Úrval - 01.06.1951, Síða 89
LIFNAÐARHÆTTIR FlLANNA
87
ir móðurinni, til þess að hann
næði að sjúga hana. Móðirin
horfði á þetta og virtist hafa
gaman að.
Unginn fylgir móður sinni í
þrjú til f jögur ár og sýgur hana
allan tímann. Þegar hann sýg-
ur, stendur hann milli framfóta
móðurinnar, og er honum góð
vörn að þeirri stöðu.
Við fæðinguna er raninn ónot-
hæf brjóskplata, sem vex út á
aðra hliðina, svo að unginn eigi
hægra með að sjúga. Raninn er
ekki beygjanlegur fyrstu fjóra
mánuðina.
Á fimmta eða sjötta ári byrj-
ar unginn að læra að afla sér
matar og hættir hann þá smátt
og smátt að sjúga. Kvenfíllinn
eignast að jafnaði fjóra unga
um ævina. Ósjaldan eignast hún
tvíbura, og algengt er að sjá
móður með nokkra unga á mis-
munandi aldrei á hælum sér.
Eftir að ungarnir hafa vanizt
frá móðurinni, hefst erfitt tíma-
bil í lífi þeirra — líkt og gelgju-
skeið hjá drengjum og stúlkum.
Þeir eru vanstilltir og baldnir.
Seinna má stundum sjá karlfíl-
ana sýna jafnöldrum sínum ást-
leitni — en yfirleitt bólar ekki
á kynhvöt fílanna fyrr en um
tvítugt. Fjörmestir eru þeir á
aldrinum 35—45 ára, en úr því
fer að halla undan fæti, og um
sextugt eru þeir orðnir ófrjóir.
Þá er karldýrið orðið einkar
friðsamt, jafnvel um fengitím-
ann. En ekki er öruggt að
treysta karlfíl fyrr en hann er
kominn vel yfir sextugt.
Vel taminn fíll, um eða innan
við þrítugt, á að geta skil-
ið 24 mismunandi skipunarorð,
auk þeirra merkja, sem reiðmað-
urinn gefur með fótunum, og
hann á að geta tekið upp fimm
mismunandi hluti af jörðunni
og rétt reiðmanninum, þegar
hann er beðinn um það. Ég hef
séð skynsaman fíl, sem tók ekki
aðeins upp pípu húsbónda síns,
þegar hann misti hana, heldur
einnig logandi vindil.
Fíllinn getur með öðrum fæt-
inum og rananum fest keðju um
timburhlaða og einnig leyst
hana.
Fíllinn vinnur ekki vélrænt
eins og önnur dýr, og hann er
sífellt að læra. Ég trúi ekki
þeirri þjóðsögu, að , ,f íliinn
gleymi aldrei neinu“, en hegð-
un hans ber vott um skynsemi,
sem gerir honum kleift að leysa
ný viðfangsefni. Ef hann þarf
að klóra sér á skrokknum, en