Gátt - 2009, Page 71

Gátt - 2009, Page 71
71 F U L L O R Ð I N S F R Æ Ð S L A O G S T A R F S M E N N T U N G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 4. Samhygð: Með samhygð er átt við þann tilfinningalega hæfileika að setja sig í spor annarrar manneskju og skynja hvernig henni líður. Það er samhygðin sem gerir okkur kleift að vinna saman og er forsenda góðra sam- skipta og lausna í samstarfi og samfélagi. Samhygð er einnig ein af undirstöðum góðs siðferðis. Skortur á samhygð birtist í ýmsum myndum og afstöðu í samfélaginu þar sem kuldi (cool) hefur verið talinn eftirsóknarverður eiginleiki en tilfinningasemi talin merki um veikleika! Sumir halda því fram að til- finningar eins og samhygð séu nú mun mikilvægari eiginleiki en vitræn greind samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu. Ýmsar leiðir eru til að leggja áherslu á þennan þátt í fræðslustarfi með samvinnu og samstarfs- verkefnum af ýmsu tagi. 5. Leikur: Pink heldur því fram að liðinn sé sá tími þegar ísköld alvörugefni var mælikvarði á hæfileika og vinnu- færni á meðan leikur og skemmtun var talinn flótti frá verkefnum og lausn þeirra! Leikur er ekki andstæða vinnu heldur hvati árangurs og sköpunar. Unga fólkið á vinnumarkaði hefur verið ásakað um að vera ‘leikjakyn- slóðin’. Í ljós hefur komið að leikjakynslóðin er jafnvel afkastameiri en hin alvarlega ‘vinnukynslóð’. Leikir eru að verða mikilvægur hluti ýmissa starfa, viðskipta og almennrar vellíðunar. Þar má nefna raunveruleikaþætti, tölvuleiki og myndbandsleiki. Leikjaiðnaðurinn er orð- inn gríðarlega áhrifamikill í að móta nýja kynslóð og í ljós kemur að leikir eru mjög öflug námstæki sem þjálfa fólk á mörgum sviðum samtímis. Rannsóknir á áhrifum þessara leikja á ýmsa mikilvæga starfsfærniþætti hafa þegar leitt í ljós ótrúleg dæmi um árangur. Ein rannsókn sýndi t.d. að smásjárskurðlæknar sem spiluðu tölvuleiki í að minnsta kosti þrjá klukkutíma á viku gerðu 37% færri mistök og unnu verkin 27% hraðar en þeir sem ekki léku sér í tölvuleikjum. Stærsti leikvöllur nútímans er Netið en þar má finna endalausa möguleika sem nota má í námi og kennslu. Sumir eru alveg sannfærðir um að leikur muni verða mikilvægasta leiðin til verðmætasköpunar á þessari öld eins og sjá má í eftirfarandi tilvitnun: „Leikur verður á 21. öldinni það sem vinna var síð- ustu 300 árin í iðnaðarsamfélaginu, þ.e. aðalaðferð okkar til að fræðast, framkvæma og skapa verðmæti.“ (Pat Kane: http://www.theplayethic.com/what-is- the-play-ethic.html ) 6. Tilgangur: Í nægtaþjóðfélaginu, þar sem fólk eyðir ekki lengur kröftum sínum í að lifa af, er komin aukin þörf fyrir að hafa eitthvað til að lifa fyrir. Fólk hefur efnin en vantar það óefnislega. Leitin að þeim þáttum, sem skapa raunverulega hamingju, gefa lífinu gildi og æðri tilgang, verður meira áberandi og munu í frekari mæli stýra lífsháttum fólks og hvetja það áfram í lífi og starfi. Fræðslustofnanir hafa margvíslega möguleika til að koma til móts við þessa leit og skapa nemendum þannig betri vinnustað, meiri lífsfyllingu í námsánægju og væntanlega betri námsárangur til lengri tíma litið. U M H Ö F U N D I N N Sigrún starfar sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnu- lífsins. Þar sér hún m.a. um kennslufræðinámskeið fyrir leið- beinendur í fullorðinsfræðslu. Einnig er hún stundakennari við Listaháskóla Íslands. Hún hefur Phil.Cand.-menntun í uppeldis- og sálar- fræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, M.S.-próf í mennt- unarhönnun og -stjórnun og kennslutækni frá National University í Kaliforníu og framhaldsmenntun í fullorðins- fræðslu frá Háskólanum í Linköping í Svíþjóð. Sigrún hefur einnig víðtæka reynslu af fræðslustarfi, menntunarstjórnun og starfsþróunarmálum. A B S T R A C T In 2005 book named „A Whole New Mind“by Daniel H. Pink was published in the United States. In his book the author explains changes that are about to take place in the pro- sperous countries of the Western part of the World, and how they affect the contours of our time. The book reveals the six essential aptitudes on which professional success and personal fulfilment depend. In this article we look closer into Pinks ideas and how they can be applied to learning
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.