Gátt - 2009, Side 54
54
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
F Æ R N I Í F E R Ð A Þ J Ó N U S T U
N Ý T T G R U N N N Á M Í F E R Ð A Þ J Ó N U S T U
MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR OG SKÚLI THORODDSEN
Í kjölfar þarfagreiningar, sem Samtök ferðaþjónustunnar
(SAF) höfðu forgöngu um að láta vinna á árinu 2005, hófst
samstarf SAF og Starfsgreinasambandsins (SGS) um að
skipuleggja og hrinda úr vör starfsmenntun í þágu atvinnu-
greinarinnar árið 2006. Þarfagreiningin var unnin af HRM
Rannsóknum og ráðgjöf í samstarfi við Starfsgreinaráð um
náttúrunýtingu, Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóð
verslunar- og skrifstofufólks og með styrk frá Starfsmennta-
sjóði félagsmálaráðuneytisins og menntamálaráðuneyti. Það
var mat bæði stjórnenda í ferðaþjónustu og starfsmanna
að brýn þörf væri fyrir aukna menntun í greininni. Grunn-
menntun er bágborin og óskipulögð en atvinnugreinin kallar
á starfsnám, sérhæft nám, símenntun og alþjóðleg tengsl til
að geta þróast faglega sem gæðaþjónusta. Í því sambandi er
mikilvægt að allir hagsmunaaðilar á sviði ferðaþjónustu legg-
ist á eitt til að auka samkeppnishæfi greinarinnar og hæfni
starfsmanna. Styrkja þarf grunnstoðir greinarinnar á sviði
fræðslu og menntunar og á það ekki síst við um allan þann
fjölda starfsmanna með litla formlega menntun á veitinga-
og gistihúsum, í hvers konar ferðaþjónustu, s.s. afþreyingu,
hjá bílaleigum, hópbifreiðum og öðrum þjónustufyrirtækjum
sem sinna ferðamönnum. Hlutfall þeirra sem minnsta form-
lega menntun hafa reyndist almennt vera mjög hátt eða
28–38% en þó mismunandi eftir störfum innan greinarinnar.
Einna hæst reyndist hlutfallið á veitingastöðum eða 44%.
B R E I T T S A M S T A R F
Til þess að ná því markmiði að efla fræðslu og nám í ferða-
þjónustu efndu SAF og SGS til sameiginlegrar umræðu með
fræðsluaðilum vorið 2006 þar sem farið var í saumana á
skýrslunni, grunnþarfir ferðaþjónustunnar til menntunar
voru skilgreindar og þeim forgangsraðað eftir þörfum. Í fram-
haldi af þeirri umræðu ákváðu samtökin að taka frumkvæði
að „námi í ferðaþjónustu” sem yrði skipulagt með þeim
hætti að það gæti tengst námsframboði í skyldum greinum
ferðaþjónustunnar. Stofnaður var vinnuhópur um gerð nýrra
námsskráa í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem
ætlaðar eru þeim sem starfa eða stefna að starfi í greininni.
Í hópnum áttu sæti, auk fulltrúa frá SAF og SGS og Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins, fulltrúar frá Símey og Mími, starfs-
menntasjóðunum Starfsafli, Landsmennt og VR en allir þessir
aðilar eru tengdir endurmenntun fólks á vinnumarkaði. Verk-
efnisstjórnin hófst síðan handa við samstarf að verkefninu
„Færni í ferðaþjónustu“ og hannaði í fyrstu lotu nám, „þjón-
ustugrunn“ fyrir fólk með litla formlega menntun sem starfar
á veitinga- og gistihúsum og í hliðstæðri starfsemi innan
ferðaþjónustunnar eða stefna að starfi í greininni. Mjög gott
samstarf um innihald og vinnu við gerð námsskránna hefur
átt sér stað innan hópsins í samvinnu við bakland SAF og
SGS úr atvinnulífinu.
S T Y R K U R F R Á L E O N A R D O – F Y R I R -
M Y N D A R V E R K E F N I L E O N A R D O
Við hönnun námsins var gengið út frá þörfum greinarinnar
og aðstæðum starfsfólks. Mikilvægt var að skoða hvernig
aðrar þjóðir hefðu skipulagt nám fyrir þennan markhóp.
Verkefnisstjórnin hlaut styrk frá mannaskiptaverkefni Leon-
ardos og skipti með sér verkum þegar farið var í námsferðir
til Finnlands og Svíþjóðar 2006 og hópnum var miðlað af
reynslu og þekkingu í fullorðinsfræðslu innan fagsviðs ferða-
þjónustunnar. Niðurstöður heimsóknarinnar komu sér mjög
vel í námskrárgerðinni en þátttakendur komu heim með
nýjar hugmyndir og efni sem og sterkara tengslanet innan
ferðaþjónustunnar í Evrópu. Á síðastliðnu ári var verkefnið
valið Fyrirmyndarverkefni Leonardos en það hlaut viðurkenn-
María Guðmundsdóttir Skúli Thoroddsen