Andvari - 01.01.2019, Blaðsíða 31
30 HJALTI HUGASON ANDVARI
aldar hófust umræður um rúmbetra safnaðarheimili. Lágu uppdrættir
að því fyrir 1985 og var það loks vígt á 50 ára afmæli kirkjunnar,
17. nóvember 1990.104 Er húsið byggt inn í brekkuna undir kirkjunni
og tengist henni neðanjarðar án þess að skyggja á kirkjubygginguna
sjálfa. Sköpuðust með því stórbættar aðstæður fyrir hið fjölþætta safn-
aðarstarf. Þá var Pétur horfinn til aukinnar þjónustu í þjóðkirkjunni.
Akureyrarkirkja svaraði á margan hátt þeim kröfum sem biskupinn
Pétur Sigurgeirsson gerði til kirkna löngu síðar og safnaðarheimilið
við hana var byggt í anda þeirra hugmynda sem hann lýsti:
Gleðilegt er að sjá, hve nýsmíði kirkna tekur mið af þörfum þess breytta þjóð-
félags, sem við lifum í, þar sem kirkjan er ekki aðeins kirkjusalur, heldur mið-
stöð kirkjustarfs og þjónustu, sem nauðsynleg er í kirkjunni. Þegar ný kirkja er
gerð, þarf hún að vera þannig útlits, að hún „prediki“ jafnt utan sem innan, að
kirkjubyggingar séu þannig, að ekki orki tvímælis um hvaða hús er að ræða.
Þá vil ég gjalda varhug við því, að verndun gamalla kirkna gangi svo langt,
að hægt sé að girða fyrir sjálfsagðar lagfæringar vegna notkunar kirkjunnar.
Sjálfsagt er að varðveita sögulegar minjar, sem dýrmætar eru landi og þjóð,
og margt hefur verið gert lofsvert á því sviði. Hvað kristnihald þjóðarinnar
snertir þarf umfram allt að sjá fyrir því, að sóknarkirkjur geti sem best þjónað
tilgangi sínum fyrir fólkið á hverjum tíma. Þar gildir hið sama sjónarmið sem
um önnur híbýli, sem fólk lifir í og sækir til.105
Þessi orð eru ekki síst tilfærð hér sökum þess að þau sýna í hnotskurn
hugmyndir Péturs um starf kirkjunnar í samfélaginu og hvernig hann
taldi að þær ættu að endurspeglast í kirkjuhúsunum sjálfum.
Í desember 1972 bættist Akureyringum „nýtt“ guðshús en þá var
endurvígð gömlu timburkirkja er reist hafði verið að Svalbarði við
Eyjafjörð 1846 en flutt 1970 á lóð hinnar fyrri Akureyrarkirkju
í Fjörunni. Var Pétur Sigurgeirsson mikið við þá gjörð riðinn.
Æskulýðssambandi kirkjunnar í Hólastifti (ÆSK) sem hann var í for-
svari fyrir hafði verið gefin kirkjan til að flytja að sumarbúðum við
Vestmannsvatn (sjá aftar). Að beiðni stjórnar Minjasafns Akureyrar
afsalaði ÆSK sér þó kirkjunni. Þá átti Pétur einna helst frumkvæði að
því að kirkjunni var valinn staður einmitt á hinum gamla kirkjugrunni
og loks endurvígði hann kirkjuna. Þjónar kirkjan bæði sem safngripur
og guðshús en þar hafa ýmsar athafnir farið fram auk fáeinna guðs-
þjónusta á ári.106
Sunnudaginn eftir prestsvígslu sína var Pétur kominn til Akureyrar
og tók við hinu nýja starfi. Samkvæmt Helgisiðabók þjóðkirkjunnar