Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Blaðsíða 30
28
Meðaltal þriggja ára, 1954—1956.
Þurrefni Sterkja Alls Söluhæfar Hlutföll
% % hkg/ha hkg/ha söluhæfar
a. 2 kartöflur á metra 19.9 10.2 163.9 138.1 100
b. 3 kartöflur á metra 19.9 11.3 206.5 172.4 125
c. 4 kartöílur á metra 19.7 11.0 238.9 189.9 138
d. 5 kartöflur á metra . 20.0 11.1 258.5 199.6 145
e. 3x2 kartöflur á metra . . 19.4 11.1 277.8 204.9 149
Meðaltal þessara þriggja ára sýnir, að e-liður gefur mesta uppskeru,
bæði hvað snertir heildaruppskeru og af söluhæfri uppskeru.
Ef miðað er við nettó-uppskeru og gert ráð fyrir, að meðalþyngd út-
sæðiskartaflanna sé 40 grömm, er uppskeran að meðaltali þessi þrjú ár:
a-liður .......................... 138.1 ~ 13.3 = 124.8 hkg/ha söluhæfar
b-liður ............................. 172.4 4- 20.0 = 152.4 - -
c-liður ............................. 189.9 -i- 26.7 = 163.2 - -
d-liður ............................. 199.6 = 33.3 = 166.3 - -
e-liður ............................. 204.9 = 40.0 = 164.9 - -
Þessar tölur sýna, að þegar frá er dregið útsæðið, gefur d-liður mesta
uppskeru eða þar sem fimm kartöflur eru á metra, en e-liður, eða sex
kartöflur á metra gefa meiri uppskeru heldur en c-liður, sem hefur fjórar
kartöflur á metra. Hins vegar er munurinn lítill á milli c-, d- og e-liða, og
er því ekki hægt að segja, að um verulegt fjárhagsatriði sé að ræða.
Rétt er þó að geta þess, að í d- og e-lið eru kartöflurnar að jafnaði
smærri, en það hefur sýnt sig, að þær flokkast betur, vegna þess að þær
springa miklu síður. Má því segja að þessi tilraun bendi til þess, að rétt
sé að setja Gullauga þétt niður, ca. fimm kartöflur á metra, þar sem 60
cm eru á milli raða.
Enginn teljandi munur er á þurrefni og sterkju í % á milli liðanna.
Áburður á 100 m2 hefur verið 20 kg garðaáburður. Bil milli raða 60
cm og kartöflunum stungið niður.
Tilraun með vaxtarrými á Rauðum íslenzkum, nr. 33 1956.
Árið 1956. Þurrefni Sterkja Smælki Alls Söluh. Hlutföll
% % % hkg/ha hkg/ha söluhæfar
a. 2 kartöflur á metra............. 14.4 7.0 79 33.3 6.9 100
b. 3 kartöflur á metra............. 14.9 6.0 75 61.1 15.3 222
c. 4 kartöflur á metra............. 14.8 6.8 65 70.8 25.0 363
d. 5 kartöflur á metra............. 13.9 7.0 73 61.1 16.7 243
e. 3 x 2 kartöflur á m.......... 14.2 7.2 77 65.3 15.3 222