Úrval - 01.06.1959, Síða 29
ANDI OG EFNI
ÚRVAL
vandamáflið öðrum tökum. Við
þurfum ekki, þegar öllu er á
botninn hvolft, að taka gildan
þennan greinarmun á skoðanda
og hlut. Hann hefur hagnýtt
gildi og í vísindum er hann ó-
missandi sem hjálpartæki; en í
heimspeki telur Schrödinger að
varpa eigi honum fyrir róða.
Vísindamenn komast ekki í
vandræði þó að þeir reikni með
þessum greinarmun á sínu
sviði; eða ekki fyrr en þeir
fara að draga uggvænlegar
þekkingarfræðilegar ályktanir
af óleystum vandamálum sín-
um. Með þessu er þó ekki sagt,
að vísindamaðurinn eigi að
haída sér við lest sinn; Schröd-
inger er tæplega þannig settur
að hann geti krafizt slíkrar
einskorðunar. En það merkir,
að eðlisfræðingurinn verður að
temja sér meiri skýrleik í hugs-
un, verður að gera sér Ijóst, að
sundurlausar tilgátur á einu
sviði gefa ekki endilega tilefni
til að draga gildar ályktanir á
öðru sviði. Schrödinger orðar
þetta svo: „Það eru sömu frum-
efni sem eru efniviður huga
míns og heimsins. Hið sama á
við um sérhvern annan hug og
heim hans, þrátt fyrir ómælan-
lega gnótt „víxlakynna" þeirra
í milli. Heimurinn er mér gef-
inn aðeins einu sinni, ekki einn
scm er til og annar sem ég
skynja. Skoðandi og hlutur eru
eitt. Það er ekki hægt að segja,
að nýlegar eðlisfræðitilraunir
hafi máð út markalínuna milli
þeirra, því að sú markalína hef-
ur aldrei verið til.“
Ég held það verði tæplega
sagt, að Schrödinger hafi lagt
traustan og öruggan skerf til
vísindanna um hugann. Hann
er gamaldags í sumum skoðun-
nm sínum; hugmyndum hans
hættir til að leka og renna sam-
an; hann er stundum ákafur
þegar betur færi að hann væri
skýr, því miður. Samt hefur
hann gefið okkur verðmæta
hluti, sem standa munu af sér
árásir vísindamanna og heim-
spekinga. I því sem hann hefur
skrifað eru fólgin verðmæti,
sem eru jafn afdráttarlaus og
raunveruleg og erfitt er að skil-
greina þau. Það vottar hvergi
fyrir tilgerð. Gáfur hans eru
frábærar, en þær eru yljaðar
heitu hjarta. Hann blygðast sín
ekki fyrir að vera mannlegur.
Samt er hann aldrei tilfinn-
ingasamur. Hann er eitt með
hugmyndum sínum, hann deilir
með okkur efasemdum sínum
cg knýr okkur til að taka af-
stöðu. Það sem mestu máli
skiptir í sambandi við hinar ó-
leystu spurningar vísindanna
er að áliti Schrödinger sú stað-
reynd, að þær eru spurningar
um náttúruna og tilgang lífsins.
Vegna þess að vísindin geta
ekki svarað þessum spurningum
ein, hefur hann leitað á önnur
mið til fanga. Jobsbók segir
okkur, að vegir guðs séu ó-
rannsakanlegir; að til séu
spurningar sem ekki megi bera
25