Gátt - 2009, Side 64

Gátt - 2009, Side 64
64 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 „ É G V A R B A R A T O S S I “ N I Ð U R S T Ö Ð U R K Ö N N U N A R S E M L Ö G Ð V A R F Y R I R Þ Á T T T A K E N D U R Í L E S - O G S K R I F B L I N D U N Á M I Á V E G U M S Í M E N N T U N A R M I Ð S T Ö Ð V A ÞÓRA ÁSGEIRSDÓTTIR Ánægja með námskeiðin er ótvíræð. Næstum 97% þátttakenda segjast annaðhvort mjög eða frekar ánægð með námskeiðin. Hvergi er mark- tækur munur á milli hópa, þannig að allir virðast jafnánægðir. Einnig var spurt hvort námið hefði almennt komið þátt- takendum að miklu eða litlu gagni. Ljóst er að námskeiðin koma langflestum að gagni því að fjórir af hverjum fimm aðspurðra segjast hafa haft gagn af námskeiðunum sem nýttust þeim að námskeiðunum loknum. Þeir sem sóttu námskeiðið á höfuðborgarsvæðinu segja að námskeiðin hafi komið að meira gagni en þeir sem sóttu námskeiðin utan höfuð borgarsvæðisins. Munurinn er marktækur. Tvær hugsan legar ástæður eru fyrir þessu. Annars vegar að nám- skeiðin séu einfaldlega betri á höfuðborgarsvæðinu en annars staðar á landinu en niðurstöður annarra spurninga styðja þó ekki þá tilgátu. Líklegra er að tækifæri, sem bjóð- ast að námskeiðum loknum, séu fleiri á höfuðborgarsvæðinu fyrir þennan hóp og þess vegna komi námið þeim að meira gagni. Enda kemur í ljós, þegar spurt er hvort námskeiðin hafi orðið til þess að fjölga tækifærum fólks í starfi, að marktækt hærra hlutfall þeirra sem tekið hafa námskeiðin á höfuðborgar svæðinu segja að námskeiðin hafi orðið til að fjölga þeim tækifærum sem þeim bjóðast. Næstum tveir af hverjum fimm telja að tækifærum hafi fjölgað en meira en þrír af hverjum fimm segja að námskeiðin hafi engu breytt þar um. Einnig kemur fram marktækur munur sem sýnir að þeir sem voru undir 45 ára aldri þegar þeir sátu námskeiðin eru líklegri til að fá fleiri tækifæri eftir námskeiðin en hinir sem voru eldri en 45 ára. Því ætti að kappkosta að hvetja yngra fólk til að sækja námskeiðin. A Ð F E R Ð I R N Á M S K E I Ð A N N A Á námskeiðunum eru kenndar ýmsar aðferðir hannaðar til að hjálpa fólki sem á við lestrarerfiðleika/læsisvanda að stríða. Mismunandi aðferðir eru kenndar á hvoru námskeiði fyrir sig. Mynd 1. Almennt séð, ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með námskeiðið … sem þú sóttir? Mynd 2. Myndir þú segja að þú hafir nýtt þér aðferðirnar, sem kenndar voru á námskeiðinu, vel eða illa eftir að námskeiðinu lauk? Síðustu sex árin hafa á sjötta hundrað manns sótt námskeið hjá hinum ýmsu símenntunarmið- stöðvum landsins vegna les- eða skrifblindu. Þetta eru námskeiðin „Aftur í nám“ og „Skref til sjálfshjálpar í ritun og lestri“. Flestir hafa sótt námskeiðið „Aftur í nám“ en rúmlega 70 manns sóttu námskeiðið „Skref til sjálfshjálpar í ritun og lestri“. Í þessari grein er ætlunin að stikla á stóru í niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal þátttakenda í nefndum námskeiðum. Nið- urstöðurnar eru ekki greindar á grundvelli þess hvort námskeiðið var sótt heldur er um heildar- niðurstöður fyrir allan hópinn að ræða. Þóra Ásgeirsdóttir Mjög ánægður Frekar ánægður Hvorki né Frekar óánægð(ur) Mjög óánægð(ur) 62% 34,8% 2,7% 0,5% Mjö ánægður Frekar ánægður Hvorki né Frekar óánægð(ur) Mjög óánægð(ur) 62% 34,8% 2 7 0,5% 16,8% 6,3% 48,1% 15,2% 13,6% Mjög vel Frekar vel Hvorki vel né illa Frekar illa Mjög illa 16,8% 6,3% 48,1% 15,2% 13,6% Mjög vel Frekar vel Hvorki vel né illa Frekar illa Mjög illa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.