Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 87
Ég brenn fyrir
þjónustu og upp-
lifunum og vil leggja mitt
af mörkum til að veita
viðskiptavinum Origo
óaðfinnanlegar þjón-
ustuupplifanir.
Sara Sigurðardóttir
Við leggjum mikla
áherslu á að vera
með endingargóðan
búnað en það hefur
verið viðloðandi tækni-
geirann að vera einnota
og þegar það kemur ný
uppfærsla þá er því
gamla bara hent og nýtt
keypt.
Guðrún Svava Kristinsdóttir
Við töluðum um
fjölbreytileika og
hversu mikilvægt það
væri að hafa ólík sjónar-
mið í starfsmannahópn-
um og horfa á fjölbreyti-
leikann í breiðari mynd.
Dröfn Guðmundsdóttir.
Dröfn Guðmundsdóttir,
Guðrún Svava Kristinsdóttir
og Sara Sigurðardóttir vinna
hjá Origo og tala meðal
annars um jafnrétti og aukin
tækfæri fyrir konur til að
vinna í tæknigeiranum, að
tæknin geti haft jákvæð
áhrif á samfélagið og að
sýnin sé að litið sé á upplýs-
ingatæknifyrirtækið Origo
sem þjónustufyrirtæki.
„Jafnrétti er mér mjög hugleikið,
ekki bara konur/karlar heldur
líka út frá samsetningu svo sem
ungt fólk/eldra fólk og sjónarmið
frá ólíkum hópum,“ segir Dröfn
Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Mannauðs hjá Origo. „Upp-
lýsingatæknigeirinn hefur verið
karllægur í svo langan tíma og við
höfum fundið að hlutirnir breytast
ekki nema með markvissum
aðgerðum.“
Dröfn segir að bæði hérlendis
og erlendis halli mikið á konur í
upplýsingatæknigeiranum. „Við
vorum lengi vel með það markmið
að fjölga konum og ná ákveðnu
kynjahlutfalli og var markmiðið að
konur yrðu um 30 prósent en lengi
vel komumst við ekki yfir rétt rúm
20 prósent. Við gengum svo aðeins
lengra í fyrra og fórum að einblína
á ráðningar og aðgerðir til þess að
fjölga konum þegar tækifæri gæfist
til í ráðningunum. Við töluðum
um fjölbreytileika og hversu mikil-
vægt það væri að hafa ólík sjónar-
mið í starfsmannahópnum og
horfa á fjölbreytileikann í breiðari
mynd. Við erum í auknum mæli
að ráða yngra fólk og minna að
fókusera eingöngu á reynslu sem er
svolítið algengt í ráðningum en þá
beinast spjótin alltaf að körlunum
af því að þeir hafa meiri reynslu
í tæknigeiranum. Og við höfum
lagt okkur fram við að gefa konum
tækifæri þegar kemur að því að
ráða yngra fólk.“
Í dag eru konur um 30 pró-
sent stjórnenda hjá Origo. „Þegar
stjórnunarstöður losna horfum
við bæði til kvenna innan fyrir-
tækisins og kvenna á markaðn-
um,“ segir Dröfn og bætir við að
fyrir tveimur árum hafi konur
verið um 22 prósent stjórnenda
hjá fyrirtækinu.
Samfélagsleg nálgun
í upplýsingatækni
Æ fleiri konur mennta sig í
tæknigeiranum í dag miðað við
áður. „Svo má ekki gleyma því að
upplýsingatækni er svo þverfagleg
grein og hjá okkur er starfsfólk
ekki aðeins í forritun heldur
líka í ýmsum ráðgjafar-, sölu- og
þjónustuhlutverkum. Origo er
líka þjónustufyrirtæki þannig að
við getum laðað að okkur starfs-
fólk með fjölbreyttan bakgrunn.
Svo er tæknin orðin okkur öllum
miklu tamari en áður og margir
sem hafa mjög gott tæknilæsi og
áhuga á tækni, án þess að hafa
tæknimenntun, sem eiga erindi í
störf hjá okkur. Þannig að mark-
hópurinn hefur líka stækkað hvað
það varðar og við getum ráðið úr
öðrum faggreinum eða öðrum
reynsluheimi heldur en bara
tæknigeiranum. Það er svo mikið
af spennandi störfum í tækni-
geiranum en þetta er geiri sem er á
f leygiferð og í miklum vexti.“
Leið Origo að sjálfbærni
og umhverfisvernd
„Við erum með sterka sýn á sam-
félagsleg málefni,“ segir Guðrún
Svava Kristinsdóttir sérfræðingur
í markaðsmálum og samfélags-
legri ábyrgð hjá Origo. Guðrún er
verkfræðingur að mennt og er með
tvær meistaragráður í upplýsinga-
tækni og gervigreind frá Cornell
háskóla. „Það má kjarna starfsemi
okkar með slagorðinu – betra líf
með tækninni. Það er æðislegt
að fá að koma heim úr námi og
byrja að vinna hjá fyrirtæki sem
vill hafa raunveruleg áhrif. Ég er
með bakgrunn úr listum en er
einnig verkfræðingur að mennt
og mér finnast markaðsstörfin og
samfélagsmálin ríma vel við þann
bakgrunn sem ég hef. Við erum
að vinna að sjálfbærari viðskipta-
háttum og gagnsæi í okkar starf-
semi og ég fæ að hafa yfirsýn yfir
mörg metnaðarfull og spennandi
verkefni er snerta á samfélagslegri
ábyrgð. Við viljum til dæmis sýna
fólki kolefnisspor á vörum sem það
kaupir hjá okkur þannig að það
geti tekið upplýstari ákvarðanir
í innkaupum, hvort sem það er
hugbúnaðarlausn, þjónusta eða
tölvubúnaður.
Við leggjum mikla áherslu á að
vera með endingargóðan búnað en
það hefur verið viðloðandi tækni-
geirann að vera einnota og þegar
það kemur ný uppfærsla þá er því
gamla bara hent og nýtt keypt. Við
viljum breyta þessum hugsunar-
hætti; hjá okkur fæst endingar-
góður og áreiðanlegur búnaður
sem nýtist til framtíðar. Þá gerum
við fólki einnig kleift að kaupa
notaðan búnað á hagkvæmari
kjörum.“
Guðrún Svava leggur áherslu á
að tæknin geti haft jákvæð áhrif á
samfélagið. „Það skiptir öllu máli
hvernig við hugsum um hlutina
og hvernig við hönnum og þróum
tæknilausnir – maður þarf alltaf að
passa upp á að forsendurnar séu
réttar. Það þýðir ekkert að ætla að
sigra heiminn með tæknilausn þar
sem ekki eru teknar réttar forsend-
ur inn í grunninn; til dæmis eins
og fólkið sem mun koma til með
að nota hana eða þær aðstæður
sem það kemur til með að vera í.
Upplýsingatækni mun gegna stóru
hlutverki þegar kemur að jafn-
réttismálum, umhverfismálum og
heilsu og vellíðan fólks og nefni ég
í því sambandi heilbrigðislausnir
Origo sem þróa hugbúnað og
lausnir fyrir heilbrigðiskerfið og
hafa gegnt veigamiklu hlutverki
í því að bólusetningar við Covid
hafa gengið eins vel og raun ber
vitni en markmiðið var auðvitað
að auðvelda fagfólki vinnuna í
þágu lýðheilsu og betri smitvarna.“
Mikil áhersla lögð á þjónustu
„Ég brenn fyrir þjónustu og upplif-
unum og vil leggja mitt af mörkum
til að veita viðskiptavinum Origo
óaðfinnanlegar þjónustuupplifan-
ir,“ segir Sara Sigurðardóttir, leið-
togi þjónustuupplifunar hjá Origo.
Sara er stjórnmálafræðingur að
mennt og er auk þess með meist-
aragráðu í alþjóðasamskiptum.
Hún segir að sér finnist gaman að
vera ekki tæknimenntuð en lifa
samt og hrærast í heimi tækninnar
og fá þannig að taka þátt í að vinna
að stefnumótun og að umbreyta
tækniþjónustu inn í framtíðina.
„Þjónustumiðjan þar sem ég
starfa er með alla samnings-
bundna tæknilega notenda-
þjónustu Origo. Origo er risafyrir-
tæki með langa sögu, enda einn af
tæknirisunum á Íslandi, og okkar
sýn er að umbylta því yfir í að vera
fyrst og fremst þjónustufyrirtæki.
Þannig erum við að leggja mikla
áherslu á þjónustu án þess að gefa
neinn afslátt af tækninni. Mark-
miðið er að setja endanotandann
alltaf í fyrsta sæti, eins konar
„outside-in“ stefna, með því að
endurskoða öll samskipti, ferla og
upplifanir í gegnum alla snerti-
punkta viðskiptavina hjá okkur.“
Sara segir að sér finnist gaman
að sjá hve margar konur eru farnar
að vinna hjá Origo. „Það er ótrú-
lega skemmtilegt að starfa hjá
fyrirtæki sem tekur jafnrétti alvar-
lega, sér í lagi þegar það finnst vel í
verki í gegnum ráðningar, áherslur
og stefnu Origo. Ég vil almennt
hvetja konur til að gefa tæknigeir-
anum meiri gaum. Það eru fullt af
störfum í tækni sem krefjast þess
ekki að fólk þurfi endilega að vera
tæknimenntað og það er stútfullt
af tækifærum í tæknigeiranum. Í
raun má segja að flest fyrirtæki í
dag séu orðin tæknifyrirtæki. En
að sjálfsögðu væri frábært ef fleiri
konur menntuðu sig í tækni og
hefðu þannig áhrif á framtíðina.“
Sara bætir því við að hún trúir
því að með meiri fjölbreyti-
leika séu fyrirtæki líklegri til að
blómstra. „Betur má ef duga skal í
að auka fjölbreytni í efstu lögum
fyrirtækja, stjórnum og forstjóra-
stólum og tæknifyrirtækin eru
þar engin undantekning. Það þarf
að tryggja betri dreifingu aldurs,
kyns, ólíkrar menntunar og upp-
runa til að mæta þörfum fram-
tíðarviðskiptavina með áskoranir
sem við vitum ekki í dag hverjar
verða.“ n
Sara Sigurðardóttir. MYND/AÐSEND Guðrún Svava Kristinsdóttir. MYND/AÐSEND Dröfn Guðmundsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
kynningarblað 67FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU