Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1958, Side 80
IV. Skýrsla Tilraunastöðvarinnar á Skriðuklaustri
árin 1955 og 1956.
JÓNAS PÉTURSSON, ÓL.4FUR JÓNSSON, POUL WINTHER
1. Veðurfar.
a. Veðráttan 1955.
Jan.—apríl. Vetur frá nýjári til vors var mjög þurrviðrasamur og snjó-
laus. Hörð frost voru í jan. og febr. og hafa þeir mánuðir ekki verið svo
kaldir í fjölda ára og e. t. v. ekki síðan 1918. Frost gekk mjög djúpt í jörð
og frostsprungur urðu víða. Vatn fraus í leiðslum á flestuin heimilum í
Fljótsdal. M. a. fraus í vatnsleiðslum í fjárhúsinu á Skriðuklaustri 15.
febrúar og þurfti eftir það að aka vatni þangað, ef brynnt var inni. Enn
fremur fraus í bæjarvatnsleiðslu nokkru síðar. Var þítt úr henni með
rafstraum 30. marz. í þessum miklu frostum kom talsverð héla í þak
fjárhúsanna, einkum tvisvar, enda voru aðalfrostakaflarnir 2. En hún
eyddist þannig að hún féll niður er þiðnaði og gerðist það mest á stuttri
stund. Bleytti það nokkuð krær, þar sem féð gengur á taði. Vatnsleiðslan
í fjárhúsinu sprakk á 2 stöðum og var allmikil fyirhöfn í haust að finna
bilanirnar og grafa upp til viðgerðar.
Maí—sept. Marz og sérstaklega apríl voru góðir og var gróður að byrja
í lok apríl. í maíbyrjun voru góðir dagar, en hörku kuldakafli um hálfs-
mánaðartíma frá 8. maí. Varð nokkur snjókoma um miðjan mánuðinn og
allmikil frost. Festi þó varla snjó í Fljótsdal en úti á Héraði kom meiri
snjór að margra sögn, en komið hafði undanfarinn vetur. 20. maí hlýnaði
mjög vel og var öndvegistíð, það sem eftir var af maí. Sumarið, júní—
september, var afbragðs gott. Síðari hluta júní voru nokkrar úrkomur og
aðfaranótt 29. júní óvenjuleg stórrigning. Hafði þetta mjög mikla þýð-
ingu fyrir gróður og grasvöxt í þurrkum og hitum júlímánaðar, sem voru
með eindæmum og veðurblíða slík, að naumast verður betra kosið. Ágúst
var tæplega eins heitur og júlí, en miklir þurrkar, þrálátir suðvestan og
vestan vindar, oft nokkuð til óþæginda við heyskap, en sjaldan varð þó
teljandi heytjón. Jörð var mjög tekin að líða af þurrki og bruni víða í
jörð og vatnsból þorrin. Neyzluvatn þraut með öllu í vatnsbóli Skriðu-
klausturs í ágústlok, en kom aftur eftir miðjan septeinber. Góða tíðin