Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Page 71
69
3. Tilraunir með grasfræblöndur.
Tilraun með grasfræblöndur, nr. 14 1953.
Það var skýrt frá eftirfarandi fræblöndunartilraun í síðustu skýrslu
á bls. 69, og vísast til þess um fyrirkomulag og sáðtíma (6. júní 1952).
Árlegur áburður: 60 kg K, 90 kg P og 67 kg N á ha (bæði árin).
Sláttutímar voru árið 1955 10. júlí og 6. sept., en 1956 15. júlí og
28. ágúst.
Niðurstöður tilraunanna 1955 og 1956 og meðaltal 4 ára fer hér á
eftir:
Fley hkg/ha Meðaltal Hlutföll Þurrefni %
1955 1956 4 ára föll P K
l'ræblanda nr. i 50.7 62.5 59.4 100 0.32 0.32
l'ræblanda nr. 2 54.4 62.3 56.0 94 0.35 0.32
Fræblanda nr. 3 51.3 52.9 57.7 97 0.29 0.35
F'ræblanda nr. 4 46.9 51.5 54.3 92 0.33 0.32
Fræblanda nr. 5 71.5 55.9 55.7 94 0.27 0.35
Fræblanda nr. 6 55.0 57.7 56.5 95 0.30 0.29
F'ræblanda nr. 7 62.3 61.7 55.0 93 0.30 0.39
Ca og P var rannsakað í heyi úr 1. slætti 1955, og varð lítill munur á
milli fræblandna hvað þessi steinefni snertir. Af þurrefnismagni varð Ca
0.29-0.39%, og innihald af P 0.29-0.35%.
Segja má, að þessi tilraun komi ekki með nein ný sannindi. Stórvaxnari
gróðurinn gefur oftast heldur nreira hey en þar sem lágvaxnar og skrið-
ular tegundir vaxa.
Ný frœblöndunartilraun á mýri, nr. 50 1955.
Sáð var í tilraunina 23. júní 1955 án skjólsáðs. Mýrin var forræktuð
með belgjurtagrænfóðri í tvö ár á undan sáningu fræsins og vel molduð.
Sáðmagnið var 35 kg á ha.
Áburður sáðárið 40 kg garðnitrophoska.
Áburður 1956: 75 kg K, 90 kg P og 67 kg N. Borið var á 28. maí.
Hér er verið að reyna fjórar ódýrar fræblöndur í samanburði við mýr-
arfræblöndu S.Í.S.
Reitastærð var 3x11 =33 m2. Uppskerureitir 2 x 10 = 20 m2 og
samreitir 4.
Tilhögun og árangur sumarið 1956 varð eins og hér greinir: