Úrval - 01.06.1959, Side 101

Úrval - 01.06.1959, Side 101
VILTU SVERJA? ÚRVAL anum frá sellóinu sér hún ekki ófrýnilegt smettið á mér, í dimmum eftirhljómnum frá strengjunum heyrir hún ekki hrjúfa rödd mína, frammi fyrir sinfóníuhjómsveitinni og selló- leikaranum hátt uppi á tónpall- inum í hljómleikasalnum getur hún ekki séð, að ég er venjuleg- ur maður: þögull, ljótur og jarðbundinn. Hún hefur einung- is tekið eftir því, að þegar ég sit með þetta mahogníbrúna, hljómmikla hljóðfæri milli hnjánna og leik á það, verð ég gagntekinn undarlegri kennd, sem hún skilur ekki, en langar ákaft til að snerta. Nú gælir hún við líkama minn, en það er sál mín, sem hana munar í. Það ætti í rauninni að valda mér vonbrigðum, að hún girnist ekki líkama minn, en nú hef ég cðlast slíka rósemi, og ég get látið þetta eftir henni beiskju- laust. Satt að segja ætti ég að vera þakklátur fyrir að óásjá- legur líkami minn hefur sveip- ast dýrðarljóma frægðarinnar og geislabaug helgisagnarinn- ar. Hefði ég ekki leikið á selló, hefði ég ekki setið hér. Hefði ég verið bakari eða múrari, hefði hún ekki boðið mér í bíl- ferð út í guðsgræna nátt- úruna. Annars má guð vita,“ flaug gegnum huga hans þegar hann fann langar dökkrauðar neglur hennar þrýstast inn í handar- bakið á sér. Og hann varð að taka á öllu sem hann átti til, svo að hugsanirnar rynnu ekki frá honum. „Það sem kórónar allt saman er það, að konan skuli taka frum- kvæðið af karlmanninum,“ hugsaði hann. „Það er hún, sem tekur um hönd mína. Það er hún, sem hvíslar svarið í eyra raér, meira að segja áður en ég hef spurt. Það hefur ekki kom- ið fyrir mig áður á syndum spilltri ævi minni.“ Jú, hann mundi óljóst eftir skækjunni í pútnahúsi í Ham- borg, þar sem hann hafði verið við nám tvö kennslumisseri fyrir mörgum árum. Hún hafði tekið í hönd hans úti á dans- gólfinu og spurt hann, hvort hann langaði ekki í ,,einn“. Hann minntist þess líka enn með viðbjóði og dálitlum óróa, sem komið hafði fyrir hann seint um kvöld á einni af neð- anjarðarstöðvunum í París, um það leyti sem hann var að nema sellóleik hjá Tréville prófessor. Þar stóð gömul, fátækleg horuð kona við hlið hans á brautar- pallinum, og hún þrýsti sér upp að honum. Hún var drukkin og lagði af henni þef að vínanda og óhreinindum, og það eina sem prýddi innfallinn, tann- lausan munninn, var storknuð rönd af brúnum tóbakslegi í báðum munnvikjunum. Hún hafði komið fast upp að honum, og það var svita og saggalykt af henni, hún hafði fitlað við frakkaermi hans og gusað klám- yrðum framan í hann, og hún 93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.