Úrval - 01.06.1959, Side 53

Úrval - 01.06.1959, Side 53
.VÉLDRENGURINN" JÖI ÚRVAL meðal kleyfhuga bama nútím- ans. Honum fannst manneðlið óþolandi, hann langaði til að verða algerlega sjálfvirkur. Ef ég ætti að lýsa Jóa, yrði ég bæði að kalla hann mjög vanþroska barn og afar flókna vél. I skól- anum áttum við oft erfitt með að líta á hann sem bam. Svo snilldarlegar voru blekkingar hans, að við áttum oft mjög erfitt með að koma fram við hann eins og mannlegar vemr. Fyrstu vikurnar sem Jói var hjá okkur, horfðum við á með athygli þegar þessi veiklulegi en fyrirferðarmikli níu ára dreng- ur lifði hina vélrænu tilveru sína. Þegar hann kom til dæmis inn í borðstofuna, strengdi hann ímyndaðan vír frá „orkugjafa11 sínum — ímyndaða rafmagns- taug — að borðinu. Þar „ein- angraði" hann sig með pappírs- þurrkum og tengdi sig að lok- um. Þá fyrst gat hann farið að borða, því að hann trúði því statt og stöðugt, að meltingar- færin gengju fyrir „rafstraumn- uin“. Svo vel lék drengurinn þetta, að við áttuðum okkur ekki á því fyrst í stað, að hvergi sáust vírar, taugar eða tenglar. Hin börnin og starfsfólkið forð- aðist ósjálfrátt að stíga á í- mynduðu ,,vírana“ af ótta við að rjúfa það, sem þeim fannst beinlínis vera líftaug hans. Þegar „vélin“ var ekki í gangi, gat Jói setið grafkyrr og þögull stundum saman, eins og hann væri ekki til. En í næstu andrá gat hann „farið af stað“ og dregið að sér óskipta athygli okkar. Þá kveikti hann á „vél- inni“ og skipti með miklum háv- aða í hærri og hærri gír, unz hann „sprakk" og æpti: „Sprenging, sprenging!“, um leið og hann þeytti í allar áttir ýmsum hlutum, sem hann hafði alltaf við höndina — útvarps- lömpum, ljósaperum og öðru brothættu dóti. (Jói var furðu- lega kræfur við að næla sér í lampa og perur án þess aðrir sæu). Þegar hann hafði æpt og ólátast nægju sína og stráð í kringum sig brotnum hlutum, gerðist hann hljóður og hreyf- ingarlaus á ný. Starfsstúlkumar okkar í skól- anum, sem vanar vom erfiðum börnum, sýndu Jóa sérstaka nærgætni. Þær voru bersýni- lega snortnar af ótrúlegri við- kvæmni hans. Fyrir kom, að tækið sem hann festi við rúm- ið sitt til að halda sér „lifandi" meðan hann svaf, færðist eitt- hvað úr lagi. Þetta tæki var gert úr bendlum, pappa, vír og öðru smálegu. Stúlkumar voru vanar að leggja slíka smáhluti barnanna á náttborðið hjá þeim eða þá að þær fleygðu þeim. En vélina hans Jóa settu þær sam- an aftur. „Jói verður að hafa blöndunginn sinn, svo að hann geti andað“, sögðu þær. Eins voru þær stöðugt á verði til að tína saman og geyma litlu vél- arnar, sem hann fékk orku frá 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.