Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 62

Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 62
 Fólk hringir stundum til að spyrja hvort það eigi lyf í lyfjagáttinni og biður okkur síðan um að hafa þau tilbúin svo það geti bara lagt fyrir utan, skotist inn til að sækja lyfin og síðan skotist aftur út í bíl. Margrét Birgisdóttir Reykjavíkur Apótek er eitt þekktasta vörumerki lands- ins. Lengi var starfrækt apó- tek undir því nafni á horni Austurstrætis og Pósthús- strætis. Það var lagt niður eftir nær 240 ára starfsemi. Árið 2009 var Reykjavíkur Apótek stofnað í Héðinshús- inu að Seljavegi. Eigendur Reykjavíkur Apóteks eru lyfjafræðingarnir Margrét Birgisdóttir og Ingibjörg Sigríður Árnadóttir ásamt mönnum sínum Ólafi Adolfssyni, lyfsala á Akranesi og Pétri Þorgrímssyni. Þær standa vaktina sex daga vikunnar og gæta þess að jafnan er hið minnsta önnur þeirra á staðnum. Þær leggja mikla áherslu á að þjónustan sé góð og persónuleg. Reykjavíkur Apótek er hverfisapótek vestast í gamla vesturbænum. Viðskipta- vinirnir eru margir hverjir fasta- kúnnar sem heilsað er með nafni þegar þeir mæta. „Við leggjum mikið upp úr því að veita góða þjónustu. Margrét hefur staðið vaktina frá 2009 og flestir viðskiptavinir apóteksins þekkja hana,“ segir Ingibjörg sem kom inn í fyrirtækið fyrir ári en þær eiga Reykjavíkur Apótek saman til helminga. Þær Margrét og Ingibjörg segja kosti fylgja því fyrir viðskiptavini að versla við sjálfstætt apótek í einkaeigu fremur en starfsstöð stórrar keðju lyfjaverslana. Hér fær fólk þjónustu frá starfsfólki sem það þekkir. „Eins og er vinna hér einungis konur,“ segir Margrét. „Það er nú ekkert með ráðum gert og við höfum haft karla í vinnu, en svona hittist á núna.“ Apótekið á horninu Segja má að Reykjavíkur Apótek sé eins konar „kaupmaðurinn á horn- inu“ apótek sem þjónar íbúum í gamla vesturbænum og þeim sem starfa þar í nágrenninu. Auk þess býður Reykjavíkur Apótek upp á heimsendingarþjónustu á lyfjum um allt höfuðborgarsvæðið. „Við sendum heim alla virka daga og eigum marga fasta við- skiptavini í okkar nærumhverfi en einnig á Völlunum í Hafnarfirði, í Mosfellsbæ og allt þar á milli,“ segir Margrét. „Það er keyrt út á hverjum degi frá klukkan 15 en þá leggur sendillinn af stað og tekur stóran hring“ bætir Ingibjörg við. Í tengslum við heimsend- ingarnar er talsverð umsýsla, pantanir teknar í gegnum síma eða tölvupóst og lyfin gerð klár til sendingar. Umsýsla í kringum lyfseðla hefur breyst mikið á síðustu árum. Í raun er gamli lyfseðillinn nær algjörlega horfinn og hefur vikið fyrir rafrænum lyfjaávísunum. Þegar þær Margrét og Ingibjörg voru að stíga sín fyrstu skref í fag- inu fór mestur tími lyfjafræðinga í að lesa úr mislæsilegum hand- skrifuðum lyfseðlum auk þess að taka við lyfseðlum í gegnum síma. Þá ritaði lyfjafræðingurinn upp lyfseðla samkvæmt fyrirmælum læknis og gat það tekið drjúga stund, jafnvel 1-2 klukkustundir á dag. Miklu minni tími fer í símann í dag en áður fyrr. „Fólk hringir stundum til að spyrja hvort það eigi lyf í lyfjagáttinni og biður okkur síðan um að hafa þau tilbúin svo það geti bara lagt fyrir utan, skotist inn til að sækja lyfin og síðan skotist aftur út í bíl. Þetta eru mikið fastakúnnarnir okkar sem eru farnir að þekkja okkur. Margrét og Ingibjörg námu báðar lyfjafræði við Háskóla Íslands. Að námi loknu hóf Margrét störf í gamla Vesturbæjarapóteki á Mel- haga og var þar í þrjú ár áður en hún flutti sig yfir til alþjóðlega lyfja- fyrirtækisins Eli Lilly sem var með stóra markaðsskrifstofu á Íslandi. Þar starfaði hún í sjö ár en síðustu árin var apóteksstarfið aftur farið að toga í hana. Margrét er einn af stofnaðilum Reykjavíkur Apóteks á Seljavegi og hefur hún verið lyfsali allt frá opnun í mars 2009. Ingibjörg útskrifaðist líka úr lyfjafræði við HÍ, aðeins á eftir Margréti. Eftir nám fór hún til starfa hjá Lyfju. Þar vann hún á nokkrum starfsstöðvum. Að því kom að leiðir hennar lágu til Eli Lilly þar sem þær Margrét urðu samstarfskonur 2004. Úr varð að þær hættu störfum hjá Eli Lilly um svipað leyti. Ingibjörg fór aftur yfir í Lyfju og var þar í tvö ár. Þá eignaðist hún sitt þriðja barn og fór út úr lyfjageiranum í meira en áratug í kjölfarið. Þegar börnin fóru að stálpast leitaði hugur Ingibjargar aftur út á vinnumarkaðinn og hún réð sig til Reykjavíkur Apóteks sem þá var komið í meirihlutaeigu Haga. Það varð úr að Ingibjörg var ráðin í nýja lyfjabúð í Skeifunni sem starfaði undir merkjum Reykja- víkur Apóteks. Margrét segir frá því að Hagar hafi svo ákveðið eftir einungis eitt ár að selja frá sér lyfjabúðir sínar og úr hafi orðið að Lyfja keypti útibúið í Skeifunni en þær Ingi- björg keyptu Reykjavíkur Apótek í Héðinshúsinu ásamt félaginu. Þær hafa nú átt fyrirtækið og starfað saman í tæpt ár og eru alsælar með samstarfið. Persónuleg þjónusta Þær Margrét og Ingibjörg segja mikinn mun vera milli sjálfstæðra apóteka á borð við Reykjavíkur Apótek annars vegar og stóru lyf- sölukeðjanna hins vegar. „Ég held að hvort tveggja hafi bæði kosti og galla,“ segir Ingibjörg. „Eitt sem vinnur með keðjunum er að þar getur fólk séð birgðastöðu milli verslana og vísað viðskiptavinum á aðra verslun ef einhver vara er ekki til. Við erum bara eitt apótek og við erum hér. Ef eitthvað vantar, sem kemur fyrir en sem betur fer ekki oft, þá bara pöntum við vöruna og hún er yfirleitt komin daginn eftir eða innan örfárra daga. Þetta eru kannski helst þessi dýru líftæknilyf sem við liggjum ekki með.“ Margrét tekur undir þetta og segir mögulega einhverja hagkvæmni fylgja stærðinni, auk þess sem hægt sé að dreifa kostnaði eins og til dæmis auglýs- ingakostnaði á fleiri einingar. Á móti kemur að Reykjavíkur Apótek er lítið einkarekið fyrir- tæki í eigu tveggja kvenna, sem sjálfar standa vaktina. Viðskipta- vinurinn getur treyst því að eig- andinn er á staðnum og stendur og fellur með þjónustunni, alveg eins og hjá kaupmanninum á horninu. „Önnur okkar er alltaf hérna og við erum oft báðar. Við förum aldrei í frí á sama tíma vegna þess að við viljum tryggja að þjónustan sé alltaf sama góða og persónu- lega þjónustan sem viðskiptavinir okkar búast við og eiga rétt á,“ segir Ingibjörg og Margrét kinkar kolli til samþykkis og brosir í kampinn. Þegar viðskiptavinir hringja í Reykjavíkur Apótek svarar alltaf manneskja en ekki símsvari. Engin tölvurödd segir manni að maður sé númer sex í röðinni og sím- tölum verði svarað í réttri röð. Það er regla fremur en undantekning að það sé eigandinn sem svarar í símann. „Við erum til staðar og svörum í símann. Ef einhver hring- ir og þarf að tala við lyfjafræðing er biðin sjaldan löng, ef það er þá ekki bara lyfjafræðingur sem svaraði símanum,“ segir Margrét. Í stærri apótekum er lyfja- fræðingurinn gjarnan á bak við að taka saman lyf sem fara síðan fram í afgreiðslu og viðskiptavinurinn hittir aldrei lyfjafræðinginn. Í Reykjavíkur Apóteki koma lyfja- fræðingarnir jöfnum höndum fram og afgreiða lyfin í hendur viðskiptavina þannig að þjónustan er persónulegri og sambandið við viðskiptavini beinna. Lyfjafræðingar í Reykjavíkur Apóteki eru sérfræðingar um lyf og lyfjanotkun en ekki bara það þeir eru einnig sérfræðingar um allt er snýr að niðurgreiðslu lyfja viðskiptavina sinna. „Það getur sparað viðskiptavinum okkar tugi þúsunda á ári að þekkja rétt sinn í greiðsluþátttökukerfi lyfja og við leggjum okkur fram um að leið- beina viðskiptavinum okkar um val á lyfjum og að sækja rétt sinn til greiðsluþátttöku hins opinbera í lyfjum, þar erum við sérfræðingar“ segir Margrét. Í Reykjavíkur Apó- teki er einnig mikil þekking á sykursýkilyfjum, en Margrét er greind með sykursýki 1. „Þetta þýðir að ég þarf að sprauta mig með insúlíni og fylgjast mjög vel með sykurgildum mínum. Fyrir vikið þekki ég mjög vel til á þessu sviði og get deilt reynslu minni með öðrum sykursjúkum. Það skiptir máli að sá sem afgreiðir einstakling með sykursýki sé vel að sér meðal annars vegna þess að tæki og áhöld sem nota þarf geta verið mjög mismunandi og erfitt fyrir þá sem ekki þekkja vel til að rata í þessum frumskógi, sérstak- lega þá sem nýlega hafa verið greindir með sykursýki.“ Leiðbeina viðskiptavinum Covid hefur haft áhrif á lyfsölu- geirann eins og alla aðra geira samfélagsins. Apótek gegna ekki hlutverki varðandi dreifingu bóluefna en frá því að faraldurinn skall á hefur sala aukist á hand- spritti, hönskum, grímum og nú síðast heimaprófum. Þá hafa heimsendingar aukist mjög og var það mest í byrjun þegar fólk var hræddara en það er í dag og veigraði sér við að fara út ef það komst hjá því. Þetta hefur aftur aukist upp á síðkastið þegar svo margir eru í einangrun og sóttkví sem raun ber vitni. „Okkur þykir vænt um við- skiptavinina okkar og viljum þjóna þeim vel,“ segir Margrét og Ingibjörg grípur boltann á lofti og bætir við: „Við reynum að brosa á bak við grímuna og finnst gaman að við þekkjum marga af okkar viðskiptavinum svo vel að við heilsum þeim með nafni.“ Þær segja að meðal þess sem felst í þjónustu þeirra við viðskiptavini sé að leiðbeina þeim eftir kostum „Allir sem nota lyf eiga að velja sér eitt apótek til að skipta við, jafn- vel að eiga sinn lyfjafræðing sem þekkir til þín og lyfjasögu þína, það tryggir ákveðna samfellu og eftirlit með lyfjagjöf og getur komið í veg fyrir mistök í lyfja- töku. Við erum síðasta varnarlín- an til að uppgötva mistök áður en viðskiptavinur fær lyf í hendur“ segir Ingibjörg. Nú er búið að opna apótekið, viðskiptavinir farnir að streyma inn og síminn farinn að hringja svo þær Margrét og Ingibjörg verða að snúa sér að því að þjóna þeim. Við þriðju manneskju standa þær og afgreiða viðskipta- vini og brosið og starfsgleðin leynir sér ekki bak við grímuna. ■ Reykjavíkur Apótek – apótekið á horninu Ingibjörg Sig- ríður Árnadóttir og Margrét Birgisdóttir eig- endur Reykja- víkur Apóteks. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK 42 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.