana kólnaði nokkuð. Frost kom þó
aldrei í mánuðinum. September bætti því dálítið upp hina köldu veðráttu
sumarsins, en kartöflugras náði sér ekki eftir frostin í ágúst, og var því
mjög lítil uppskera, og sums staðar var ekki tekið upp úr görðum. Hér
var uppskeran frá einfaldri til sex- til sjöfaldri í beztu görðunum.
Október til desember. Hlýindi héldust allan októbermánuð. Frost var
þó stundum um nætur, en aðeins tvo daga var meðalhiti sólarhringsins
undir 0°. Meðalhiti mánaðarins var 4°. Úrkoma var nokkur, en snjó festi
aldrei, hvorki á láglendi né á fjallvegum hér norðanlands. Hlýindi héld-
ust áfram óslitið fram að 24. nóv., og var enn hlýrra en í október, því að
meðalhitinn var 4.8°. Átt var stöðugt suðlæg, og úrkoma var lítil.
Jarðvinnsla og önnur útistörf gátu haldið áfram allt fram að 25. nóv.,
en þá kólnaði í veðri og gekk í hríðarveður og festi nokkurn snjó. Með
desemberbyrjun varð tíð meira umhleypingasöm. Þíðviðri og minni háttar
frost skiptust á. Enginn snjór var þó til fyrirstöðu, hvorki á láglendi né á
fiallvegum hér norðanlands. Var farið á bílum í desember bæði austur í
Norður-Þingeyjarsýslu og jafnvel austur á Hérað. Þann 20.—26. var þíð-
viðri, og mátti heita að láglendi væri snjólaust og svellalaust 25. des., enda
var þá meðalhiti sólarhringsins 6.4°. Úrkomulaust var að kalla frá 20.—
31. desember.
Það, sem í heild má segja um veðurfarið 1956 er það, að janúar var
kaldur og nokkuð snjóasamur, en febrúar, marz og apríl fremur mildir.
Maí var í meðallagi hlýr og hagstæður voryrkju, en júní, júlí og ágúst
með afbrigðum kaldir og þurrir, og var því vöxtur alls gróðurs lítill,
nema þar sem mjög vel var séð fyrir áburði. Frost í júlí og ágúst gerðu
út af við kartöfluræktina. September, október og nóvember voru ein-
munagóðir, bæði hlýir og úrkoma lítil, og má því segja að haustið og fyrri-
hluti vetrar hafi bætt mjög upp hið kalda sumar.
2. Tilraunastarfsemin.
Tilraunastarfsemin hefur verið með líku sniði og undanfarin ár, nema
hvað nokkuð hefur verið aukið við tilraunirnar bæði í túnrækt og garð-
rækt. Þá hefur verið gerð skipuleg rannsókn á uppskeru hinna ýmsu til-
rauna. Hefur þar einkum verið rannsakað kalíum, fosfór, calcium og
eggjahvíta. Þessar rannsóknir hafa verið gerðar á Atvinnudeild Háskól-
ans í samráði við dr. Björn Jóhannesson. Er árangur þessara rannsókna
birtur ásamt uppskerutölum fyrir árin 1954 og 1955, árið 1956 er ekki