Andvari - 01.01.2019, Page 24
ANDVARI SÉRA PÉTUR SIGURGEIRSSON 23
síðari heimsstyrjaldarinnar en þar höfðu Íslendingar leitað sér forfröm-
unar á menntasviðinu og þá ekki síst í guðfræði allt frá miðöldum.56
Kirkjuleg tengsl vestur um haf voru aftur á móti til staðar m.a. vegna
kirkjustarfs meðal Íslendinga þar en þangað hafði Sigurgeir biskup
einmitt farið í embættiserindum snemma árs 1944.57 Þá um haustið
sigldi biskupssonurinn svo með Dettifossi sem lagði upp til New York
í skipalest frá Bretlandi. Var þetta ein síðasta ferð skipsins þangað en
það varð fyrir tundurskeyti norður af Írlandi á heimleið þaðan síðla í
febrúar 1945.58 Ferð Péturs gekk ekki áfallalaust þar sem skipið fékk
á sig hnút eftir nokkurra daga siglingu, varð að snúa óvarið aftur til
Englands til viðgerða og til að auka mætti við kolabirgðir. Var síðan
haldið af stað að nýju með annarri skipalest.59 Ekki var um auðugan
garð að gresja varðandi námslán og styrki á þessum tíma og óvíst hvort
biskupslaunin hrukku til að kosta slíka ferð. Pétur naut aftur á móti
stuðnings fjölskylduvinar frá Ísafjarðarárunum, Magnúsar Scheving
Thorsteinsson (1893–1974), forstjóra Smjörlíkis h.f.60
Ferð Péturs var heitið til lúthersks prestaskóla, Lutheran Theo logical
Seminary at Philadelphia, sem í daglegu tali var kenndur við hverfið
Mt. Airy í Chestnut Hills í Fíladelfíu-fylki. Þar var þá við nám Vestur-
Íslendingurinn Eric Sigmar (1922–2010) og kvað Pétur í endurminning-
um sínum það hafa valdið miklu um staðarvalið.61 Skólanum var ætlað
að mennta prestsefni fyrir Sameinuðu lúthersku kirkjuna í Ameríku
(United Lutheran Church in America, ULCA) sem orðið hafði til í
tilefni af 400 ára afmæli siðbótarinnar 1918. Við það tækifæri sam-
einuðust þrjú kirkjufélög fólks af þýskum uppruna.62 Síðar óx þessari
kirkju enn fiskur um hrygg og heitir nú Evangelical Lutheran Church
in America (ELCA) og er stærsta lútherska kirkjan í Bandaríkjunum.
Tveimur árum áður en Pétur sótti skólann hafði kirkjufélag Íslendinga
í Vesturheimi, The Icelandic Synod (stofnað 1885), sameinast ULCA.63
Líklegt er að þessi kirkjulegu tengsl hafi ráðið miklu um að einmitt
þessi skóli varð fyrir valinu. Skólinn var stofnaður 1864 og starfaði í
Mt. Airy frá 1889. Hafði honum nýlega verið veitt aðild að American
Association of Theological Schools þegar Pétur hóf þar nám.64 Pétur
var eitt námsár við skólann og lauk meistaragráðu í guðfræði (Master
of Sacred Theology). Fjallaði ritgerð hans um upphaf íslensku kirkj-
unnar og brautryðjendur hennar.65 Haustmisserið 1945 dvaldi Pétur
svo við Stanford-háskóla í Kalíforníu. Þar lagði hann stund á biblíu-
fræði undir handleiðslu D. Elton Trueblood (1900–1994). Hann var