Úrval - 01.06.1959, Síða 33
ÞRJÁR SEKÚNDUR TIL AÐ BJARGA LlFINU
ÚRVAL
hemluðum hjólum, hlýtur hann
að merjast og kremjast undir
þeim. Ef hjólin á hinn bóginn
renna frjáls yfir hann á venju-
legum bæjaraksturshraða, er
minni hætta á að hann limlest-
ist illa. Til að skilja þetta skaltu
láta kringlótt ritvélastrokleður
rúlla frjálst yfir blýantsstrik.
Þú mátt þrýsta talsvert fast á
strokleðrið til þess að strikið
máist. En ef þú stöðvar snún-
ing þess þarf miklu minni
þrýsting til þess að má út strik-
ið. Sama lögmál gildir um mann
sem verður fyrir bílhjóli. Flestir
reyndir bílstjórar vita um tvö
tilfelli þegar ekki má snögg-
hemla: þegar hjólbarði spring-
ur og þegar bíllinn tekur að
renna í hálku. Það má bæta við
tilfelli eins og hér hefur verið
lýst.
Auðvitað mundi þér aldrei
detta í hug að ana fyri bíl eins
og þessi unglingur — en gerum
nú samt ráð fyrir að þú sért
unglingurinn gálausi!
Það bezta, sem þú getur gert,
er að leggjast marflatur! Veltu
þér úr vegi bílsins, ef þú getur,
en reyndu ekki að standa upp
fyrr en bíllinn hefur numið
staðar. Gættu þess umfram allt
að halda höfðinu niðri. Það er
kannski ekki beinlínis heilsu-
samlegt að láta bíl renna yfir
sig, en það er þó miklu ákjós-
anlegra en að fá stuðarann í
höfuðið.
Þau dæmi, sem nefnd hafa
verið hér að framan, eru aðeins
lítið brot af þeim hættum, sem
þú getur átt von á að lenda í
sem bílstjóri. Þú getur hugsað
þér margar fleiri, sem þú gætir
orðið fyrir. Hugleiddu þær, og
hvernig bezt sé að bregðast við
þeim. Það gæti einhvern tíma
orðið til að bjarga lífi þínu.
>o<
Listin að „prútta“.
I Mexikó er sölumennska sannkölluð list og mexíkanskir sölu-
menn taka list sína alvarlega.
Saga er sögð af einum slikum sölumanni, sem var að bjóða
tvennum bandarískum hjónum falleg silfurarmbönd og kostuðu
þau 1000 pesos hvert um sig. Önnur konan hafði verið í Mexíkó
nógu lengi til þess að hafa lært að prútta við sölumenn. Var
hrein unun að hlusta á vígfimi sölumannsins og frúarinnar og
leyndi sér ekki, að þau höfðu bæði mikla skemmtun af. Enda-
lokin urðu þau, að frúin fékk armband fyrir 200 pesos.
„Þetta eru kostakjör," sagði hin frúin. ,,Ég ætla að fá eitt
armband fyrir sama verð."
,,Ne—ei, senora," sagði sölumaðurinn. „Þér verðið að byrja
á nýjan leik.“
— Black & White.
29