Andvari - 01.01.2019, Page 51
50 HJALTI HUGASON ANDVARI
hljóðfæra auk orgelsins. Siðbótarmennirnir fundu orðtakið: „Ecclesia semper
reformanda“ — kirkjan er stöðugt í mótun — hún þarf sífellt að taka mið af
því við boðun orðsins, hvernig mannlífið breytist, og fram ganga í takt við
tímann. Þjóðkirkjan á að vera opin og jákvæð í viðleitni sinni til samstarfs við
aðrar kirkjudeildir innan lands sem utan, minnug þess, sem Kristur mælti um
eina hjörð og einn hirði. […]202
Andspænis framtíðinni er kirkjan opin.203
Líta má á þessi orð sem stefnuskrá bæði prestsins og biskupsins Péturs
Sigurgeirssonar. Aftar í bréfinu vék Pétur svo aftur að kirkjuskilningi
sínum og ritaði þá:
Kirkjuna má auðkenna með þremur orðum: Hún er vitnisburður (martyria) —
tilbeiðsla (leiturgia) og þjónusta við náungann (diakonia). Hafandi þessa eigin-
leika hins upprunalega kristindóms stendur „kirkjan föst, bifast ei á bjargi
byggð þótt dynji röst“.204
Þau einkunnarorð sem þjóðkirkjan tók síðar upp — biðjandi, boðandi
og þjónandi — vísa einmitt til þeirra þriggja „auðkenna“ eða hlutverka
sem Pétur lagði hér áherslu á.
Embættisstörf — stefnumótun um félagsleg álitamál
Á biskupsstóli biðu Péturs Sigurgeirssonar ýmiss konar embættisann-
ir. Hann varð eins og lög gerðu ráð fyrir forseti kirkjuþings, kirkjuráðs
og synódus eða prestastefnunnar sem eru helstu stjórnunar- og sam-
ráðsstofnanir þjóðkirkjunnar. Þá voru vísitasíur fastur liður í starfinu
en þær taldi Pétur ekki síst gagnlegar til að viðhalda tengslum við
grasrótarstarfið í söfnuðunum.205
Frá fornu fari hefur verið litið svo á að í embætti biskups felist ekki
síst að fara með þrenns konar vald: vígsluvald (lat. potestas ordinis),
dómsvald (lat. potestas jurisdictionis) og kennivald (lat. potesta magist-
erii). Langt er síðan dómsvald hvarf úr höndum biskups Íslands. Enn
þann dag í dag ber biskupi þó að fara með kirkjuaga sem einkum lýtur
að embættisrekstri og framkomu presta í og utan kirkju sem og árekstr-
um og deilum sem upp kunna að koma á vettvangi kirkjunnar. Staða
presta sem starfsmanna hins opinbera gerir þó að verkum að um ýmis
mál sem áður lutu að kirkjuaga fer nú samkvæmt lögum um opinbera
starfsmenn. Ekki reyndi mikið á þennan þátt í biskupstíð Péturs.