Úrval - 01.06.1959, Page 102

Úrval - 01.06.1959, Page 102
ORVAL VILTU SVERJA? hafði látið hringla í smápening- um í vasanum á götóttri káp- unni og beðið hann að koma með sér ,,heim“ til að elska hana. En þessar minningar gerðu hvorki til né frá. Þær voru til- viljanir, undantekningar í líf- inu, þessu jarðneska lífi þar sem frá upphafi vega hefur ver- ið litið á það sem lögmál og ó- rjúfandi nauðsyn, að karlmað- urinn biðji konunnar, en ekki öfugt. Og hvað er það, sem karlmað- urinn gerir ekki til að öðlast það sem hann þráir heitast af öllu: hylli konunnar og auðmjúka undirgefni hennar? Hvað hafði ekki konan kost- að sellóleikarann af krafti, hug- rekki, uppfinningasemi, svívirð- ingum, grátbænum, axarsköft- um og sviksemi, áhættu og dirfsku, þrá og óteljandi von- um? Hvað hafði ekki áfergjan eftir hvítum líkama hennar og myrku skauti kostað hann í peningum, tíma og umhugsun? Hvað hafði hann ekki — eins og allir karlmenn — gert fyrir konuna, til að nálgast hana, til að finna hönd hennar í sinni, til að leggja hönd sína á hné hennar og hlusta á hana hvísla veikt já? Hvað hafði hann ekki — eins og allir karlmenn — mátt þjást og þola í fylgd með hinum skuggalega, óþreytandi förunaut mannsins: ágimdinni? Þetta eru staðreyndimar: Til að vinna hylli konunnar hafði hann krækt aura upp úr sparibauk systur sinnar með stoppunál, stolið úr peninga- veski móður sinnar, falsað reikninga til föður síns og hirt sjálfur mismuninn, leitað með áköfum hjartslætti eins og glæpamaður vasa úr vasa á frökkum félaga sinna í auðum gangi í tónlistarskólanum, límt frímerki á bréf á skrifstofu, spilað póker og keypt hluti í happdrættinu, verið bílstjóri í ölgerð, slaufað hádegismat í tonnatali, og lifað mánuðum saman á hafragraut og lýsi, tekið peninga að láni hjá vin- um sínum og í bönkum, skrifað undir hrollvekjandi víxileyðu- blöð, veðsett föt og nótnagrind- ur og silfurúrið, sem hann fékk í fermingargjöf, og rænt súkkulaðisjálfsala. Til að ganga í augun á kon- unni hafði hann — eins og all- ir karlmenn — gengið í gráum skyrtum og brúnum skyrtum, bleikum skyrtum og bláum, hann hafði brotið heilann um litinn á sokkunum og velt vöng- um yfir uppbrotinu á buxun- um, hann hafði reynt stífa flibba og mjúka, harða hatta og lina, hatta með uppbrotnum börðum og flötum börðum, norska hatta og ítalska, hann hafði gengið berhöfðaður og með alpahúfu, hann hafði stað- ið tímunum saman inni í dimm- um, þefillum klæðaverzlunum og athugað hugsjúkur sniðið á jökkunum, bæði yfir herðarnar og í bakið; hann hafði þvegið 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.