Andvari - 01.01.2019, Page 57
56 HJALTI HUGASON ANDVARI
Hugmyndum sínum um hina samkirkjulegu viðleitni lýsti Pétur ann-
ars svo að ekki bæri að stefna að því að gera alla kristna menn sam-
mála. Þvert á móti gæti það verið merki um styrkleika að skoðanir
skiptust og menn greindi á um ýmis málefni kirkju og kristindóms.
Það gæti skapað víðari sjóndeildarhring og dýpkað skilning manna.
Kristnir menn ætti aftur á móti að bera virðingu fyrir skoðunum hvers
annars og láta þær ekki hindra samstarf ólíkra kirkjudeilda.231
Stærsti viðburðurinn á ekumenísku sviði hér á landi í embættistíð
Péturs Sigurgeirssonar var án efa koma Jóhannesar Páls II. páfa hingað
til lands í júní 1989 en þá vitjaði páfi allra Norðurlandanna og var það
fyrsta páfaheimsóknin í sögunni til þess heimshluta. Hinn ekumen-
íski hluti heimsóknarinnar fór fram á Þingvöllum fyrri daginn sem
páfi dvaldi hér. Þar áttu páfi og fylgdarlið hans einfalda bænastund í
Þingvallakirkju ásamt Pétri biskupi og þeim sem helst höfðu unnið að
undirbúningi páfakomunnar með honum.232 Því næst var haldið að sér-
stöku útialtari sem reist hafði verið á palli á völlunum. Þar voru saman
komin nokkur þúsund manns auk þó nokkurs hóps hempuklædddra
presta. Bæði páfi og biskup Íslands predikuðu við þetta tækifæri, ját-
uðu saman trúna með orðum Níkeujátningarinnar og lýstu blessun yfir
viðstadda.233 Við þetta tækifæri lét Pétur m.a. þessi orð falla:
Kirkja Krists á Íslandi í þúsund ár verður ekki í sundur greind, hvorki fyrir
augliti Guðs eða í vitund þjóðarinnar.
Okkur er þó fullkunnugt um ágreiningsatriðin og ég ætla mér ekki að draga
dul á þau. En í reynd er það svo fátt sem veldur ágreiningi í ljósi þess, er sam-
einar. Það er trúin á Krist, sem sameinar okkur, þó að kirkjudeildirnar séu
tvær og þær hafa líka lært hvor af annarri.234
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Pétur átti samfund við páfa. Í emb-
ættistíð Páls VI., fyrirrennara Jóhannesar Páls II., voru þau Sólveig
stödd í Róm og kom þá til hugar að fá heimild til að sækja vikulega
móttöku páfa í sumarsetri hans í Grandolfi. Reyndist það auðsótt mál
og veitti páfi þeim persónulega áheyrn að lokinni almennri móttöku.235
Ekumenískt starf felst jafnframt í alþjóðlegum samskiptum og þátt-
töku í stórviðburðum í lífi annarra kirkna og kirkjudeilda. Í því sam-
bandi má nefna að Pétur og Sólveig tóku þátt í þúsund ára kristni-
tökuafmæli í Rússlandi snemmsumars 1988 en þangað var þeim boðið
ásamt um 500 gestum hvaðanæfa að úr heiminum. Við þetta tæki-
færi óskaði Pétur þess að rússneska kirkjan bæri gæfu til að taka