Úrval - 01.06.1959, Síða 27

Úrval - 01.06.1959, Síða 27
ANDl OG EFNI ÚRVAL líffræðilega gagnslaus. ,,Tak- mark okkar ætti að vera að setja að nýju í stað hennar samkeppni milli einstaklinga, sem er miklu hugtækari og skynsamlegri." Ég ætla aðeins að drepa á eitt af hugðarmálum Shröding- ers til viðbótar. Tvö grundvall- cratriði, segir hann, eru undir- staða vísindaiðkana: Hið fyrra er að náttúran sé skiljanleg; hið síðar, að unnt sé að ,,hlutgera“ (objectify) heiminn. Við- fangsefni okkar er hið síðara. Lesandinn mun kannast við það sem „kenninguna um veruleika- heiminn“, sem minnzt er á hér aó framan. Til þess að komast eitthvað áleiðis í skilningi okkar á hin- um óendanlega flóknu fyrir- brigðum náttúrunnar, látum við sem við getum stigið út úr heiminum, orðið skoðendur. Augljóst er, að þetta er tilbúið, að við erum sjálf hluti af því sem við erum að skoða, en að- ferðin virðist vera nauðsynleg, ef eitthvert vit á að vera í vís- indunum. Samt glottir þessi ó- rökvísi sífellt við okkur. Þegar skoðandinn hefur verið fjar- lægður, gerum við snyrtilegt líkan af kerfum efnis og hreyf- ingar. En það er alvarlegur galli á þessu líkani: það er alls ekkert líkan af heiminum. Það er eins og teikning af blómi. Við fjarlægjum okkur sjálf til þess að komast nær heiminum, en árangurinn verður sá, að við týnum honum. Við stígum í skyndi inn í myndina aftur. Af- leiðingin verður ringulreið. Annar vandi kemur til. Hvað segir kenningin um veruleika- heiminn um það hvernig hugur- inn orkar á efnið? Til þess að gera myndina hefur sjálfið verið fjarlægt. En sjálfið er hugur- inn; hvernig getuð það þá ork- að á það sem það hefur verið tekið burt frá? Er þetta aðeins hártogun? Því aðeins að vísindi og heimspeki séu sjálf hártogun. ,,Hin efnislegu vísindi," skrif- aði Sir Charles Sherrington, „setja okkur andspænis þeifri mótsögn, að hugurinn sem slík- ur geti ekki leikið á píanó — hugurinn sem slíkur geti ekki hrært einn fingur.“ Hver eða hvað gerir þá það sem gert er? Er myndin af efnisheiminum gerð af efninu sjálfu? Er eng- in leiðsögn, engin áform, eng- inn greinarmunur ? Það er vissulega hægt að halda því fram, að ekki sé til neitt sem heitir hugur, að það sé merk- ingarlaust hugtak. En þá kom- umst við í tvennskonar mót- sögn. Ef við á hinn bóginn við- urkennum, að hugtakið hafi einhverja merkingu, lendum við í annars konar mótsögn. Hugurinn situr einn á háu priki sínu í skuggaheimi. Hann er framandi í sínum eigin heimi. I bók sinni Man on His Nature dregur Sherrington vandamál- ið saman í eftirfarandi orðum: „Að svo miklu leyti sem skynj- 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.