Andvari - 01.01.2019, Síða 45
44 HJALTI HUGASON ANDVARI
hans á Akureyri lét Sigurbjörn biskup svo um mælt í afmæliskveðju til
hans:
Akureyri hefur notið krafta hans sem sóknarprests í rúma þrjá áratugi. Hann
hefur aukið verðmætum drætti í svip bæjarins og markað spor, enda ekki
dregið af sér né legið á liði sínu. Það mun öllum augljóst, að hann hefur heilum
huga og brennandi áhuga þjónað köllun sinni. Þá er hann glaðastur, þegar hann
getur komið góðu til leiðar og ekki sparar hann krafta sína til neinna nytja.177
Virðist mat þessara manna koma heim og saman við þá mynd sem hér
hefur verið dregin upp.
Á biskupsstóli
Pétur Sigurgeirsson var kjörinn vígslubiskup í hinu forna Hólastifti
1969 og í kjölfarið vígður biskupsvígslu.178 Á þeim tíma voru formlegar
starfsskyldur vígslubiskupa þó takmarkaðar og því fremur um heiðurs-
titil en eiginlegt starf eða stöðu að ræða. Af þessum sökum verður litið
svo á að hinn eiginlegi biskupsdómur Péturs hafi hafist er hann tók við
embætti biskups Íslands. Aftur á móti verður vikið að vígslubiskupsár-
unum í kafla um persónulega hagi Péturs síðar í greininni.
Upphaf biskupsdóms — hirðisbréf
Pétur Sigurgeirsson var kjörinn biskup Íslands í ágúst 1981. Í fyrri um-
ferð kosninganna fékk Ólafur Skúlason (1929–2008), þá dómprófastur
62 atkvæði, Pétur hlaut 36 atkvæði og Arngrímur Jónsson (1923–2014),
sóknarprestur í Reykjavík, 23. Þá hlaut Heimir Steinsson (1937–2000),
þá rektor lýðháskólans í Skálholti, síðar þjóðgarðsvörður og útvarps-
stjóri, 10 atkvæði og Jónas Gíslason, þá dósent við guðfræðideild,
en síðar prófessor og loks vígslubiskup, 6 atkvæði.179 Þar eð enginn
fékk meirihluta greiddra atkvæða var kosið að nýju milli þriggja efstu
manna.180 Skildi þá aðeins eitt atkvæði milli Péturs sem flest atkvæði
hlaut og Ólafs.181 Mjög var því mjótt á munum milli þessara tveggja
keppinauta um embættið þótt gengi þeirra væri næsta ólíkt í umferð-
unum tveimur þar sem Pétur vann svo mjög á í þeirri síðari. Var Pétur
settur inn í embættið af forvera sínum, Sigurbirni Einarssyni, þann 27.
september 1981.182