Andvari - 01.01.2019, Page 16
ANDVARI SÉRA PÉTUR SIGURGEIRSSON 15
og títt hefur verið um höfuðklerka hér bæði fyrr og síðar. Í fjölskyldu
hans var þó að finna kirkju- og félagsmálabakgrunn sem kann að hafa
mótað lífsstefnu biskupsfeðganna Sigurgeirs og Péturs.8
Á Ísafirði var ekki prestsbústaður á þessum árum og höfðu þau
Sigurgeir og Guðrún ráðist í að kaupa Sjónarhæð sem nú stendur við
Seljalandsveg og komu þar upp prestsetri af hefðbundinni íslenskri
gerð. Bjuggu þau með nokkrar kýr, réðu til sín fjósamann og seldu
bæjarbúum mjólk en hún var þá af skornum skammti á Ísafirði. Þeir
bræður, Pétur og Sigurður, þjónuðu sem mjólkurpóstar og síðar einnig
hestasveinar aðkomumanna í kaupstaðnum. Þótt Ísafjörður hafi vissu-
lega lengi verið þéttbýlisprestakall þegar þarna var komið sögu, sýnir
þetta að prestsfjölskyldan stóð á mörkum sveitabúskapar og lífshátta í
þéttbýli. Slægjuland reyndist þó ekki nægilegt og setti það umsvifum
fjölskyldunnar þröngar skorður.9
Enginn efi er á að sóknarpresturinn og prófasturinn á Ísafirði sem
auk þess gegndi fjölda trúnaðarstarfa í samfélaginu var í hópi brodd-
borgaranna í bænum eins og títt var um presta fyrir daga þeirrar miklu
sundurgreiningar og sérhæfingar sem gekk yfir á síðari hluta 20. aldar.
Á þessum árum var staða prestsins og fjölskyldu hans í samfélaginu
þó enn tvíbent eins og löngum hafði verið. Menntun, vígsla, hlutverk
og starfsskyldur prestsins settu hann á stall með örfáum öðrum emb-
ættismönnum. Fjárhagsafkoma margra presta var á hinn bóginn bág-
borin og hefur það ekki síst átt við þá sem ekki gátu aflað sér við-
bótartekna með búrekstri. Kjör fyrstu þéttbýlisprestanna kunna því að
hafa verið knappari en ætla má af þjóðfélagsstöðu þeirra. Það reynd-
ist Sigurgeiri og Guðrúnu t.d. um megn að halda uppi búskapnum á
Sjónarhæð. Flutti fjölskyldan í leiguíbúð í svokölluðu Grímshúsi við
Túngötu en það var í eigu Gríms Kristgeirssonar (1897–1971) rak-
ara, föður Ólafs Ragnars fyrrverandi forseta. Þaðan var flutt í hús við
Pólgötu er áður hafði hýst landssímastöðina og varð síðar embættisbú-
staður Ísafjarðarprests.10 Í æskuminningum Péturs má einnig sjá að
foreldrarnir hafa þurft að halda spart í við börnin eins og fram kemur
í frásögu af því er prófastur gerði sonum sínum eitt sinn að velja milli
þess hvort verja skyldi einni krónu til að kosta bíóferð þeirra eða
kaupa rúgbrauð fyrir fjölskylduna.11 Þar kann þó að hafa verið um að
ræða þjálfun í hagnýtri siðfræði! Almennt virðast bernskuminningar
Péturs frá Ísafjarðarárunum hafa verið ljúfar og þar verið lagður góður
grunnur að farsælli ævi. Þrátt fyrir það reyndi Pétur á eigin skinni þá