Saga - 2013, Blaðsíða 30
nokkuð og baðst friðar og bauð ærna peninga til lífs sér. en það tjáði
eigi og hvatti Agnes Friðrik fram. kom svo að Natan fékk fullan
bana að þau ætluðu því hann rotaðist öðru sinni.“70
Í frásögnum Tómasar á Þverá og Brynjúlfs frá Minna-Núpi kem-
ur vorm Beck ekkert við sögu morðnæturinnar og þar tókst Friðriki
ekki að rota Natan. Friðrik sló vissulega til hans með hamrinum og
miðaði á höfuðið „en Natan hafði brugðið handleggnum yfir ennið
og kom höggið á hann svo hann brotnaði. vissi Natan þá hvað um
var að vera; bað þau vægðar og bauð allt sitt fé.“ en Agnes kvaðst
engu loforði hans treysta og álasanir myndu ekki vægja honum. Þau
lögðu síðan „til hans með hnífunum en hann snaraðist fram úr rúm-
inu; réðust þau þá á hann bæði og stungu hann sem tíðast svo hann
leið í ómegin; hugðu þau hann dauðan. Þá vitkaðist hann aftur til
hálfs og mælti nokkur orð í óráði. Þau stungu hann þá enn marga
stingi og kom svo að þau gengu af honum dauðum.“71 Útgáfa
espólíns og Gísla var öðruvísi; hjá þeim töldu Agnes og Friðrik að
Natan væri allur eftir annað rothöggið. Svo var ekki því hann
„raknaði … nokkuð við úr rotinu og mælti óráð; þeim varð felmt
við, ætluðu hann gengi aftur og eggjaði Agnes þá mjög og kvaðst
sjálf skyldi að vinna ef Friðrik æðraðist; greip Friðrik þá hníf og
stakk hann stingi marga en sumir segja að Agnes ynni og á honum
og það hyggjum vér og satt vera.“72
Meðan á átökunum stóð var Sigríður frammi í bæ með lítið barn
sem var í fóstri hjá Natani. Tómas á Þverá segir að þetta hafi verið
Súsanna, barn sem Natan og Rósa Guðmundsdóttir (Skáld-Rósa)
áttu saman þótt Rósa væri gift öðrum, en Brynjúlfur nefnir ekki nafn
stúlkunnar (Súsanna dó 1826)73. Gísli segir hins vegar í Natanssögu
sinni að barnið hafi Natan „tekið af fátækum að mælt er“ en í
eggert þór bernharðsson28
71 Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi, Saga Natans Ketilssonar, bls. 104–105. —
Sbr. Lbs. Lbs. 1933 8vo. Tómas Guðmundsson, Sagan af Natan ketilssyni, bls.
82–83.
72 Gísli konráðsson, Húnvetninga saga 2, bls. 658–659. — Sbr. Lbs. Lbs. 2663 4to.
Jón espólín, Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 107; Lbs. JS. 123 8vo. Gísli
konráðsson, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 130–131; Gísli konráðsson, Sagan
af Natan Ketilssyni, bls. 57.
73 Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi, Saga Natans Ketilssonar, bls. 105. — Sbr.
Lbs. Lbs. 1933 8vo. Tómas Guðmundsson, Sagan af Natan ketilssyni, bls. 83.
74 Lbs. JS. 123 8vo. Gísli konráðsson, Sagan af Natani ketilssyni, bls. 129; Gísli kon -
ráðsson, Sagan af Natan Ketilssyni, bls. 56; Gísli konráðsson, Húnvetninga saga 2,
bls. 658; Lbs. Lbs. 2663 4to. Jón espólín, Húnvetninga saga, annar hluti, bls. 106.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:03 Page 28