Gátt - 2009, Page 81
81
F U L L O R Ð I N S F R Æ Ð S L A O G S T A R F S M E N N T U N
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
viðleitni okkar til þess að þróa miðstöðvarnar. Nú hafa báðar
þessar stofnanir verið lagðar niður en Nitus tekið við ýmsum
verkefnum sem yfirvöld áttu frumkvæði að. Unnið er að því
að finna fleti á samstarfi við Stofnun um háskólastarf í Sví-
þjóð (HSV) og Skólamálastofnunina í Svíþjóð (Skolverket).
Larcentra.se
Vefsíðunni www.larcentra.se var komið á laggirnar af NSHU
en Nitus hefur um nokkra hríð séð um uppfærslu hennar. Nú
er unnið að þróun síðunnar. Markmiðið er að þar sé hægt að
komast að því hvaða símenntunarmiðstöð er næst, sækja um
menntun á öllum stigum, finna skýrslur sem tengjast sveigj-
anlegu námi og krækjur á síður ýmissa stofnana og félaga.
Gríðarlega mikil vinna hefur verið unnin og við leggjum
metnað okkar í að gera síðuna eins góðar og NSHU ætlaðist
til þegar þeir fólu Nitus verkefnið að viðhalda vefsíðunni.
Vagledningsinfo.se
Þá tekur Nitus einnig virkan þátt í að blása nýju lífi í náms-
ráðgjöf á vefnum á www.vagledningsinfo.se. Verkefnið
er í samstarfi við svæðasamtökin Östsam og hófst haustið
2008. Stefnt er að því að hægt verði að bjóða aftur upp á
þjónustuna á vormánuðum 2009. Sökum þess að nú hefur
verið lokað fyrir fjárveitingar frá hinu opinbera þá hafa ótal
svæði og sveitarfélög tekið saman höndum um að fjármagna
rekstur síðunnar þar til einhver nýju stofnananna kemur auga
á mikilvægi síðunnar og tekur reksturinn yfir.
Hvers vegna ættu miðstöðvar að gerast aðilar að Nitus?
Það er mikið um að vera í Nitus en frá mínum sjónarhóli
hlýtur ein helsta ástæða þess að vera með í samtökunum
einmitt að felast í samstarfinu. Einsamall er maður enginn
en sameinuð getum við unnið stórvirki. Margir vilja finna
upp hjólið en ef einhver annar hefur þegar hafist handa við
uppfinninguna er hægt að taka þátt í henni og fá aðstoð og
stuðning frá samtökunum.
Að skiptast á reynslu, þiggja og veita innan Nitus er
afskaplega mikilvægt í áframhaldandi þróun miðstöðvanna,
til framdráttar fyrir námsmenn, háskólana og þau sveitar-
félög sem eru aðilar. Verið velkomin á landsfund til að hitta
starfsbræður og sækja stuðning til Nitus og leggja ykkar af
mörkum til áframhaldandi þróunar símenntunarmiðstöðv-
anna í Svíþjóð!
U M H Ö F U N D I N N
Karin Berkö stýrir símenntunarmiðstöðinni LärCentrum i
Östersund í Svíþjóð. Hún er einnig stjórnarformaður í Nitus
sem eru samtök símenntunar og fræðslumiðstöðva á vegum
135 sveitarfélaga í Svíþjóð. Þá hefur Karin, sem fulltrúi Svía,
tekið virkan þátt í starfi Distans, neti NVL um fjarkennslu.
Sigrún Kristín Magnúsdóttir íslenskaði greinina.