Gátt - 2009, Page 45

Gátt - 2009, Page 45
45 V I N N U M A R K A Ð U R I N N G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 komið saman einu sinni í mánuði til að ráða ráðum sínum. Auk þess hefur handverkshópurinn unnið að hönnun og gerð minjagripa sem byggja á sérstöðu svæðisins, jafnframt því sem staðið hefur verið fyrir ýmsum handverksnámskeiðum og handverkssölu á svæðinu. Nú er handverkshópurinn að festa kaup á leirbrennsluofni sem ákveðið hefur verið að verði staðsettur í Grunnskólanum á Hofsósi þannig að hann geti einnig nýst þar til kennslu fyrir börnin. Nemendur Grunn- skólans á Hofsósi nutu einnig beint góðs af Breytum byggð á sínum tíma þar sem þeir fengu í fyrsta sinn aðgengi að tölvum og tölvukennslu í skólanum eftir að verkefnið hófst. H V E R E R Á R A N G U R I N N ? Í upphafi var spurt hvað reynslan af Breytum byggð gæti kennt okkur. Niðurstaðan er að styrking á sjálfsmati ein- staklingsins og samkennd í samfélagi er mikilvægari en önnur hefðbundin kennsla þó ekki beri að vanmeta hana. Ef einstaklingurinn hefur ekki sjálfstraust til að leita tækifæra og nýta þau og að gera það besta úr aðstæðum hverju sinni er til lítils barist. Sex árum eftir að Breytum byggð lauk gætir áhrifa þess enn í byggðarlaginu. Verkefni, sem urðu til í kjölfarið, eru enn til og samheldni og samtakamáttur eru ríkir þættir í samfélaginu. Um nokkurt skeið hafa íbúarnir t.d. verið að undirbúa byggingu íþróttahúss. Titill greinarinnar er tilvitnun í íbúa á Hofsósi. Er hægt að fá betri ummæli um verkefni? H E I M I L D I R : Jón Torfi Jónasson og Kristín Erla Harðardóttir. 2004. LearnCom Final Evalua- tion Report. Reykjavík. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Margrét Björk Björnsdóttir. 2007. Römm er sú taug… Getur sjálfsstyrking samfélaga og efling á átthagafræði, stuðlað að sterkri byggð og uppbygg- ingu á ferðaþjónustu á landsbyggðinni? Óbirt BA-ritgerð í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Munnleg heimild: Bryndís Kristín Þráinsdóttir, munnleg heimild, september 2009. U M H Ö F U N D I N N Anna Kristín Gunnarsdóttir er með MA próf í menntunar- fræðum frá Háskóla Íslands og B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur sótt fjölmörg námskeið í kennslufræði fullorðinna auk endurmenntunarnámskeiða í kennslufræði tungumála. Anna Kristín hefur m.a. starfað sem alþing- ismaður fyrir Norðvesturkjördæmi, framkvæmdastjóri Far- skólans, miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra og sem kennari á Sauðárkróki til fjölda ára. A B S T R A C T In the year 2000 Farskólinn, center of continuing educa- tion in the North-West part of Iceland, got the highest grant awarded to an educational project in Iceland by European Union´s Leonardo da Vinci Lifelong Learning Program. The grant was for a three year multinational project named “Learning Community” with eight partners in five countries. The inhabitants of communities, whose traditional job indus- tries were declining, were offered free tutoring in subjects that were believed to allow the inhabitants to reenter or take up different kinds of jobs on the job market. The focus was put on increasing the self confidence of inhabitants and the sense of unity in the community. The project coordinator was sure that peoples´ believe in their ability to gain education and take on new projects is a precondition for them to be able to use their abilities for their own and the community´s advancement. There were three main goals: 1. Creating a „learning community“ by reaching as many and as diverse individuals in the community as possible. 2. Strengthening the skills and competitiveness of indi- viduals by creating a positive air towards changes and new knowledge. 3. Increasing the quality and possibilities of continuing education and job related training. Participation was high and the air in the community changed as the project progressed. Six years after the project was over the inhabitants of the area felt that it had had a lasting impact on the community in Hofsós, both socially and for the community, and there are still projects going on that sprung up as a result of the Learning Community project.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.