Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 103

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 103
MYNDLIST Aðalsteinn Ingólfsson Sýnishorn af höfundarverki Dieters Roth í i8 Þýsk-svissneski myndlistarmað- urinn Dieter Roth, sem var í ára- raðir öflugur þátttakandi í íslensku myndlistarlífi, vakti alla tíð blendn- ar tilfinningar meðal listunnenda. Á níunda áratug síðustu aldar, þegar Dieter hafði öðlast víðfrægð, bauðst Listahátíð á Íslandi til afnota stór þýsk farandsýning á verkum hans. Þá lifði enn svo glatt í gamalli andúð á þeim, að forsvarsmenn hátíðar- innar afþökkuðu sýninguna. Að því sögðu held ég að enginn dragi í efa að Dieter hafi verið með allra fjöl- hæfustu listamönnum sem hér hafa búið: listmálari, grafískur hönnuð- ur, húsgagnahönnuður, grafíklista- maður, höfundur þrívíddarverka af ýmsu tagi, framúrskarandi teiknari, vídeólistamaður, bóklistamaður, og að auki ljóðskáld, útgefandi og mús- íkant. Á að minnsta kosti tveimur þessara sviða, í grafík og bóklist, var hann fortakslaust meðal leiðandi aðila á tuttugustu öld. Í ljósi þessa yfirgripsmikla ævi- starfs er tæplega hægt að ætlast til þess að lítil og nett sölusýning sem Gallerí i8 hefur nú sett upp með eldri verkum Dieters, gefi fullnægj- andi mynd af öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Flest eru verkin gerð hér á landi og koma úr íslensk- um einkasöfnum. Engu að síður má, með góðum vilja, líta á þetta sam- safn sem eins konar inngang að margbrotnu höfundarverki Dieters. Þarna eru hreinar og klárar teikn- ingar í expressjónískum dúr, ljós- myndaverk, yfirmáluð grafíkverk, „af byggðir“ prentgripir á borð við íslensk póstkort, pappírsverk með lífrænu ávafi, að minnsta kosti einn víðfrægur Flúxus-skúlptúr (Kanína úr kanínuskít og hálmi), geómetrísk verk með „innbyggðri“ hreyfingu, eitt verk úr lífrænum úrgangi og loks endurgerðir barnastólar frá Kúlu-tímabilinu svokallaða, þegar Dieter og nokkrir félagar hans ráku verslun á mótum Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs. Geómetría rekst á Flúxus Þessi sýning gefur okkur mikils- verðar vísbendingar um listsögu- legan uppruna Dieters. Þroskaár hans eru sjötti áratugurinn, þegar tilraunir evrópskra myndlistar- manna til að skapa tæra og rök- studda abstraktlist í kjölfar þess umróts sem síðari heimsstyrjöldin hafði í för með sér, steytti á mynd- list uppivöðslusamra andófsmanna á borð við Ný-dadaista og Flúxara, en þeir stefndu að hinu gagnstæða, nefnilega umpólun hefðbundinnar fagurfræði. Sjálfur byrjar Dieter sem fulltrúi svissneskrar rök- hyggju í hvort tveggja grafískri hönnun og myndlist, aðhyllist um skeið umbreytanlega geómetríu, verk sem þróuðust eða tóku breyt- ingum í ákveðnu ferli á myndfleti, samanber hreyfilist og optíska list. Eitt verk þeirrar gerðar (nr. 11) er að finna í i8. Út úr því þróast síðan bók- verkin, þar sem hver blaðsíða er í raun breytileg og hreyfanleg eining. Fyrstu lífrænu verk Diet ers, þar sem finna má efnivið eins og súkkulaði, matarleifar, pylsur, ávexti og fleira, eru undirseld annars konar hreyf- ingu, það er náttúrulegri hrörnun eða niðurbroti efnisins; þau verða til upp úr 1960 (sjá nr. 6). Upp frá því er Dieter víða f lokkaður með Flúxus-listamönnum og öðrum myndbrjótum. Með þessum lista- mönnum sýndi hann vissulega, en rakst alls staðar illa í f lokki. Sem leiðir okkur að ævisögulega þættinum, sem er býsna mikil- vægur þegar Dieter er annars vegar, því hann er víða samofinn mynd- verkum hans. Hversu skilmerkilega sem við tengjum listamanninn rót- tækum myndlistarhreyfingum úti í Evrópu, þá er myndlist hans oftar en ekki viðbrögð við margháttuðum tilvistarlegum vanda hans sjálfs. Til að mynda er eitt helsta einkenni á gjörvallri myndlist Dieters, hve oft hann dregur eigin persónu, eins konar skrípaútgáfur af sjálfum sér, svo og hluti úr eigin eigu eða nær- umhverfi, inn í myndir sínar. Þetta sjálf er fastagestur í teikningum hans, grafík og síðari verkum með blandaðri tækni. Ljósmyndir af honum sjálfum bera einnig uppi plakötin fyrir farandsýningu hans 1972-74, sem finna má á sýningunni í i8. Þverlyndið var lykillinn Án þess að velta sér um of upp úr Freud, má rekja margt af því sem Dieter glímdi við í verkum sínum til atburða og aðstæðna á æskuheimili hans í Hannover. Sem barn upplifði hann öryggisleysi heima og heiman, bæði loftárásir bandamanna og til- finningalega vanrækslu, jafnvel harðneskju, foreldra sinna. Hann óx upp ofurviðkvæmur, og viðskipti hans við áhrifamenn, í daglegu lífi, í listum og í fræðasamfélaginu, ein- kenndust lengi af blöndu af auð- mýkt, óöryggi og árásarhneigð. Á síðari árum enduðu samskipti Dieters við milliliði myndlistar- senunnar: gallerista, safnafólk og safnara, jafnvel starfsbræður, yfir- leitt með ósköpum. Þegar frá liðu stundir urðu þau samskipti, að viðbættri áfengisneyslu, örugglega til þess að magna upp með honum bölsýni og vantrú á mannlegt eðli. Sem litaði síðan afstöðu hans til listarinnar. Dieter hafði fyrir reglu að andæfa, setja sig upp á móti við- teknum viðhorfum, eða eins og hann sagði sjálfur: „Þegar mér var sagt að gera eitthvað frá A til Ö, gerði ég hið gagnstæða“. Kannski er ein- mitt þverlyndi Dieters lykillinn að frjórri uppáfinningasemi hans, Verk sín skapaði Dieter því þvert á allar kennisetningar og viðtekin viðhorf, oft í blóra við meint tak- mörk þess miðils sem hann var með undir höndum hverju sinni. Sem kennari ætlaðist hann til að nemendur sínir tækjust á við hið ómögulega, byggðu skúlptúra úr orðum, þrykktu grafíkmyndir eftir kaffibrauðinu sínu og settu saman bókverk úr bíldekkjum. Enda fækk- aði nemendum eftir því sem leið á kennslu hans. En þeir sem eftir sátu urðu aldrei samir. Þessi aðferðafræði, ef hægt er að nota það nafn yfir vinnubrögð Diet- ers, opnaði á f leiri leiðir til mynd- listartjáningar en menn höfðu áður kynnst. Um leið var hún atlaga að öllum tilraunum til að setja þess- ari tjáningu mörk. Að því leyti var Dieter sennilega einn af helstu guð- feðrum þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í vestrænni myndlist á undanförnum áratugum. n Spægipylsa með fiturönd Sýningin á verkum Dieters Roth í i8 stendur til 29. janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þessi sýning gefur okkur mikilsverðar vísbendingar um listsögulegan upp- runa Dieters, segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur. Verk sín skapaði Dieter því þvert á allar kenni- setningar og viðtekin viðhorf, oft í blóra við meint takmörk þess miðils sem hann var með undir höndum hverju sinni. FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 Menning 23FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.