Gátt - 2009, Qupperneq 88
88
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
Var ekki nóg að gera fyrir ófaglærða iðnaðarmenn þegar
íslenskt efnahagslíf var í blóma veturinn 2006–2007? Svanur
segir að hann hafi í raun haft næg verkefni, það hafi ekki
verið vandamálið. Það var samt eitthvað innra með honum
sem var að trufla hann og segja honum að klára námið. „Af
hverju á ég að borga þér fullt verð þegar þú ert ekki með
réttindi?“ Þetta var athugasemd sem Svanur fékk stundum
að heyra frá sínum viðskiptavinum og hvatti Svan enn frekar
að gera enn eina tilraunina við sveinsprófið.
Svanur segir það ómetanlegt að hafa getað farið þessa
leið sem raunfærnimatið býður upp á, þ.e. að geta fengið
færni sína, sem hann hafði áunnið sér í sínu starfi í 15 ár,
metna. Á starfsferli sínum var Svanur meðvitaður um mik-
ilvægi þess að koma að sem flestum þáttum sem snúa að
húsbyggingum, ekki vera eingöngu í uppsteypu nýbygginga
heldur koma einnig að parketlögnum, innanhússinnrétt-
ingum og gluggaísetningum svo eitthvað sé nefnt. Þessi fjöl-
breytni í verkefnavali hjá Svani kom honum án efa mjög vel
þegar færni hans var metin til eininga í raunfærnimatinu.
Svanur var ánægður með framkvæmd raunfærnimatsins
en nefnir að hann hafi átt það til að vanmeta færni sína á
ýmsum sviðum þegar hann var að fylla út matsblaðið. Svanur
segir að hann hafi ævinlega verið með kvíðahnút í maganum
hér áður fyrr þegar kom að prófi en í raunfærnimatinu hafi
þetta horft allt öðruvísi við. Þar hafi þetta verið meira eins að
fara í viðtal en ekki próf.
Hverju skyldi það hafa breytt hjá Svani að hafa farið í
raunfærnimatið og að hafa klárað sveinsprófið? „Það hefur
klárlega aukið sjálfstraustið að hafa klárað sveinprófið og
vera kominn með full réttindi sem húsasmiður. Ég kláraði
námið stuttu fyrir bankahrun og vil ekki hugsa þá hugsun til
enda ef ég væri ófaglærður á markaðnum núna. Þrátt fyrir
mikinn samdrátt í greininni núna hef ég ekki misst dag úr
vinnu en það hefði horft allt öðruvísi við ef ég hefði ekki
verið með réttindin,“ segir Svanur. Hann segir að ófaglærðir
starfsmenn séu oftar en ekki þeir sem fá uppsögn fyrstir
allra. Oft eru það einstaklingar sem hafa byggt upp traust
samband við sinn eigin atvinnurekanda. Þegar það samband
slitnar standa þessir einstaklingar oft mjög höllum fæti og
eiga mjög erfitt að fá aftur sams konar vinnu sökum þess að
þeir hafa ekki tilskilda menntun.
Í dag er Svanur á þriðju önn af fjórum í meistaranámi í
húsasmíði og stundar það nám á kvöldin og um helgar ásamt
því að vinna fulla vinnu við starf sitt í smíðunum og vera með
fjölskyldu. Svanur segist ekki hafa neitt fleiri klukkustundir í
sólarhringnum en aðrir en hann hafi alla tíð verið ófeiminn
að taka til hendinni en vill þó nefna að sá stuðningur, sem
hann hafi fengið heima við hjá sínum nánustu, hafi þó vegið
þyngst.
Svanur hefur verið duglegur að miðla sinni góðu reynslu
af raunfærnimatinu. „Ég veit að það eru margir þarna úti
sem eru í svipuðum sporum og ég var á sínum tíma og jafnvel
margir atvinnulausir í dag. Þarna er komin ný nálgun sem ég
veit að mun hjálpa fleirum en mér til að ljúka sínu námi,“
segir Svanur Þór Brandsson að lokum.
Svanur Þór að kynna raunfærnimat ásamt Iðunni Kjartansdóttur náms- og starfsráðgjafa hjá
IÐUNNI fræðslusetri.