Gátt - 2009, Page 35

Gátt - 2009, Page 35
35 V I N N U M A R K A Ð U R I N N G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 þarf á aðstoð barna sinna að halda. Slíkt þyrfti ekki endilega að vera bundið launum. Þessir eldri starfsmenn eiga líka við annan vanda að etja. Börn þeirra, sem komin eru með eigin frama og fjöl- skyldu, þurfa iðulega stuðning með barnabörnin þegar veikindi eða óvænt atvik verða. Hvernig verður það leyst? Augljóslega hefur hin aukna lífslengd skapað nýjar aðstæður sem samfélagið verður að bregðast við til þess að viðhalda lífsgæðum fólks og ekki síður að skapa þeim sem erfa eiga landið góða og örugga bernsku. Það er vart hægt að ætl- ast til að vinnumarkaðurinn beri einn þær byrðar sem af þessu mun hljótast. Honum er það mikilvægt að halda eldri starfsmönnum í vinnu með alla sína fjölbreyttu reynslu og miklu yfirsýn. Eldra starfsfólki er það líka mikið atriði að geta stundað vinnu þótt ekki sé nema að hluta til ef það óskar þess. Eldra fólk vill eiga val um starf og starfshlutfall rétt eins og þegar það var yngra. Samlokukynslóðin, sú sem hefur skyldur bæði við sér yngri og eldri kynslóðir, býr við vanda sem samfélagið verður að leysa. Ég gæti trúað að þessi ameríska könnun, sem segir að maður verði hamingjusamari með aldrinum, hafi rétt fyrir sér. Maður sóar náttúrlega ekki tímanum heldur reynir njóta hvers dags sem maður fær. Ég læt ekki heldur ytri aðstæður ergja mig lengur – og þó! Það ergir mig hvað ég á lítið val eftir að ég eltist, aðrir ráða fyrir mig, þessi forræðishyggja gagnvart okkur þeim eldri er ótrúleg. Og hér á ég bæði við hið opinbera og ein- staklinga. (72 ára sveitarstjórnarmaður með meiru) Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu verða ýmsar andlegar breytingar með aldrinum. Það dregur úr nei- kvæðum tilfinningum sem stjórnað er af hægra heilahvelinu, svo sem sorgarviðbrögðum, óánægju og árásarhneigð vegna þess að jákvæðari tilfinningar, sem stjórnast af vinstra heila- hvelinu, eflast. Fólk verður sáttara við sjálft sig og annað fólk, situr á friðarstóli og verður varkárara. Það hefur reyndar komið glögglega í ljós í aðdraganda núverandi kreppu hérlendis. Það má segja að blessun fylgi gleymsku efri áranna, sársauki ósigurs og niðurlægingar hefur horfið úr augsýn en sá lærdómur sem þar fékkst situr eftir. Mótlæti getur verið dulbúinn vinur. Óþægindi gleymskunnar og ald- ursins felst hins vegar t.d. í hinu dapra skammtímaminni. Við þekkjum öll vandræðin þegar við hittum kunningja, munum vel eftir honum en alls ekki nafnið eða tengslin okkar í milli. Ólafur, fyrrverandi landlæknir, hefur gefið þar gott ráð, semsé að spyrja: „Já, hvar sáumst við nú síðast?“ Þá gengur dæmið oftast upp! Langtímaminnið helst hins vegar oftast óskert sem veldur því að eldra fólk getur oft fundið góðar lausnir í bráðum vanda samfélagsins. Það hefur séð eða reynt þessar aðstæður áður. Reynsla eldra fólks er oft vanmetinn fjársjóður. Sá mannauður ætti að vera öllum fyrirtækjum og stofnunum mikill fengur. Nægjusemin og sú kyrrð, sem fylgir henni, fær meiri sess með aldrinum. Bruðlið höfðar ekki til þeirra eldri því að þeir greina betur en aðrir aldursflokkar hvað skiptir í raun- inni máli. Sama gildir líka um bruðlið með tímann. Við höfum ekki efni á því að „drepa tímann“, dagar okkar eru taldir, því viljum við njóta hvers dags sem hinn síðasti væri eins og vinur okkar sveitastjórnarmaðurinn benti á. Efri árum fylgir einnig umtalsvert frelsi, tískan og tíð- arandinn hafa minni áhrif. Hlutverkaleiknum er lokið, eldra fólk þorir að vera það sjálft af því að það hefur kynnst sjálfu sér betur, sæst við eigin galla og vangetu, já, tekið sig sjálft í sátt. Menn þurfa ekki lengur að sanna sig, hvorki fyrir sjálfum sér né öðrum. Í því felst mikið frelsi, mikill léttir, mikil hamingja. Er það ekki gjöf að eldast! En sérstaklega er vert að benda á að kjarkur og þor varðandi réttlætismál eykst með árunum. Ekki síst hafa eldri konur barist frábærlega fyrir mannréttindum. Ég var eitt sinn viðstaddur göngu aldraðra kvenna á Plaza del Mayo í Argentínu. Þær hafa gengið þar hvern fimmtudag um árabil, og ganga hring eftir hring, til að mótmæla brotthvarfi sona sinna og annarra drengja. Allt um kring eru hermenn gráir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.