Saga - 2013, Blaðsíða 137
legum sýkilberum“ um sveitir landsins, þar sem helst væri „að
vænta heilbrigðs blóðs“ til að verja þjóðarlíkamann, helsjúkan af
siðspillingu.138 víst er að þær stúlkur sem úrskurðaðar voru til hæl-
isvistar skynjuðu það sem óverðskulda refsingu og óttuðust að vera
brennimerktar fyrir lífstíð. Gagnrýnendur þjóðernislegrar forsjár-
stefnu úr hópi kvenna færðu líka þungvæg rök fyrir því að
reynslan hefði sýnt, að varnaðarorð þeirra um ungmennaeftirlits-
löggjöfina 1941–1942, þ.á m. stofnun ungmennadóms og
kleppjárns reykja hælisins í Borgarfirði, hefðu reynst réttmæt.139
Í desember 1942 tók hér við völdum utanþingsstjórn undir forsæti
Björns Þórðarsonar lagaprófessors, framsóknarmanns. Með dómsmál
og menntamál fór einar Arnórsson hæstaréttardómari, fyrrverandi
lagaprófessor og einn virtasti fræðimaður landsins í lögum.140
Í október 1943 ákvað einar Arnórsson að leggja niður vinnuskól-
ann á kleppjárnsreykjum. Þetta gerði hann að eindregnum ráðum
forstöðumannsins, Benedikts Stefánssonar lögfræðings, sem taldi að
vist þar yrði stúlkum til tjóns fremur en gagns og skólarekstur á
staðnum vonlaus, eins og ljóst hafði verið frá því um vorið.141
Afleiðingin af ákvörðun ráðherrans var sú að dómarar í ungmenna-
dómi óskuðu eftir því að hann yrði lagður niður og barnaverndar-
ástandið og yfirvöldin 135
139 ÞÍ. UH (Ungmennahælið). D/1-1. Benedikt Stefánsson, uppkast að bréfi til
dómsmálaráðuneytis, 28. ágúst 1943; „Barnaverndarnefnd á að annast
ástands málin. Hæli og dómstóll óþarfi. Samtal við frú Guðrúnu Guðlaugs -
dóttur“, Morgunblaðið 26. janúar 1945, bls. 5; Laufey valdimarsdóttir, „Ófeðr -
uð börn“, Vísir 5. maí 1945, bls. 3 og 6; „Umræðurnar um ástandsmálin á
stúdentafundinum“, Alþýðu blaðið 26. september 1941, bls. 1–2.
140 einar Arnórsson (1880–1955) hafði verið síðasti ráðherra Íslands á heima-
stjórnartímanum í fyrri heimsstyrjöld, en síðar setið á Alþingi fyrir Sjálf -
stæðisflokkinn 1931–1932. Hann hafði meðal annars lagt lagalegan grunn að
sambandslagasamningnum, sem færði Íslendingum fullveldi 1918, og hlotið
þakkir kvenna fyrir að leiða farsællega í höfn frumvarpið um kosningarétt
þeirra 1915. (Bjarni Benediktsson, „Dr. Juris einar Arnórsson fyrrv. ráðherra“,
Morgunblaðið 6. apríl 1955, bls. 9.)
141 ÞÍ. DR. B/1040. einar Arnórsson, uppkast að símskeyti til Benedikts Stefáns -
sonar og Magnúsar Ágústssonar 30. september 1943. Ingimar Jóhannesson til
einars Arnórssonar 3. apríl 1943. UH. D/1-11. Benedikt Stefánsson, uppkast
að bréfi til dómsmálaráðuneytis 28. ágúst 1943.
142 ÞÍ. DR. B/1041. valdimar Stefánsson o.fl. til einars Arnórssonar 18. nóvember
1943. Sjá handskrifuð fyrirmæli dómsmálaráðherra um svar. Ue. B/1-23.
Símon Jóh. Ágústsson til dómsmálaráðuneytisins 16. desember 1943.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 135