Saga - 2013, Blaðsíða 107
staði.“35
enda þótt konur trúlofuðust hermönnum, var það iðulega skráð
svo í bókum Jóhönnu að þær teldu sig eða segðust trúlofaðar.36
Þessar trúlofanir entust vissulega oft stutt, og ekki er að efa að í
umræddum flokki var að finna bæði lauslátar og drykkfelldar
konur. en ótal dæmi sanna að Jóhanna og samstarfsmenn hennar
höfðu ríka hneigð til að vega að mannorði kvenna ef þær sáust með
hermönnum. Markmiðið var augsýnilega að telja yfirvöld á að grípa
til aðgerða gegn þeim og lítið þurfti til að komast á blað hjá
Jóhönnu.
Nítján ára stúlka af góðu foreldri var til dæmis skrásett vegna
þess að hún sagði Jóhönnu að hún hefði, að ósk móður sinnar, hitt
setuliðsmann að máli hjá móðurbróður sínum. Önnur stúlka, á þrí-
tugsaldri, var skráð vegna þess að hún og samstarfskona hennar
þáðu boð á hermannaball einar starfsstúlkna hjá Landssímanum,
sem átti mikil viðskipti við herinn. Fyrrnefnd stúlka var kunn að
skapfestu og reglusemi. ekki er getið um nein önnur skipti hennar
við hermenn, frekar en nítján ára stúlkunnar, og báðar giftust Ís lend -
ingum.37
Þriðja konan, á fertugsaldri, var skráð fyrir að undirrita boðskort
á dansleik hjá Anglia, vináttufélagi Íslendinga og Breta 1941, en hún
var einnig sögð umgangast hermenn. konan hafði starfað á sérsviði
sínu í englandi. Stuttu eftir dansleikinn giftist hún Íslendingi og átti
framundan heillaríkan starfsferil í Reykjavík.38
Dóttir eiganda skemmtistaðarins þar sem dansleikur Anglia fór
fram var skráð fyrir að hafa virst „áberandi kunnug hermönnum“,
en hún hafði að nokkru alist upp í Bandaríkjunum. Stúlkan bjó í
húsinu þar sem skemmtistaðurinn var. vandséð er hvernig þessi
heimasæta á þrítugsaldri hefði getað komist hjá því að kynnast her-
mönnum, sem voru svo að segja inni á gafli á heimili hennar.39
Jóhanna knudsen komst síðar svo að orði að „fjöldi kvenna frá
hinum svokölluðu betri heimilum bæjarins hagaði sér síst betur
hvað hermannafélagsskap snerti“ en ólögráða stúlkur og vandræða -
konur, sem stunduðu vændi eða ólifnað. Hins vegar hefði ekki
ástandið og yfirvöldin 105
36 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 46, 51 og 57. A/1-4. Nr. 1.
37 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 84 og 122.
38 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 121.
39 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 120.
40 ÞÍ. Ue. B 1/25. Jóhanna knudsen til Ólafs Lárussonar 13. janúar 1944.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 105