Saga - 2013, Blaðsíða 82
þriðja áratuginn. Þá sést berlega sá munur sem var á þjálfun, mögu-
leikum og veruleika kynjanna. Þorsteinn Helgason (f. 1806) frá Mó -
eiðar hvoli var skólabróðir og vinur Páls og varð síðar eiginmaður
Sigríðar systur hans. Hann sigldi til kaupmannahafnar sumarið
1823 og skrifaði Páli ferðasöguna og helstu fréttir strax um haustið.
en vorið eftir, 17. apríl 1824, settist hann niður við að skrifa bréf
sem hann lauk 6. maí og sendi með vorskipi, alls 46 blaðsíður þar
sem hann lýsir þessum fyrsta vetri í kaupmannahöfn. Þetta er „ævi-
saga“ Þorsteins: „vil eg nú taka mér fyrst fyrir ad segja þér æfesögu -
ágrip mitt sidan eg skrifade þér Bréfed med Póstskipinu í haust“.75
ekki er óalgengt í bréfum að bréfritarar tali um að rekja „ævisögu“
sína síðan síðast en þetta óvenjulanga bréf gengur lengra en flest
vegna tímalengdarinnar sem það nær yfir og markvissra lýsinga á
daglegu lífi og viðburðum. Og sem slíkt er það vitnisburður um hið
margþætta form sem sendibréf eru, því eins og Stanley, Salter og
Dampier hafa rætt í nýlegri grein er sendibréf þrátt fyrir allt ekki
það afmarkaða og skýra form sem svo oft hefur verið gert ráð fyrir,
heldur liggur það á mörkum nokkurra greina (e. genre) eða frá -
sagnar forma, t.d. sjálfsævisögulegra skrifa.76
Þorsteinn á ekki í vandræðum með að skrifa. Þótt hann tali um
„klór“ í fyrra bréfinu er það vegna þess hve hratt hann þarf að
skrifa, hann er fallinn á tíma. Orðin flæða úr pennanum án svita-
kasta; hann er eins og hinir strákarnir sem komu úr íslenska fásinn-
inu í höfuðborgina, hálfringlaður til að byrja með en nær sér fljótt á
strik. Tekur próf og lærir, kaupir sér ný föt því ekki þýddi annað en
tolla í tískunni: „Jeg hefe fenged mer bláan kjól og Buxur. Silki veste,
Stígvel og hatt“, skrifar hann í fyrra bréfinu og segir aftur frá kaup-
unum í síðara bréfinu. Þá hefur bæst við frakki og úr, einnig bækur
og „Chattoll“. Og stúdentarnir þurftu að æfa með lífverði konungs
um tíma og lærðu að „bera Bissuna og kordann“ í þrjá tíma daglega
frá 20. október til 12. nóvember. Þótt Þorsteinn hefði þreyst á þessu
„krókavafstri“ fannst honum „í millum gaman og gott til ad læra ad
bera sig, sem og til að fá sér motion.“ Hann skrifar um námið og
erla hulda halldórsdóttir80
75 Lbs. Lbs. 2415 b 4to. Þorsteinn Helgason til Páls Pálssonar 27. september 1823
og 17. apríl 1824. Aðalgeir kristjánsson birtir hluta úr langa bréfinu frá 1824 í
bók sinni Nú heilsar þér á Hafnarslóð. Ævir og örlög í höfuðborg Íslands 1800–1850
(Reykjavík: Nýja bókafélagið 1999), bls. 155–156.
76 Liz Stanley, Andrea Salter og Helen Dampier, „The epistolary Pact“, bls. 264,
269 og 276–277.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 80