Gátt - 2009, Page 82

Gátt - 2009, Page 82
82 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 R A U N F Æ R N I M A T Á T Í M A M Ó T U M HAUKUR HARÐARSON Tilraunir með raunfærnimat á Íslandi hafa staðið yfir frá árinu 2004. Smám saman hefur komist festa á fram- kvæmd og árangurinn er áhuga- verður. Raunfærnimat tók flugið á afmörkuðum hlutum vinnumark- aðarins, þökk sé stuttum boðleiðum, jákvæðni gagnvart nýjungum og smæð þjóðfélagsins. Árið 2007 voru lagðar fram til- lögur Fræðslumiðstöðvar atvinnu- lífsins (FA) til menntamálaráðuneyt- isins (MRN) um hvernig framkvæmd raunfærnimats skyldi háttað. Vonir voru bundnar við að raunfærnimat fengi lagastoð í nýju frum- varpi um framhaldsfræðslu sem lagt var fram á þingi 2008 en það náði ekki framgöngu. Síðastliðið ár fól ráðuneytið FA að útbúa þjálfunarefni og halda tilraunanámskeið fyrir þá aðila sem koma að framkvæmd raunfærnimats, matsaðila, ráð- gjafa og verkefnastjóra. Hér á eftir eru hugleiðingar um hvernig til hefur tekist varðandi raunfærnimat fram til þessa, helstu ávinninga, þjálf- unarefni og hvaða verkefni eru fram undan á komandi árum. Þegar kynntar eru til sögunnar nýjar aðferðir láta efa- semdarraddir yfirleitt ekki á sér standa. Það hefur einnig átt við um raunfærnimat, hins vegar hafa flestir reynst reiðu- búnir til þess að kynna sér málið með opnum huga og taka afstöðu út frá gögnum, rökræðum og reynslu. Raunfærnimat hefur því unnið sér sess með reynslunni. Ábyrgð Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á því hvernig tekst til með raunfærnimat er mikil og helstu leiðir sem hafa verið valdar til að ná árangri eru: Að tryggja að aðferðafræði sé fylgt og undirbúningur • verkefna sé vandaður. Að tryggja vandaða og gegnsæja skráningu á nið-• urstöðum matsaðila. Að skapa farveg til að leysa ágreining. • Að halda utan um árangur og fylgjast með frávikum.• Að koma á tengslum milli hagsmunaaðila og tryggja • sátt um framkvæmd. Að miðla reynslu um framkvæmd milli aðila. • Á R E I Ð A N L E I K I O G T I L T R Ú Á N I Ð U R S T Ö Ð U M Ein af stærstu áskorunum FA vegna raunfærnimats er að tryggja áreiðanleika og tiltrú atvinnulífs og skóla á niður- stöðum þess. Mikilvægt er að atvinnulífið viðurkenni niður- stöður raunfærnimats til að ekki verði gerður greinarmunur á þeim sem fara hefðbundnu leiðina og hinum sem fara í gegnum raunfærnimat. Raunfærnimat er ekki afsláttur af kröfum um þekkingu og færni og því verður niðurstaðan að vera jafngild. Það er því styrkur að hinu nána samstarfi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins við aðila vinnumarkaðar- ins. Sá styrkur einkennir einnig þá tvo fræðsluaðila sem hafa unnið mest brautryðjendastarf á sviði raunfærnimats, IÐUNA fræðslusetur og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins. Skólakerfið er mikilvægur hagsmunaaðili í raunfærni- mati. Skólarnir þurfa að votta matið og bjóða einstaklingum, sem hafa farið í gegnum mat, að ljúka námi. Það er því alltaf náið samstarf við skóla í öllum raunfærnimatsverkefnum. Í upphafi verkefna hafa gjarnan verið settar fram efasemdir um ágæti þessarar aðferðafræði en að loknum verkefnum eru efasemdaraddirnar fáar. Það getur verið langsótt leið að sanna gildi raunfærni- mats með framkvæmd en að lokum skilar hún árangri. Eftir því sem raunfærnimatsverkefnum fjölgar þeim mun jákvæð- ari verður umræðan. Jafnhliða framkvæmd væri einnig mjög þarft að auka fræðslu um raunfærnimat til kennara og stjórnenda skóla. Þar sem komið hafa upp erfiðleikar innan skólakerfisins hafa þeir einkum snúið að skráningu eininga, tímaleysi og öðrum þáttum sem eru framkvæmdalegs eðlis en ekki að matinu sjálfu. Þ J Á L F U N Í R A U N F Æ R N I M A T I Leiðarvísir Í samræmi við samkomulag við menntamálaráðuneytið hefur FA útbúið leiðarvísi um framkvæmd raunfærnimats. Helstu efnisþættir hans eru: Almenn umfjöllun um raunfærni, útskýringu á hugtak-• inu og hvaða aðstæður þurfa að vera fyrir hendi þannig að raunfærnimat sé líklegt til árangurs. Haukur Harðarson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.